Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.05.2003, Blaðsíða 7

Fjarðarpósturinn - 22.05.2003, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 22. maí 2003 www.fjardarposturinn.is 7 Sumarbúðir KFUM og KFUK Kaldársel er á fallegum stað skammt fyrir ofan Hafnarfjörð í nágrenni Helgafells. Þar rennur Kaldá sem gefur staðnum skemmtilegan svip og tækifæri til að vaða í á hlýjum dögum. Hraunið í kring býður upp á fjölbreytt leiksvæði þar sem virki eru reist, móberg slípað og farið í búleiki. Umhverfis er stórfengleg náttúra, vinin Valaból, móbergsfjallið Helgafell, eldstöðin Búrfell, sprennandi hellar og gróin leiksvæði með möguleikum til margra leikja. Heima við er kjörið að þeysast í aparólunni og klifra í klifurgrindinni. Einnig eru stundaðar ýmsar íþróttir eins og fótbolti, frjálsar, brennibolti, borðtennis, körfubolti, krikket, skotbolti og að ganga á stultum. Þá er góður íþróttasalur til að leika og keppa í þegar illa viðrar úti. Hver dagur hefur fast skipulag sem býður þó upp á margvísleg viðfangsefni, allt eftir áhuga hvers og eins. Daglega er veitt fræðsla um kristna trú og Bilblíuna, kenndar bænir og vers og sungnir fjörugir söngvar. Flokkur Kyn Tímabll Dagar Aldur Fæð.ár Verð 1. flokkur Drengir 9.-13. júní 4 6-9 ára 1997-1994 13.100,- 2. flokkur Drengir 13. -18. júní 5 6-9 ára 1997-1994 16.400,- 3. flokkur ^ Drengir 18. -23. júní 5 7-10 ára 1996-1993 16.400,- 4. flokkur Stúlkur 23. - 27. júní 4 7-11 ára 1996-1992 13.100,- 5. flokkur l‘þl'4^ Stúlkur 27. júní - 2. júlí 5 7-11 ára 1996-1992 16.400,- 6. flokkur Drengir 2. - 7. júlí 5 7-10 ára 1996-1993 16.400,- 7. flokkur |1þj*^-^ Stúlkur 7.-14. júlí 7 7-11 ára 1996-1992 22.900,- 8. fl. Ævintýraflokkur Dr. og st. 21.-25. júlf 4 10-12 ára 1993-1991 13.100,- 9. flokkur Drengir 25. - 31. júlf 6 7-10 ára 1996-1993 19.600,- 10. flokkur Stúlkur 7.-13. ág 6 6-10 ára 1997-1993 19.600,- 11. flokkur Stúlkur 13. -19. ág 6 6-10 ára 1997-1993 19.600,- Rútugjald er innifalið í verði. — í hvern flokk komast 38 börn. Opið hús verður í Kaldárseli fyrir foreldra og velunnara sunnudaginn 25. maí kl. 14-17. Skráning er hafin á skrifstofu KFUM og KFUK s. 588 8899 www.kfum.is íbúðahverfi og lokið var gerð íþróttasvæðis á bakka tjamar- innar. Ymsir höfðu áhyggjur af þessum breytingum. Því voru settar ákveðnar reglur um umgang um friðlandið. Gerður var göngustígur umhverfis tjömina og var ætlunin sú að beina umferðinni um svæðið þannig að fuglalífið bæri ekki skaða af. Það er vel þekkt að villtir fuglar geta vel þrifist í nábýli við manninn, ef þess er gætt að ekki sé gengið um varpland þeirra og hundum ekki sleppt lausum. Góð dæmi um þetta er t.d. Bakkatjöm á Seltjamamesi, Tjörnin í Reykjavík, Bessastaðatjörn á Alftanesi og Hamarskotslækur. Bann ekki virt A öllum þessum stöðum er ríkulegt fuglalíf en hundum aldrei sleppt lausum. A þessu hefur orðið mikill misbrestur við Astjöm. Þar er bannað að vera með hunda en fólk hikar ekki við að koma með þá inn á svæðið, sumir hafa þá lausa, og sleppa jafnvel labradorhundunum sín- um til sunds á tjöminni. Einnig er mikilvægt að allir kettir á svæðinu séu með bjöllu á háls- ölinni og ekki ætti að láta þá vera lausa í nágrenni við fuglavarpið á vorin. Svipað vandamál og við Astjöm er einnig við Vífilstaða- vatn og Urriðakotsvatn vegna kæruleysis hundaeigenda. Aðeins eitt flórgoðapar A Astjöm em fuglamir að hverfa. Alftin er farin, öndum og gæsum hefur fækkað, kríuvarpið horfið og jaðrakanamir famir. I fyrravor var aðeins eitt flór- goðapar á tjöminni og hettu- máfsvarpið taldi aðeins 3 pör. Astæðan fyrir hmni fugla- lífsins á Astjöm er lausaganga hunda og að sumt fólk virðir ekki reglumar, um að ganga ekki utan göngustígana á varptíma. Það er staðreynd að ef að hundi er sleppt lausum í varplandi á vorin þá er voðinn vís og ef það gerist ítrekað, þá hverfa fuglamir á braut. Við þurfúm að endur- skoða umgengni okkar við Ástjöm, sérstaklega frá miðjum apríl og fram til loka júlí. Það er von mín að fólk átti sig á mikilvægi þess að hlíta um- gengnisreglum um friðlandið Ástjöm. Ef reglur em virtar ættu fuglamir að snúa aftur. Hettu- máfamir byija að verpa á ný og flórgoðamir í kjölfarið. Ástjöm mun þá aftur standa undir nafni sem fuglaparadís Hafhafjarðar. Einar Ó. Þorleifsson náttúrufræðingur: Ástjöm hefur lengi verið þekkt fyrir rficulegt fuglalíf. Vegna fuglalífsins var tjömin friðlýst árið 1978. Tjömin er í skjólgóðri kvos surtnan Ásfjalls og varð til þegar að hraun stíflaði dal- kvosina. Við Ástjöm er fjöl- breyttur gróður í móum, hraun- gjótum og hallamýri. f tjöminni sjálfri er mikill g vatnagróður og falleg breiða af j tjamarstör. Helstu fuglar sem hafa orpið ° við tjömina em stokkendur, urt- | endur, rauðhöfðaendur, skúfend- ur og toppendur. Grágæsir og álftarhjón hafa einnig orpið þar. I móunum og mýrinni em lóur, hrossagaukar, lóuþrælar og jað- rakanar. Þúfutittlingar og skógarþrestir em einnig algengir. í grýttum hlíðum em svo steindeplar. Kríuvarp hefur lengi verið þar, fáeinir tugir fugla og í tjamarstararbreiðunni hefur verið stórt varp hettumáfa, oft á bilinu 100-200 pör. Flórgoðinn I skjóli hettumáfsvarpsins hefur hinn fallegi flórgoði þrifist vel og hámark þeirra á vorin vanalega verið 12-16 fuglar en 4-5 pör orpið. Flórgoðanum fækkaði mikið víða um land vegna framræslu tjarna og tilkomu minks í íslenskt vist- kerfi, en einnig vegna þess að flórgoðar dmkkna ofit í silunga- netum sem em lögð of nálægt landi, t.d. á Mývatni. Talið er að þessi fækkun hafi numið allt að 80% af stofninum. Flórgoðamir á Ástjöm sluppu hinsvegar við þessar hremmingar og döfnuðu þar vel. Ástæða þess að flór- goðamir þoldu tilkomu minksins á Ástjöm var sambýlið við hettumáfinn sem varði varpið vel fyrir minkum og stærri máfum sem ræna ungum. Þrengt að svæðinu Fyrir fjómm ámm var ákveðið að þrengja að tjöminni með nýju Síðasta mánudag 19. maíhófst með formlegum hætti lands- söfnun Regnbogabama sem hlotið hefur heitið „Draumur að vemleika". Markmið draumsins er þrí- þætt. I fyrsta lagi að þjónustu- mið Regnbogabama sem þjóni öllu landinu verði að veruleika í húsi stofnunarinnar að Mjósundi 10 í Hafnarfirði, í öðru lagi að hægt verði að ráða sérfræðinga til að byggja upp og móta þá þjónustu sem helst ríður á að hafa til taks fyrir þá sém á þurfa að halda og í þriðja lagi að hægt verði að koma á laggimar víðtækri þjónustu fyrir einstakl- inga og hópa á landinu öllu, með því að bjóða upp á t.d. námskeið, fyrirlestra, fræðslufundi, að- gengilega og gagnvirka vefsíðu, bóka- og gagnasafn í þjónustu- miðstöðinni, hópastarf og lið- veislu, ýmis sérverkefni og út- gáfu fræðsluefnis. Söfhunin mun standa yfir í 3 vikur og ná hámarki um hvíta- sunnuhelgina þegar félagar í körfuknattleiksdeild Þórs mun dripla bolta hringinn í kringum langið til stuðning við söfnunina. Hring verður í fyrirtæki á land- inu og þeim boðið að heita á þessa einstæðu ferð körfu- knattleiksfólksins. Á nokkmm völdum stöðum á landinu verða haldnar veglegar körfubolta- hátíðir á vegum KKI. Regnboyabörn hefja sofnun Freyja fmmkvœmdastjóri, Stefdn Karlformaður og Péturfró KKl. Hrun fuglalífsins við Astjörn — Vegna óleyfilegrar lausagöngu hunda

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.