Fjarðarpósturinn - 09.11.1995, Blaðsíða 2
2 GARDATORG
SNYRTIVÖRUR:
DIOR - CLARIS - CLINIC - ASTOR - NO 7 -
ELISABET ARDEN - ROC - OROBLU
LYF, HJÚKRUNARVÖRUR, BARNAVÖRUR,
NÆRFÖT, GJAFAVÖRUR
10% AFSL. AF LYFJUM OG ÖÐRUM VÖRUM
FYRIR ELLI- OG ÖRORKULÍEYRISÞEGA
APÓTEK GARÐABÆJAR
Sími 565 1321, Læknasími 565 1320
Opiö: Mánudaga-fimmtudaga kl. 9 -18.30
föstudaga kl. 9 - 19, laugardaga kl. 10.30 -14.00
l/EIII
SJAFAVÖRUR
LEIIFÍNG
LJÓSRITUN
I 0% AFSLÁTTUR Á
LEIKFÖNGUM
LAUGARDAGINN
I L. NÓVEMBER
Happadrættisumboð HHÍ, SÍBS og DAS
10%
AFSLÁTTUR
laugardaginn 11. nóvember.
Fatnaður fyrir börn
og fullorðna
| BÚÐIN
S. 565-6550
Atvinnustarfsemi
á eftir að eflast
-segir Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri
Ingimundur Sigurpálsson
bæjarstjóri í Garðabæ segir að
atvinnustarfsemi eigi eftir að
eflast í bænum en þar séu nú
mörg stöndug fyrirtæki í verslun
og iðnaði. Það sé stefna bæjar-
yfirvalda að skapa hagstæð skil-
yrði fyrir atvinnuuppbyggingu
og megi þar nefna að skipulagt
hefur verið nýtt byggingarland
fyrir atvinnustarfsemi í Moldu-
hrauni.
í hugum margra er Garða-
bær svefnbær. Er þetta rétt?
Eg vona svo sannarlega að
Garðabær sé góður svefnbær í
þeim skilningi að fólk uni hér
hag sínum vel að afloknum erli
dagsins og eigi hér góða daga og
nætur. En ef með spumingunni
er átt við að hér sé engin eða
óveruleg atvinnustarfsemi er
það af og frá. Atvinnurekstur
hefur aukist mjög í Garðabæ á
undanförnum ámm og hér starfa
allmörg stöndug fyrirtæki bæði í
verslun og iðnaði. Við sjáum
líka fram á að atvinnustarfsemi
eigi eftir að eflast mjög því
Garðabær er vel í sveit settur
hvað varðar búsetu og atvinnurekstur. í að-
alskipulagi Garðabæjar er gert ráð fyrir því
að atvinnulíf verði eflt það mikið innan
bæjarmarkanna að hér verði jafnmörg at-
vinnutækifæri í boði og nemur mannafla
bæjarins. Til þess að ná því marki vantar
um 1.500 ársstörf að því að talið er en nú
em í bænum um 2.500 ársstörf í hinum
ýmsu fyrirtækjum og stofnunum.
Hvað gctur bæjarfélagið gert til þess
að stuðla að þessari uppbyggingu?
Þátt bæjaryfirvalda sé ég helstan að
skapa hagstæð ytri skilyrði fyrir atvinnu-
uppbyggingu í bænum. Þar á ég við að
Ingimundur Sigurpálsson.
vanda þarf vel til skipulags þeirra svæða
sem ætluð eru undir atvinnustarfsemi,
byggingarland þarf að vera gott og liggja
vel að megin samgönguæðum á höfuðborg-
arsvæðinu. Þá geta bæjaryfirvöld treyst
grundvöll atvinnurekstrar í bænum með því
að halda álögum í lágmarki svo sem fast-
eignagjöldum og skatti á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði.
Hvað hefur Garðabær gert í þessum
efnum?
Þar má fyrst nefna að bæjaryfirvöld hafa
skipulagt mjög hagkvæmt byggingarland
fyrir ýmiskonar atvinnustarfsemi í Moldu-
hrauni. Það er staðsett í hrauninu
sunnan við Flatahverfi, tengist inn á
Reykjanesbraut og liggur mjög vel
við öllum helstu samgöngumann-
virkjum. Góð tenging er við Vestur-
lands- og Suðurlandsveg og stutt og
greiðfært er til hafna í Reykjavík og
Hafnarfirði. Auk þessa eru ,sam-
kvæmt aðalskipulagi lausar lóðir til
bygginga undir atvinnustarfsemi í
norðanverðum Arnarneshálsi við
Hafnarfjarðarveg norðan við Vífil-
staði við Reykjanesbraut og svo í
miðbæ við Vífilstaðaveg. I annan
stað má svo nefna að fasteignaskatt-
ur á atvinnuhúsnæði er hér með því
lægsta sem þekkist og bæjaryfirvöld
hafa ekki nýtt sér heimildir til að
leggja skatt á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði þannig að fyrirtæki
sem aðsetur hafa í Garðabæ eru vel
sett að þessu leyti.
Nú er að rísa myndarleg starfsemi
I ntiðbæ Garðabæjar. Hefur bær-
inn komið eitthvað þar við sögu?
Já, þar er einmitt dæmi um hvemig
bæjarfélagið getur komið málurn í
gegnum skipulagsskilmála. Við
skipulag miðbæjarins hefur verið
lagður grunnur að aukinni breidd í
verslunar- og þjónustustarfsemi af ýmsu
tagi. Við bindum miklar vonir við að með
yfirbyggingu göngugötu sem nú er lokið og
aukinni þjónustu og verslun í hinni nýju
verslunarmiðstöð verði mun meiri breidd í
allri verslun og þjónustu í bænum þannig að
bæjarbúar geti rekið flest sín erindi innan
bæjarmarkanna. Við áætlum að á miðbæjar-
svæðinu einu sér muni starfa um 300
manns. Eg óska frumherjunum í miðbæn-
um sannarlega velfamaðar og vona að þeim
muni vegna vel í því að byggja upp góða
þjónustu sem bæjarbúar og helst nágrannar
okkar einnig kunni vel að njóta.
ÍBÚAR BAROABÆJAR
SPARISJÓÐUR
GARÐARÆJAR
SÍMI 565-7500
Til hamingju med
hina glœsilegu
yfirbyggingu Garóatorgs
Starfsfólk sparisjóðsins
HEIMABANKl
HJIIUllMTM