Fjarðarpósturinn - 11.01.2007, Qupperneq 2
Úrval fiskrétta
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. janúar 2007
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.hafnarf jardark i rkja. is
Fróðleiksmolar á
Byggðasafninu
18. janúar kl. 20. Sigrún Ólafsdóttir
þjóðfræðingur flytur erindið „Þorra
konungi Frostasyni fagnað“ þar sem
brugðið verður upp matarlegri sýn á
þorrann og því velt upp hvort
samtíminn hafi fært gamlar hefðir
þorrans í rangan búning.
Færeyskir listmálarar í
Hafnarborg
Í dag kl. 17 verður opnuð í Hafnarborg
málverkasýningin Einsýna List, en
sýningin er sett upp í samvinnu við
Norðurlandahúsið í Færeyjum, Lista-
safnið í Þrándheimi og Nordatlantens
Brygge í Kaupmannahöfn. Verk á
sýningunni eiga listamennirnir Edward
Fuglø, Astri Luihn, Sigrun Gunnars-
dóttir, Torbjørn Olsen, Eyðun av Reyni
og Ingálvur av Reyni.
Færeyskir listmálarar hafa lengi sótt
innblástur í stórbrotið umhverfið og
hafið sem umlykur eyjarnar. Verkin á
sýningunni Einsýna List sýna svo ekki
verður um villst, að landslagið er enn
áhrifavaldur í færeyskri myndlist þó
málverkin hafi vissulega módernistískt
yfirbragð og myndefnin séu fjöl-
breyttari.
Sýningar Kvikmyndasafnsins
Á laugardaginn kl. 16 verður sýnd
myndin Au revoir enfants ('87) í
leikstjórn Louis Malle.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
myndin ítalska kvikmyndin Il ladro di
bambini sem á íslensku var kölluð
Stolnu börnin. Lögreglumaðurinn An-
tonio á að fylgja tveimur börnum frá
Mílanó á upptökuheimili á Sikiley. Í
fyrstu eru samskipti hans og barn-
anna harðdræg en smám saman lægir
öldurnar og þau verða bestu vinir. Á
leiðinni gerast ýmsir hlutir sem ekki
var gert ráð fyrir í upphafi ferðarinnar
og vegna vináttu og tryggðar við
börnin teflir lögreglumaðurinn á tæp-
asta vað.
Af hverju kusum við bæjarstjórn? Jú, til að
taka ákvarðanir. Af hverju á þá að fara að kjósa
um eitt deiliskipulag? Af því að Samfylkingin
lofaði bæjarbúum að kosið yrði um meiriháttar
mál! Jæja, hver metur hvað sé meiriháttar mál?
Er nýtt línustæði fyrir háspennulínur meiriháttar
mál? Það getur nú aldeilis haft áhrif á framtíðar
íbúðarsvæði. Kannski of langt fyrir stjórnmála
menn sem hugsa í 4 ára tímabilum að hugsa svo
langt fram í tímann. Er blokkarbáknið á Norður-
bakkanum meiri háttar mál? Er milljónaframlag til íþrótta- og
tómstundaiðkunar meiriháttar mál? Eða á kannski bara að kjósa um
„neikvæð“ mál? Mér finnst þessi fyrirhugaða kosning hreinasta bull
og bæjarstjórinn í Reykjanesbæ sagði réttilega að ef kjósa hefði átt
um staðsetningu álvers við Helguvík hefði átt að gera það miklu
fyrr. Annars finnst mér öfugsnúið þegar forstjóri Alcan á Íslandi
heldur því fram að ekki verði hægt að reka álver í núverandi stærð
í framtíðinni. Það gengur mjög vel nú, lágt raforkuverð og góður
hagnaður. Hvað skyldi kosta móðurfélagið að leggja slíkt ver niður?
Ég frábið mér svona röksemdafærslu. Auðvitað vilja fyrirtæki
stækka og eflast en það eiga þau ekki að gera á kostnað samvisku
bæjarbúa Hafnarfjarðar. Hins vegar finnst mér líka öfugsnúið þegar
andstæðingar stækkunar stíga upp í stóra bíla sína og aka á brott
spúandi mengun frá sér. Ég skil vel að menn vilji verja umhverfið
en þurfum við þá ekki að taka til í eigin bakgarði? Ég hvet
bæjarbúa, með eða á móti stækkun að fara út í iðnaðarsvæði í
Hellnahrauni. Sjáið umgengnina þar. Er það svoleiðis iðnaðarsvæði
sem við viljum fá? Horfum víðar á málið og látum svo stjórnmála-
mennina gera það sem þeir eru kosnir til.
Guðni Gíslason
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 14. janúar
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00
Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna
Guðsþjónusta kl. 13.00
fyrir eldri borgara í Víðistaðasókn,
Garðasókn og Bessastaðasókn
Prestar: Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
og sr. Friðrik J. Hjartar
Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns
Baldvinssonar.
Kaffiveitingar og dagskrá á eftir í boði
Víðistaðakirkju.
Fram koma: Gaflarakórinn og
Sigurður Skagfjörð einsöngvari.
Boðið verður upp á rútuferð frá Hjallabraut 33
kl. 12.40 og frá Hrafnistu kl. 12.50.
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara á
miðvikudögum kl. 13.00
Spil, spjall og kaffiveitingar
Foreldrastundir
á fimmtudögum kl. 13.00
Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra.
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
4. Lækurinn - Gönguleið að
miðbæ
Lagðar fram umsagnir skipu-
lags- og byggingarráðs og um-
hverfisnefndar/Staðardagskrá 21
Framkvæmdaráð felur fram-
kvæmdasviðinu að skoða málið
nánar á milli funda.
7. Suðurbraut, umferðaröryggi
við Smáralund
Lagt fram erindi Foreldrafélags
Smáralundar varðandi umferðar-
öryggi við leikskólann. Skipulags-
og byggingarráð vísar erindu til
afgreiðslu framkvæmdaráðs.
Framkvæmdaráð vísar málinu
til framkvæmdaráætlunar 2007.
8. Víðistaðaskóli stefna
Lögð fram stefna ÁF-hús vegna
verksamnings. Lárus Blöndal hrl.
lögmaður Hafnarfjarðarbæjar í
málinu, mætti á fundinn og gerði
grein fyrir málinu. Einnig mætttu
Indriði Þorkelsson hdl og Arnar
Smári Þorvaldsson eftirlitsmaður
verksins frá Verkþjónustu Kristjáns.
Framkvæmdaráð þakkar kynning-
una og mun fylgjast með málinu.
36. Austurgata 22, Rífa hús
Lagt fram bréf dags. 26.10.´06
frá Batteríinu f.h. Austurgötu ehf.,
þar sem óskað er eftir að breyting
verði gerð á deiliskipulagi miðbæj-
ar, reit R5, samkv. meðf. upp-
drætti. Lagður fram deiliskipulags-
uppdráttur Batterisins dags.
26.10.06, þar sem sýnd er heimild
til að rífa og fjarlægja íbúðarhúsin
að Austurgötu 22 og 22b. Á fundi
29.09.06 veitti skipulags- og bygg-
ingarráð umsækjanda heimild til að
vinna tillögu að breytingu á deili-
skipulagi. Erindið var til umfjöllunar
á afgreiðslufundi skipulags- og
byggingarfulltrúa 01.10.06 og
vísað til skipulags- og byggingar-
ráðs. Auglýsinga- og athuga-
semdatíma lokið, engar athuga-
semdir bárust. Skipulags- og bygg-
ingarfulltrúi samþykkir erindið og
að því verði lokið skv. 26. gr.
skipulags- og byggingarlaga.
Fiskur veitir sálarró
Sunnudaginn 14. janúar
Guðþjónusta kl. 11
Prestur: sr. Þórhallur Heimisson
Ræðuefni: Á ég að gæta bróður míns?
Organisti: Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Kór kirkjunnar leiðir söng.
Sunnudagaskóli
á sama tíma í safnaðarheimili
og í Hvaleyrarskóla.
Opið hús
Eins og undanfarin ár stendur
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar
fyrir opnu húsi öll fimmtu-
dagskvöld í vetur og verður
fyrsta opna hús nýs árs í kvöld,
fimmtudag kl. 20 í sal félagsins
að Flatahrauni 29. Margt verður
gert til skemmtunar í vetur,
hnýtingar, kynningar, fluguhnýt-
ingakeppni og svo hið rómaða
lokakvöld á síðasta vetrardag.
Húsið er öllum opið, jafnt félags-
mönnum sem öðrum og eru allir
stangaveiðimenn hvattir til að
sýna sig og sjá aðra og góðar
veiðisögur eru alltaf vel þegnar.