Fjarðarpósturinn - 11.01.2007, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. janúar 2007
www.fjardarposturinn.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Eldsneytisverð
10. janúar 2007 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 111,2 112,0
Atlantsolía, Suðurhö. 111,2 112,0
Esso, Rvk.vegi. 112,7 113,5
Esso, Lækjargötu 112,7 113,5
Orkan, Óseyrarbraut 111,1 111,9
ÓB, Fjarðarkaup 111,2 112,0
ÓB, Melabraut 111,2 112,0
Skeljungur, Rvk.vegi 112,7 113,5
Öll verð miðast við sjálfsafgreiðslu og
eru fundin á vefsíðu olíufélaganna.
60 m² íbúð m/ húsgögnum til leigu
í 4 mánuði frá 15. janúar - 15 maí.
Reglusemi og reykleysi áskilið. Verð
90 þús. á mán. Uppl. í s. 822 8444.
Get tekið að mér heimilisþrif í
Hafnarfirði og aðliggjandi
nágrannabyggðum. Löng og farsæl
starfsreynsla er fyrir hendi.
Uppl. í s. 662 1572 og 553 5294.
Ég er góður, traustur Herbalive
dreifingaraðili í Hafnarfirði.
Er með heilsuklúbb. Gerður
Hannesdóttir s. 565 1045,
865 4052.
Hefur þú tíma fyrir tvo
strákhnoðra sem vantar góða
ömmu með gott hjartalag til
að passa á kvöldin og á
meðan mamma er í
leiðsögunámi?
Uppl. í síma 864 7452.
Hvít 66° N barnahúfa fannst fyrir
utan Nóatún, glæný og merkt Lilju
Katrínu.
Upplýsingar í síma 863 4963
Við fundum kistil í garðinum okkar
í Fjóluhvammi í nóvember sl. Í
kistlinum eru ýmsar persónulegar
upplýsingar, m.a. um Patrick og
Gerard Wall frá Waterford, Írlandi
sem við viljum endilega koma til
eiganda síns.
Upplýsingar í s. 822 1999.
Nýlegir takkaskór fundust á
bílastæðinu fyrir utan Dominos á
milli jóla og nýárs.
Upplýsingar í s. 555 3033.
Giftingahringur tapaðist fyrir
jól. Inn í honum stendur m.a. „Þín
Ida“. Fundarlaun.
Uppl. í s. 899 3337.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
Tapað - Fundið
„Amma“ óskast
Heilsa
Þrif
Húsnæði í boði
HEILSA
Fjárfestu í líkamanum og komdu
þér í gott form með Herbalife.
Heilsuráðgjöf, eftirfylgni.
Ingibjörg, hjúkrunarfr. 691 0938
Mig langar að nefna nokkrar
ástæður þess að ég er ekki
samþykk fyrirhuguðum áform-
um um stækkun ál-
bræðslunnar í Straums-
vík úr 170 þúsund
tonnum í 460 þúsund
tonn.
1. Sjónmengun:
Verksmiðjan er tæpur
kílómetri á lengd, ef af
stækkun verður, verð-
ur hún jafn breið og
hún er löng í dag. Frá
Völlunum, Áslandi og
Holtinu er mikil sjón-
mengun af verksmiðjunni eins
og hún er í dag. Ef verksmiðjan
stækkar, verður fjórða stærsta ál-
bræðsla Evrópu í bakgarði okkar
Hafnfirðinga. Háspennulínur
vegna stækkunarinnar í nágrenni
byggðar og á útivistarsvæði
Hafnarfjarðar verða óásættanlegar.
2. Loftmengun: Allur árangur í
baráttu við loftmengun álbræðsl-
unnar í Straumsvík síðustu 20
árin verður að engu við stækkun.
Við hverfum 20 ár aftur í tímann
og muna margir Hafnfirðingar
hvernig mengunarástandið var
þá í umhverfi verksmiðjunnar.
Losun gróðurhúsalofttegunda
sem valda loftlagsbreytingum er
alvarlegasta umhverfisvandamál
í heiminum í dag.
3. Byggðaþróun?
Mengunarsvæði? Við
þurfum að spyrja okk-
ur hvernig við viljum
að byggðin þróist í
Hafnarfirði. Innan
fárra ára verður
Straumsvíkursvæðið
eitt það verðmætasta á
höfuðborgarsvæðinu.
Nálægðin við höfuð-
borgina og alþjóða-
flugvöllinn gerir landssvæðið
eftirsóknarvert. Mengunarsvæðið
sem verður 18 ferkílómetrar ef af
stækkun verður útilokar alla
eðlilega byggðaþróun á þessu
svæði (allt byggt land í
Hafnarfirði í dag er 12 ferkíló-
metrar).
4. Umhverfisspjöll. Stækkun
álbræðslunnar nær að sjálfsögðu
út fyrir Hafnarfjörð og kallar á
virkjun í neðri hluta Þjórsár sem
hefur óafturkræfar afleiðingar
fyrir náttúru Íslands.
Höfundur íbúi á Völlum og
meðlimur í Sól í Straumi.
Fyrirhuguð stækkun álversins í Straumsvík:
Ég er ekki samþykk
Svala
Heiðberg
Danskt einkaleyfi tengt
vetnisbílum
Danski tækniháskólinn (DTU)
hefur sótt fyrir hönd fjögura
nemenda skólans um einkaleyfi
á nýrri tækni í efna-
rafölum fyrir vetnis-
bíla. Tæknin leiðir til
þess að vetnið nýtist
betur en áður hefur
þekkst.
Nemendurnir fjórir
hafa unnið að þessari
tækni undanfarin ár og
er þess skemmst að
minnast að þeir settu
heimsmet sl. vor í ár-
legri Shell EcoMarathon keppni
er þeir óku vetnisbíl sínum 25
km á 10 gr af vetni. Það sam-
svarar því að venjulegur smábíll
kæmist 671 km á einum lítra af
bensíni. Á síðasta ári fengu vís-
indamenn við skólann einkaleyfi
á „vetnispillunni“. Vetnispillan
er eiginlega ammoníaksaltpilla
sem bindur umtalsvert magn
vetnis í sig. Vetninu er síðan náð
úr pillunni með efnahvörfum.
Pillan er því einskonar batterí.
Hún er sögð algerlega hættulaus,
bruna- eða sprengihætta sé engin
og hægt er að endur hlaða hana
aftur og aftur. (Upplýsingar úr
FÍB-blaði 2006).
Háspennumastraskógur
Mér komu þessi afrek Dan-
anna í hug, þegar sagt var í
vígsluræðu forsvarsmanns Hita-
veitu Suðurnesja, að öll orka frá
nýja orkuverinu færi til Grundar-
tanga við Hvalfjörð. Mér var
hugsað til háspennumastranna,
sem þyrftu að komast yfir Hafn-
arfjörð, yfir allt stór Reykjavík-
ursvæðið og yfir Hvalfjörðinn.
Hvar eiga þessi mannvirki að
liggja?
Heildarmyndin
Við skulum gera okkur í hug-
arlund hvernig þessi
orkuþörf erlendra
stórfyrirtækja ger-
breytir ásýnd landsins.
Háspennulínur frá
Þjórsá og Hellisheiði
til Straumsvíkur, frá
Reykjanesvita og
Hellisheiði til Grund-
artanga, frá til
Helguvíkur og nú hef-
ur Þorlákshöfn óskað
eftir orkufrekum iðnaði til sín.
Ég vildi gjarnan sjá tölvumynd
af þessum Háspennumastra-
skógi. Ég hef heyrt því haldið
fram að hægt sé að leggja þessa
strengi í jörðu, en verkfræðingur
sem hefur góða þekkingu á þessu
sviði, tjáði á fundi þar sem ég var
stödd, að það væri ekki hægt,
vegna þess að það myndaðist of
mikill hiti frá þessum háspennu-
köplum, þannig að það væri
ógerlegt.
Nýtum okkur þekkinguna.
Hversvegna nýtum við ekki
frekar okkar orku til vetnis-
framleiðslu? Hafa vetnisfram-
leiðsluna við hlið orkuveranna
og sleppa öllum háspennu-
smastraskógi. Tilraun með vetni
á bíla hefur verið í gangi hér á
landi og ætti að vera ákjósan-
legur kostur að nýta sér þekk-
ingu Dana í þeim málum.
Höfundur er innanhússarkitekt,
framhaldsskólakennari og
myndlistarmaður.
Háspennumastraþjóð
Margrét
Guðmundsdóttir
Kristbjörn Óli Guðmundsson,
formaður Sundfélags Hafnar-
fjarðar, SH, og Rúnar Gíslason,
útibússtjóri Kaupþings í Hafnar-
firði, skrifuðu nýlega undir sam-
starfssamning SH og Kaupþings
banka. Samningurinn gildir fyrir
yfirstandandi keppnistímabil.
Samstarf SH og Kaupþings
Kristbjörn Óli Guðmundsson, formaður Sundfélags Hafnarfjarðar
og Rúnar Gíslason, útibússtjóri Kaupþings í Hafnarfirði.
Lj
ós
m
.:
H
af
st
ei
nn
I
ng
ól
fs
so
n