Fjarðarpósturinn - 11.01.2007, Blaðsíða 1
Samkomulag hefur orðið um
að Landsnet sendi 4 tillögur til
Skipulagsstofnunar sem hluta af
tillögu að matsáætlun vegna
lagningar háspennulínu að áætl-
aðri stækkun álversins í Straums-
vík. Línustæðin verða tvö, annars
vegar í núverandi stæði Hamra-
neslínu 1 og 2 og Hnoðraholts-
línu, í gegnum Hnoðraholt, Ás-
flatir og að Hamranesi og hins
vegar í núverandi og breytt línu-
stæði Búrfellslínu 2.
Hafnarfjarðarbær mælir ein-
dregið með útfærslu þeirri sem
sýnd er hér að neðan þar sem
línur fari í jörð sunnan við Ás-
fjall og að núverandi tengivirki
við Hamranes. Búrféllslína 3 og
Kolviðarhólslína 2 fari úr stæði
Búrfellslínu suðvestan við Stór-
höfða og stefni í vestur að nýju
tengiverki í Hrauntungum og
þaðan vestan við núverandi iðn-
aðarsvæði að álverinu.
Kostnaður við að leggja lín-
urnar í jörð er verulegur en
óstaðfestar heimildir herma að
Alcan sé reiðubúið til að greiða
kostnaðinn af því um 900 millj-
ónir kr. skv. sömu heimildum.
Þetta fékkst ekki staðfest hjá
Alcan sem á í viðræðum við
Landsnet.
ISSN 1670-4169w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
2. tbl. 25. árg. 2006
Fimmtudagur 11. janúar
Upplag 8.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.66north.is
Miðhraun 11 - Sími 535 6600
Opið
alla daga
til 21
HVALEYRARBRAUT
www.as.is
Sími 520 2600
Niðurgreitt til
14 ára og yngri
Hafnarfjarðarbær hækkaði
um síðustu áramót viðmiðunar-
aldur vegna niðurgreiðslna á
þátttökugjöldum í íþróttum og
félagsstarfi barna upp í 14 ár,
unglinga fæddra 1993.
Hafði áður verið greitt til 12
ára aldurs. Í fjárhagsáætlun
bæjarins er gert ráð fyrir að
þessi aukning á stuðningi við
íþrótta - og æskulýðsstarf kosti
sveitarfélagið 20 millj. kr.
Með eða á móti
Alcan birtir á
næstunni
niðurstöður
úr skoðana-
könnun
Alcan lét á dögunum gera
viðamikla könnun á viðhorfum
Hafnfirðinga til stækkunar-
áforma og barst þeim niður-
staða hennar á þriðjudaginn.
Hrannar Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Alcan vildi engu
svara um niðurstöður hennar
en sagði að þær verði skoðaðar
innan fyrirtækisins og svo
birtar opinberlega, vonandi í
næstu viku.
87,3% bæjarbúa eru hins
vegar sammála því að þeir fái
að kjósa um meiriháttar mál-
efni í Hafnarfirði.
Háspennulínur fari í jörð
sunnan við Ásfjall
Fjórar útfærslur í tillögu að matsáætlun
Valkostur 2 sem bæjaryfirvöld í Hafnarfirði vilja helst.
ICETREND
Verslunarmiðstöðinni Firði, 2. hæð
ÚTSALA – ÚTSALA
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n/
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
–
0
70
1
30%
30% afsláttur á öllum vörum
Valkostur 1
Valkostur 3
Valkostur 4