Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 16.11.1995, Page 1

Fjarðarpósturinn - 16.11.1995, Page 1
Rætt við Kristján Bersa -sjá bls. 6 Tillögur heilbrigðisráðherra um breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala Starfsemin mun lamast ef þær ná fram að ganga r Skíða- deild Hauka -sjá bls. 10 Tónlist- in er á uppleið .v.. I ■sjá bls. 4 -segir Arni Sverrisson framkvæmdastjóri. Tillögunum mótmælt í bæjarráði Nú liggja fyrir tillögur heil- brigðisráðherra um breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala sem ætlað er að draga úr hallarekstri spítalans. Arni Sverrisson fram- kvæmdastjóri spítalans segir að starfsemin muni lamast ef þessar tillögur ná fram að ganga en þær eru unnar af sérstökum tilsjón- armanni sem skipaður var af ráðherra s.l. sumar. Þá hefur bæjarráð ályktað um málið og þar er þessum fvrirætlunum ein- dregið mótmælt. Meðal þess sem gert er ráð fyrir í þessum tillögum er að bráðaþjón- ustu á lyflækningadeild verði hætt og að handlækningadeild verði breytt í fimm daga deild. Arni Sverrisson segir að stjórn spitalans hafi farið fram á fund með heil- brigðisráðherra en ekki fengið enn. Hann á þó von á að þessi mál skýrist fyrir vikulokin. "Okkur sýnst svo að verði þessar fyrirætl- anir að veruleika muni eiginleg sjúkrahússtarfsemi lamast á St. Jósefspítala," segir Árni. "Það telj- um við að sjálfsögðu alvarlegt mál en að öðru leyti er erfitt að tjá sig um málið fyrr en við höfum fengið fund með heilbrigðisráðherra." I ályktun bæjarráðs segir m.a. að það sé af og frá að falla frá þeim grundvallarforsendum í rekstri spítalans sem settar voru fram í bréfi þáverandi heilbrigðisráðherra í apríl 1994. -SJÁ BLS.3 Tveir voru teknir með fíkniefni Tveir menn voru handtekn- ir með fíkniefni í fórum sínum í Hafnarfiröi á föstudags- kvöld. I öðru tilvikinu reynd- ist viðkomandi með tæplega 7 grömm af amfetamíni í fórum sínum en í hinu tilvikinu var um örlítið minna magn af sama efni að ræða. Að sögn rannsóknarlögregl- unnar í Hafnarfirði hafði sá sem náðist með tæpu 7 grömmin ekki komið við sögu lögreglu áður. I hinu tilvikinu var það fíkniefnalögreglan sem handtók manninn en hann hefur oft áður verið tekinn fyrir fíknieftiamis- ferli. Lögreglan segir að þessi mál tengist ekki innbyrðis en samt sé ástæða til að hafa áhyggjur af að tveir menn eru handteknir sama kvöldið í bænum með sterk fíkniefni í fórum sínum. Sögustund íbókasafninu Alla miðvikudaga milli kl. 10.30 og 11.30 er sögu- stund í boði fyrir yngstu bömin í Hafnarfirði á bókasafni bæjarins. Að sögn bókavarðar hafa mæður verið duglegar að koma með böm sín á þessar stundir en yfirleitt eru um 30 böm á þeim. Auk þess að lesið er fyrir bömin úr bamabókum mega þau valsa um bamadeild safnsins og stundum er boðið upp á lestur af snældum eða myndir af myndbandi. FASTEIGNASALA Sími 565 2790 Fax 565 0790 Fagrihvammur - 2 ÍBÚÐIR. Fallegt 326 fm. einbýli með innb. bílskúr á frabærum útsýnisstað. 5 svefnh. SÉRÍBÚÐ á jarðhæð. Vönduð fullbúin eign. SKIPTI. Endumýjað 234 fm. einbýli, kjallari, hæð og ris, ásamt innb. bíl- skúr. SKIPTI MÖGULEG Á NÝRRA OG ÓDÝRARA EINBÝLI. Áhvílandi góð lán. Verð 12,9 millj. Dofraberg Nýlegt 210 fm. parhús á tveimur hæðum, með innbyggðum bílskúr. Húsið er ekki fullbúið. Góð staðset- ning. Áhvílandi húsbréf 2,9 millj. Verð 12,9 millj. Hraunbrún GOTT ENDARAÐHÚS, með innbyggðum bílskúr, alls ca. 232 fm. Mjög rólegur og góður staður. ÖLL SKIPTIMÖGULEG. Verð 14,6 millj. INGVAR GUÐMUNDSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNARSALI - JÓNAS HÓLMGEIRSSON -KÁRI HALLDÓRSSON

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.