Fréttatíminn - 31.08.2012, Síða 52
Bækur, ritföng,
rammar og leikföng
Tilboð á myndarömmum 30%
og kiljum 20% I tilefnidagsins.
M arkmiðið með þessari bæjarhátíð okkar, Hamraborgarhátíðinni, er að glæða gamla miðbæinn í
Kópavogi lífi,“ útskýrir Arna Schram, upp-
lýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, en hátíðin
á fyrst og síðast að vera sjálfbær hátíð þar
sem „fólkið sjálft, fyrirtækin og stofnanirn-
ar búa til sína eigin viðburði.“
Samkvæmt Örnu eru flóamarkaðirnir vin-
sælastir og þá sér í lagi sú hefð sem skapast
hefur á hátíðinni, að íbúar á mæti á bílum
sínum og selji gamla muni úr skottinu. Í ár
hafa 60 manns boðað komu sína og skráð
sig en færri komast að en vilja til að selja.
„Þetta er mjög vinsæll viðburður og bæði
gaman að selja og kaupa. Þarna hefur oft
myndast ótrúleg stemning.“
Síðan eru öll fyrirtækin og veitingastað-
irnir með tilboð á sínum vörum og þjónustu.
Til dæmis verður Nytjamarkaðurinn með
tilboð á lottómiðum og það verður pylsuhá-
tíð þarna, brandarakeppni og mikið stuð.
„Þarna skammt frá eru líka menningar-
stofnanir bæjarins: Gerðarsafn, Salurinn,
Tónlistarsafn Íslands, Moli menningarhús
ungmenna, Náttúrufræðistofa og bóka-
safn,“ segir Arna og býður alla velkomna,
Kópavogsbúa jafnt sem utanbæjarfólk.
Hátíð HaMraborgarHátíðin verður Haldin í Kópavogi uM Helgina
Skottsalan vinsælust
Um helgina verður Hamraborgar
hátíðin haldin í Kópavogi.
Brandarakeppni, pylsuhátíð,
flóamarkaðir og tilboð á lottómiðum
svo eitthvað sé nefnt. Arna Schram
lofar sjálfbærri bæjarhátíð sem
bæjarbúar sjálfir skapa.
Það verður margt um manninn á Hamraborgarhátíðinni nú um helgina.
Í fyrra skapaðist þvílík stemning, sjálfbær, í Hamraborginni.
Gaman að kaupa og selja. Gamlir munir seldir úr skottinu.
40 hátíð Helgin 31. ágúst2. september 2012