FÁ-blaðið - 01.09.1961, Síða 3
^élagsmál
Vetrarstarfið
F. Á.-blaðið þakkar félagsmönnum fyrir síðast og
býður þá velkomna til starfs að nýju, endurnýjaða og
auðgaða af reynslu og þekkingú á sviði ljósmyndagerð-
arinnar.
Vetrarstarfið er áformað með svipuðum hætti og
verið hefur undanfarið. Félagsfundir verða haldnir
einu sinni í mánuði og á sama stað og áður, í Breið-
firðingabúð, til jóla að minnsta kosti. Reynt verður
eftir föngum að hafa fræðandi efni hvers konar á fund-
unum. Væri mjög gagnlegt að heyra frá félagsmönn-
um, ef þeir geta bent stjórninni á fundarefni eða ennþá
betra, ef þeir vildu taka að sér stuttan dagskrárlið á
fundi. Með því móti yrðu fundirnir fjölbreyttari og
skemmtilegri.
Maífundurinn
Síðasti fundur var haldinn í Breiðfirðingabúð mánu-
daginn 29. maí s. 1. Varaformaður, Freddy Laustsen,
stjórnaði fundinum í fjarveru formanns.
Tvær inntökubeiðnir voru bornar upp og samþykkt-
ar. Síðan var greint frá úrslitum úr síðustu samkeppni,
„Torkennilegir hlutir“. Bezt og torkennilegust í senn
þótti mynd nr. 3 og hlaut hún 11 atk\. Eigandi reyndist
vera Freddy Laustsen.
Svavar Jóhannsson sýndi kvikmyndina Þjórsárdal-
ur, sem tekin er af Ósvald Knudsen, og var gerður
góður rómur að.
Greidd voru atkvæði um 19 myndir, sem borizt
höfðu í samkeppnina „Frjálst val“. Atkvæði voru talin.
strax að lokinni atkvæðagreiðslu, þar sem þetta var
síðasti fundur vetrarins. Úrslit féllu á þá leið, að mynd
nr. 11 hlaut 8 atkv., eigandi Freddy Laustsen. Mynd nr.
9 hlaut 7 atkv., eigandi Jón Bergsson og í þriðja og
vélar eru útbúnar með einhvers konar sveif, sem um
leið og henni er snúið, færir filmuna hæfilega mikið til
fyrir næstu myndatöku.
Þá er þessum þætti lokið, og er þess vænzt að ein-
hver sé betur undir það búinn að smella af en áður.
FÁ-BLAÐIÐ
er gefið út af Félagi úhugaljósmyndara,
Reykjavík, pósthólf 1367.
í rit- og framkvæmdanefnd eru:
Arni H. Bjarnason, Otti Pétursson, Stefán Nikulásson
og Ævar Jóhannesson.
Blaðið er aðeins fyrir félagsmenn.
l’RENTSM IÐJAN UÓI.AR H F
V_________________________?_______________________)
fjórða sæti voru myndir nr. 4 og 16, eigandi Jón Ein-
arsson.
Myndasamkeppnirnar
I maíblaði F. Á. var skýrt frá myndasamkeppnum
þeim, sem áformað er að hafa fyrri hluta vetrar, en
rétt þykir að rifja það upp aftur.
Fyrir septemberfund verður verkefnið „Kolakran-
inn“, fyrir októberfund „Frjálst val“ og fyrir nóv-
emberfund „Ljósastaur“. Stjórnin væntir þess, að fé-
lagsmenn hafi notað sumarið til undirbúnings fyrir
þessar þrjár samkeppnir, sem voru þegar kunngerðar í
maímánuði s. 1., og mæti með myndir sínar á fundum.
Urval litskuggamynda.
Þeir félagsmenn, sem tekið hafa litskuggamyndir
eru beðnir að koma með 3-5 myndir eftir eigin vali til
sýningar. Það skal tekið fram, að þetta eiga að vera
valdar myndir úr safni hvers eins. Myndirnar verða
síðan sýndar, og er ætlazt til að eigendur svari fyrir-
spurnum og aðrir áhorfendur gagnrýni. Hugmyndin er
einnig að gera samanburð á filmutegundum.
Gjalddagi árgjaldsins, kr. 75, var 1 .apríl.
Vinsamlegast gerið skil —
gjaldkeri er á íundum.
Vinnustofan er á Hringbraut 26.
FÁ-BLAÐIÐ
3