Fréttatíminn - 30.12.2011, Side 8
Botnsúlur í Hvalfirði er
eitt þeirra 52 fjalla sem á
verður gengið á árinu 2012.
Ferðalög FerðaFélag Íslands
Heklu skipt út fyrir Vestmannaeyjar
Verkefnið 52 fjöll eða Eitt fjall á viku á
vegum Ferðafélags Íslands er nú að fara
af stað í þriðja sinn. Verkefnið hefur notið
mikilla vinsælda og að sögn Páls Ásgeirs
Ásgeirssonar verkefnisstjóra hafa hátt
í annað hundrað manns tekið þátt bæði
árin.
„Í öllum meginatriðum verður verkefnið
með svipuðu móti og verið hefur undan-
farin tvö ár. Þó eru alltaf smávægilegar
breytingar milli ára sem mótast af reynsl-
unni sem safnast fyrir. Þannig hefur til
dæmis Hekla verið tekin af dagskránni og
skemmtiferð til Vestmannaeyja sett á dag-
skrá í staðinn en þar ganga þátttakendur
á hæstu fjöll Heimaeyjar og kynnast
menningu eyjarskeggja,“ segir Páll Ás-
geir. Hann bætir því við að það hafi verið
sérlega ánægjulegt að sjá hversu margir
þátttakendur hafa tekið miklum fram-
förum á árinu sem er að líða. „Þybbnar
sófakartöflur eru orðnar að grannvöxnum
og stæltum fjallagörpum með blik í auga
og fjaðurmagn í spori,“ segir Páll Ásgeir.
Fararstjórar 52 fjalla hópsins á nýju ári
verða: Páll Ásgeir Ásgeirsson, Rósa Sig-
rún Jónsdóttir, Hjalti Björnsson, Brynhild-
ur Ólafsdóttir, Anna Lára Friðriksdóttir
og Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson.
Þau eru öll þrautþjálfaðir reynsluboltar
með fjölbreyttan feril að baki og ólíka
þekkingu á ýmsum sviðum. -óhþ
Aukin þekking - fjárfesting til framtíðar
Háskóli Íslands býður upp á úrval námskeiða
í viðskiptafræði með vinnu.
Dæmi um námskeið á vormisseri 2012:
- Verkefnastjórnun - Inngangur að fjárhagsbókhaldi - Stefnumótun fyrirtækja
- Markaðsfærsla þjónustu - Rekstrarstjórnun - Fjármálamarkaðir
- Alþjóðamarkaðsfræði og markaðsáætlanir - Stjórnun og skipulagsheildir
Skráðu þig á www.bsv.hi.is
Náðu árangri með
Fréttatímanum
*Capacent nóvember 2011
**Capacent september 2011
Dreifing með Fréttatímanum er ávísun á
árangur - skilaboðin rata til sinna.
92,8% íbúa á höfuðborgarsvæðinu
segjast vita að Fréttatíminn berst á
heimilið *
65% blaðalesenda á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann í viku
hverri.**
Þ rátt fyrir aukinn styrk og bætta heilsu eldri borgara sem lyftu lóðum á þriggja
mánaða líkamsræktarnámskeiði
í World Class í Hafnarfirði hætti
meirihluti þeirra að lyfta þegar
námskeiðinu lauk. Þeir sem
stunduðu reglulega hreyfingu
áður héldu frekar áfram, segir
Ólöf Guðný Geirsdóttir, nær-
ingarfræðingur og nýútskrifuð
úr doktorsnámi.
„Þeir sem höfðu lítið sem ekk-
ert hreyft sig fyrir námskeiðið
hættu frekar en hinir. Þeir höfðu
þó aukið styrk sinn, hreyfihæfni
og bætt lífsgæði sín mest og því
voru það nokkur vonbrigði að
þau skyldu ekki halda áfram að
stunda styrktaræfingar.“
Ólöf Guðný vann rannsókn á
áhrifum styrktaræfinga á færni
237 eldri borgara á þriggja ára
tímabili, frá hausti 2008, í námi
sínu í samvinnu við Rannsóknar-
stofu í næringarfræði við HÍ og
Landspítala. Hún varði ritgerð
sína nú rétt fyrir jólin.
„Margt eldra fólk syndir og
gengur sem er gott til að við-
halda þreki, en nægir ekki til
að viðhalda vöðvastyrk,“ segir
hún. „Það er mjög mikilvægt að
viðhalda vöðvastyrk, svo að fólk
haldi hæfni til að hreyfa sig; geti
bjargað sér og lifað eðlilegu lífi.
Geri eldra fólk það þarf það ekki
að biðja um hjálp og vera öðrum
háð.“
Á námskeiðinu voru helstu
vöðvar líkamans styrktir og
passað að þátttakendur lærðu
réttu handtökin í tækjasal. Ólöf
hitti fólkið aftur sex til átján mán-
uðum eftir þátttökuna og mældi.
„Þau sem héldu áfram að lyfta
og hreyfa sig héldu styrk sínum
langbest,“ segir hún. „Styrkt-
aræfingarnar höfðu meiri áhrif
hjá konum en körlum. Þær lyfta
allra síst og kjósa heldur að
brenna, sem eykur ekki vöðva-
massa. Fyrir erum við konur
einnig með minni vöðvamassa
en karlar og vöðvastyrk og þegar
hann rýrnar hefur það áhrif
á hreyfihæfni okkar og sjálfs-
björg.“
Niðurstaða rannsóknarinnar
var að þátttakendum leið al-
mennt betur eftir námskeiðin en
fyrir. „Þeim fannst þau vera lík-
amlega betur á sig komin og al-
mennt hraustari. Þau höfðu meiri
orku og sögðu líka að þau væru
félagslega virkari enda hittu þau
marga og fannst gaman.“
Ólöf Guðný segir að þau sem
hættu að hreyfa sig hafi sagt að
hefðu þau haft þjálfara sem tæki
á móti þeim; einhvern sem þau
þekktu og þekkti til takmarkana
eldra fólks hefði þau viljað halda
áfram.
„Niðurstaðan sýnir okkur að
við þurfum að byrja að hreyfa
okkur strax í leikskóla og halda
því áfram í gegnum lífið,“ segir
hún og spyr hvers vegna ekki
megi greiða niður íþróttir eldra
fólks eða koma upp námskeiðum
með fagfólki sem eldra fólk geti
gengið að sem vísu. Eldra fólk sé
meðvitað um mikilvægi hreyf-
ingar en viti sjaldan hvaða hreyf-
ing skili mestum árangri.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
HreyFing yFir tvö Hundruð eldri borgarar lyFtu lóðum Í HaFnarFirði
Lyftu og bættu lífsgæðin
en hættu samt í ræktinni
Eldri borgarar sem sóttu þriggja ára líkamsræktarnámskeið og leið betur eftir en áður hættu
samt að æfa að námskeiðinu loknu. Vaninn dró þá aftur í sófann. Næringarfræðingur segir
nauðsynlegt að hreyfa sig frá blautu barnsbeini, konur þurfi að stunda styrktaræfingar. Ekki
nægi að synda eða ganga.
Um fjórðungur eldra fólks sem tók þátt í
rannsókn um áhrif styrktaræfinga borðaði of
lítið að sögn dr. Ólafar Guðnýjar Geirsdóttur
næringarfræðings. „Mun fleiri konur borða of
lítið en karlar.“ Þessa varð Ólöf áskynja þegar
hún vann rannsókn um áhrif styrktaræfinga á
aukinn vöðvamassa eldra fólks. Nauðsynlegt
hafi verið að auka matarskammta þessa hóps
svo hann skaðaði sig ekki með því að brenna
þeim litla vöðvamassa sem það hafði í stað
þess að auka hann.
„Eldra fólk er almennt meðvitað um að það
eigi að passa mataræðið. Það veit allt um
hreyfingu og hollt mataræði. Það gerist því hjá
sumum að þeir minnka skammtinn um of með
árunum. Þegar árin færast yfir höfum við oft
minni áhuga og ánægju af mat. Einnig getur
það gerst að þegar við tökum út fæðutegundir
sem okkur þykja góðar vegna hjarta- og æða-
sjúkdóma minnkar ánægja okkar af mat og við
förum ómeðvitað að borða of lítið.“
Ólöf Guðný segir rétt að orkuþörf minnki
aðeins með aldrinum en næringarþörf sé þó
nánast sú sama sem þýði að sérstaklega þurfi
að vanda fæðuval með árunum. „Orkuþörf
minnkar vegna þess að vöðvamassi minnkar
og tap á honum margfaldast eftir sextugt.“
Styrktaræfingar eru því nauðsynlegar.
Ólöf Guðný
Geirsdóttir,
næringar-
fræðingur.
Eldra fólkið sem tók þátt í rannsókn um
áhrif hreyfingar fann ekki aðeins fyrir betri
líkamlegri líðan heldur einnig andlegri.
Mynd/ Ólöf Guðný
8 fréttir Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012