Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 23.01.1997, Blaðsíða 3

Fjarðarpósturinn - 23.01.1997, Blaðsíða 3
Fjarðarpósturinn 3 r Alver Columbia „Ekki látið í okkur heyra“ „Nei, við höfuni nú ekki iátið frá okkur heyra, og þetta mál hefur ekki borið á góma hjá okkur,“ sagði Ingvar Viktors- son, bæjarstjóri, aðspurður um hvort Hafnarfjaröarbær hefði hugleitt að bjóða eigend- um Columbia Ventures og iðn- aðarráðuneyti að skoða Straumsvíkursvæðið sem val- kost í umræðunni staðsetningu fyrirhugaðs áivers fyrirtækis- ins. „Ekki þar fyrir; þeim er auð- vitað velkomið að ræða við okk- ur, en eins og ég sagði þá hefur þessi möguleiki ekki verið rædd- ur í neinni alvöru af okkar hálfu eða neinar ákvarðanir verið tekn- ar þar að lútandi," sagði Ingvar. Eins og kunnugt er hefur verið mikil andstaða hjá íbúum í Hval- firði og Kjósarhreppi við áætlan- ir um fyrirhugað álver Columbia Ventures á Grundartangasvæð- inu, þótt ekkert bendi til þess sem stendur að staðsetningará- form muni breytast. Listamiðstöðin í Straumi Islenskir listamenn ívið fjölmennarí en eríenúir Samkvæmt samantekt um- sjónarmanns Listamiðstöðvar- innar í Straumi og Alþjóðlcga höggmyndagarðsins í Hafnar- firði, sent lögð var frant í menningarnefnd fyrir nokkru, voru gestir í Straumi 85 á ár- inu og voru þeir frá níu þjóð- löndum. Um helmingur þessa fjölda eða 42 voru á tímabundnu nám- skeiði í haust sem Bandalag kvenna í Hafnarfirði gekkst fyrir. Þá dvaldist tólf manna hópur frá Arkitektaskólanum í Bergen urn tíma í haust í Straumi í náms- ferð. Gestir eftir þjóðerni skipt- ust þannig að íslendingar voru 48 en útlendingar 37. I skýrslu umsjónarmanns segir ennfremur, að starfsemin hafi staðið með miklum blóma allt árið. Bókanir gesta hafi staðist í flestum tilvikum. í þeim tilvik- um sem um afbókanir hafi verið að ræða hafi í öllum tilvikum tekist að fylla í skörðin, ýmist af biðlista eða með þeirn umsókn- um sem menningarntálanefnd hafi borist. Þá segir jafnframt, að á árinu hafi óvenju margir listamenn kosið að deila með sér vinnuað- stöðu, þannig að fyrir vikið hafi rniklu fleiri dvalið í Listamið- stöðinni en ella hefði verið. Um málefni Alþjóðlega högg- myndagarðsins segir m. a. í skýrslunni, að vegna mjög tak- markaðra fjármuna hafi ekki verið hægt að ætlast til að nein veruleg starfsemi færi þar fram og einungis hafi verið unnt að sinna brýnustu viðhalds- og eft- irlitsverkefhum. Urn ástand verkanna í garðin- um er þess getið að nokkur þeirra séu í ágætu eða góðu ástandi, en önnur miður eða illa farin og brýnt sé að gæta að við- haldi. merkja verkin og stöpla allra verkanna þurfi að mála. Samningur framlengdur um sex mánuði Menningarmálanefnd samþykkti á fundi sínum á þriðjudag að frantlengja starfsamningi við umsjónar- mann Listamiðstöðvarinnar í Straumi, Sverri Olafsson, um sex mánuði eða til 1. maí nk. en samningur hans rann út 1. nóvember sl. Samkvæmt nýju stjórn- skipuriti Hafnarfjarðarbæjar sem taka á gildi 1. mars nk. er gert ráð fyrir að sérstakur starfsmaður menningarmála- nefndar verði ráðinn og á hans verksviði verði m. a. umsjá Listamiðstöðvarinnar í Straumi. Viö erum í HAMRABORG 1 W VÁTRVGGIXGAFÉLAG ÍSLWDS HF - þar sem tryggingar snúast um fólk HAMRABORG 1, 200 KÓPAVOGI, SÍMI 564 2540, FAX 554 2901 Framtalsaðstoð • Bókhalds og skattaráðgjöf • Reikningsskil • Skattaframtöl og skattaráðgjöf • Rekstrarráðgjöf og áætlanagerð • Stofnun og sameining félaga • Markaðsráðgjöf VIÐSKIPTAÞJÓNUSTAN Strandgata 25 Sími 565 5225 Fax 565 5225 Kripalujóga Hafnarfirði Almennir opnir tímar Grunnkennsla 24. jan. -14. mars á föstudögum kl. 14:00 -15:45 Sesselja K. Karisdóttir, hjúknmarfmóingur og Kripalujógakennari Upplýsingar og skrúning Sími: 565 0095 NEIRIHÁTTAR ÚTSALA Bldskel Strandgötu 41 sími 565 2566 . Aroma brauögeröarvél 0^Tilboðsverð kr. 16.500.-^\ 10-40% afsláttur á Ijósum Ýmis heimilistæki á góðu verði 'RAFBÚÐÍFT (3ÆLUDYR Allt fyrír fiskara, goggana og trýnin Goggar og Trýni ÁttU kis^ - leiðandi sérverslun - .0ii _ kattasandUB- Austurgötu 25, Hafnarfirði SPABAö - frábsert verð, Sími 565 0450 ÓtrU,e9Í Ur við a„ra ka«a hsef' °P'ð 10-12 og 13-18:30 e|9'n*el Laugardaga 10-14 heilbrigð dýr og topp vörumerki

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.