Fjarðarpósturinn - 04.01.2007, Page 7
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 4. janúar 2007
www.fjardarposturinn.is
Ráðsmaður/kirkjuþjónn/meðhjálpari
Sóknarnefnd Hafnarfjarðarkirkju auglýsir hér með laust til umsóknar starf
ráðsmanns/kirkjuþjóns/meðhjálpara við Hafnarfjarðarkirkju.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í janúar 2007.
Í umsókn sinni skal umsækjandi gera grein fyrir menntun, fyrri störfum og meðmælendum.
Umsóknarfrestur er til 8. janúar nk.
og skal skriflegum umsóknum merktar: „Ráðsmaður/kirkjuþjónn/meðhjálpari“
skilað til sóknarnefndar Hafnarfjarðarkirkju v. Strandgötu, pósthólf 395, 220 Hafnarfjörður.
Sjálfstæðisflokkurinn
Fyrstan skal fremstan telja.
Sjálfstæðisflokkinn sem varð til
við samruna Íhaldsflokksins og
Frjálslyndaflokksins árið 1929
og hefur lengst af
verið stærstur og
áhrifamestur íslenskra
stjórnmálaflokka allar
götur síðan. Eftir að ég
komst til vits og ára
hef ég bundið mitt
trúss við þenn flokk nú
í næstum hálfa öld,
þrátt fyrir kratískt upp-
eldi á Ísafirði. En sá
sjálfstæðisflokkur sem
ég gekk í fyrir hálfri öld, flokkur
Ólafs Thors og Bjarna Ben. (og
auðvitað Matta Matt líka), hefur
tekið miklum stakkaskiptum síð-
an, eins og reyndar aðrir flokkar.
Eftir daga þessara fyrnefndu
heiðursmanna tóku við menn
eins og Jóhann Hafstein og Geir
Hallgrímsson miklir ágætismenn
sem héldu í horfinu. En með
tilkomu Þorsteins Pálssonar sem
íllu heilli spyrnti ekki við fótum
þegar hið íllræmda kvótakerfi
Halldórs Ásgrímssonar var tekið
upp, fór að halla undan fæti fyrir
frjálslynda hægri menn.
Kvótakerfið er í mikilli andstöðu
við yfirlýsta stefnu
Sjálfstæðisflokksins
um frelsi einstaklinga
til orðs og æðis og
gegn hvers konar höft-
um og ófrelsi í
atvinnulífinu. Ekki er
hægt að finna
hliðstæðu við þetta
kerfi fyrr en aftur í
miðöldum, þ.e.s.
einokunarverslunina
dönsku. Þetta er einskonar
nútíma lénskerfi (feudalism).
Með tilkomu Davíðs Oddssonar
tóku frjálshyggjumenn að láta æ
meir að sér kveða og hafa
reyndar ráðið ferðinni allar götur
síðan. Skoðanakannanir gefa í
skyn að það séu einkum
miðaldra fólk og eldri borgarar
sem styðja Sjálfstæðisflokkinn á
meðan yngra fólk fylkir sér í
auknum mæli um vinstri
flokkana. Það eru því helst ég og
mínir jafnaldrar sem viðhalda
yfirburðafylgi Sjálfstæðisflokks-
ins í dag. Þetta er fólk sem er
sauðtryggt í eðli sínu og getur
vart hugsað sér að kjósa aðra
flokka. En þegar það hverfur af
sjónarsviðinu þá er hætt við því
að fylgið dvíni hratt ef ekki verð-
ur horfið frá þeirri stefnu sem nú
einkennir flokkinn og það hugar-
far sem að baki liggur eða villta-
vesturshugsunarháttinn sem tel-
ur að allir sem ekki geta séð um
sig sjálfir hjálparlaust megi drep-
ast því þetta séu aumingjar hvort
eð er. Sjálfstæðisflokkurinn er að
breytast úr flokki allra stétta (í
húsi mínu eru mörg híbýli) í
flokk auðmanna og viðskipta-
jöfra, en það fólk er varla 40% af
þjóðinni eða hvað? Nei flokkur-
inn er stór vegna þess að fjöldi
almennra borgara sem langflestir
eru launafólk hefur treyst honum
til að fara með sín mál. Það traust
fer nú þverrandi.
Með sama áframhaldi mun
Sjálfstæðisflokkurinn falla niður
í flokk íhaldsflokka í Skandinav-
íu og verða 20% flokkur á
skömmum tíma. Flokkurinn þarf
nú að taka sig á í krafti þess
styrks og valds sem hann hefur í
ríkismálunum og leiðrétta mis-
tökin sem gerð hafa verið og það
mikla ranglæti sem ríkir í líf-
eyris- og tryggingamálum al-
mennra launþega og öryrkja.
Flokkurinn hefur alla burði til
þess að kippa þessum hlutum í
lag. Vilji er allt sem þarf.
Samfylkingin
Tilraun vinstrimanna til að
sameinast í einum flokki og þar
með ná að yfirbuga Sjálf-
stæðisflokkinn tókst ekki nema
að hálfu leiti þar sem vinstri
sósíalistarnir í Alþýðubandalag-
inu gátu ekki hugsað sér að starfa
með krötum. Þeir sem lögðu það
á sig að ganga í samfylkinguna
eiga margir í erfiðleikum með
samstarfið. Það vantar allt traust
í þetta samstarf. Það bíður nýrra
leiðtoga að bræða þetta endan-
lega saman. Vegna þessarar
sundrungar í röðum vinstri
manna hafa margir vinstri sinnar
vantrú á Samfylkingunni og hafa
í vaxandi mæli fylgt sér um
Vinstri græna sem leggja mikla
áherslu á að hasla sér völl sem
flokkur náttúruverndar og um-
hverfismála og hafa því fengið
fylgi frá fólki sem er þannig
hugsandi en finnst að hinir
flokkarnir séu ekki að standa sig
í umhverfismálunum. Auk þessa
á Samfylkingin í leiðtogavand-
ræðum þar sem núverandi for-
maður hennar, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, gerði afdrifarík mis-
tök þegar hún sveik kjósendur
sína í Reykjavík með því víkja
úr borgarstjórastóli til að freista
gæfunnar á Alþingi. Ingibjörg
þarf að taka á honum stóra sínum
og sína meiri yfirvegun þegar
hún lætur í sér heyra. Átök henn-
ar við Össur Skarphéðinsson
hafa heldur ekki verið flokknum
til framdráttar. Það er því langt
að bíða þess að Samfylkingin nái
að veita Sjálfstæðisflokknum
verðuga samkeppni.
Höfundur er fyrrverandi
flugumferðarstjóri.
Kjósa hvað? – Hvað er í boði?
Hugleiðingar um íslenska stjórnmálaflokka í tilefni komandi kosninga — Fyrri hluti
Hermann
Þórðarson
Við hjálpum þér
að standa við
áramótaheitið
Heilsuklúbbur
Rakelar og Sindra
869 7090, 861 7080
www.kolbrunrakel.is
GEYMDU AUGLÝSINGUNA
Körfubolti
Úrvalsdeild kvenna:
Haukar - UMFG: 82-81
Úrvalsdeild karla:
Hamar/Selfoss - Haukar: 99-86
Næstu leikir:
Körfubolti
4. jan. kl. 19.15, Sauðárkrókur
Tindastóll - Haukar
(úrvalsdeild karla)
9. jan. kl. 19.15, Kennarahásk.
ÍS - Haukar
(úrvalsdeils kvenna)
Handbolti
5. jan kl. 18, Kaplakriki
FH - Akureyri
(úrvalsdeild kvenna)
5. jan. kl. 20, Kaplakriki
FH - Haukar 2
(1. deild karla)
6. jan. kl. 15, Framhús
Fram - Haukar
(úrvalsdeild kvenna)
10. jan. kl. 19, Ásvellir
Haukar - ÍBV
(úrvalsdeild kvenna)
Íþróttir
Voru keypt rétt tæki til söndun-
ar? Eru gangstéttar of mjóar?
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n