Fjarðarpósturinn - 18.01.2007, Side 1
Í dag kynnir starfshópur Alcan
og Hafnarfjarðarbæjar breyting ar
á deiliskipulagi vegna fyrir -
hugaðrar stækkunar álversins í
Straumsvík. Skv. heimildum
Fjarðarpóstins er þar gert ráð fyrir
umtalsverðri minnkun þynn -
ingarsvæðisins þar sem Alcan
skuldbindi sig til að hreinsa mun
betur m.a. brenni steins díoxíð en
fyrr með vot hreins un eða öðrum
nýrri að ferðum sem kunna að
finnast. Þá sé gert ráð fyrir hærri
skor steinum til að tryggja betri
dreif ingu.
Hópurinn kynnir breytingar á
fundi skipulags- og byggingar -
ráðs.
Forsendur kosninga
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis -
flokks ins lögðu fram bókun á
bæjarstjórnarfundi á þriðjudag
þar sem forsendur kosninga á
stækkun álversins. Forsendurnar
eru eftirfarandi:
1. Að formleg umsókn eigenda
álversins, Alcan, til fram kvæmda
og stækkunar álversins sé fram
komin.
2. Að tryggt sé að ýtrustu meng -
unarvarnir við álverið séu fyrir
hendi og notast sé við bestu
fáan legu tækni í því skyni, þ.m.t.
vothreinsun eftir þurrhreinsun,
þann ig að eftir stækkunina verði
mengun ekki meiri en nú er,
jafnvel minni.
3. Að skýrt komi fram hver beri
kostnaðinn við færslu á raflínum
og nýjum spennivirkjum vegna
fyrirhugaðrar stækkunar og
valin verði ný línustæði og
staðsetning fyrir nýtt spennuvirki
með það í huga að það rýri sem
minnst framtíðarbyggingarland
Hafnarfjarðar.
4. Að það komi skýrt fram að
kostnaður vegna flutnings á
Reykjanesbraut ásamt tvöföldun
vegarins og mislægum gatna -
mótum verði greiddur af ríkis -
sjóði og/eða Alcan.
5. Að gengið hafi verið frá af
hálfu ríkisins og Alcan í hvaða
skatta umhverfi fyrirtækið muni
starfa í eftir stækkun þess og
hvaða áhrif það hefur á tekjur
Hafnarfjarðarbæjar.
Það vakti athygli að
bæjarfulltrúar Samfylkingar og
Vinstri grænna tóku undir bókun
Sjálfstæðisflokks og því ljóst að
menn séu þessa dagana að snúa
sér að kjarna málsins þó Lúðvík
Geirsson, bæjarstjóri vildi ekki
samþykkja að þetta væru nein
vatnaskil í málinu. Sagði hann að
meirihlutinn hafi verið að vinna
að þeim þáttum sem fram koma í
bókun Sjálfstæðisflokksins.
ISSN 1670-4169w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
3. tbl. 25. árg. 2007
Fimmtudagur 18. janúar
Upplag 8.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.66north.is
Miðhraun 11 - Sími 535 6600
www.as.is
Sími 520 2600
VG vill að Sól
í Straumi fái
8 millj. kr.
Guðrún Ágústa Guðmunds -
dóttir, bæjarfulltrúi VG og
áheyrn arfulltrúi í bæjarráði
lagði til á fundi ráðsins sl.
fimmtu dag að Hafnarfjaðarbær
veiti Sól í Straumi 8 milljónir
kr. til að koma til móts við
kostnað vegna öflunar og
úrvinnslu upp lýsinga vegna
fyrir hugaðrar stækkunar ál -
bræðsl unnar í Straumsvík,
kostn aðar við að koma upp -
lýsingum á framfæri við bæjar -
búa, vegna fundarhalda og
vinnslu og birtingar aug -
lýsinga. Málinu var frestað á
milli funda. Á fimmtudag sótti
svo Sól í Straumi um 6,9 millj.
kr. styrk til að standa undir
kostnaði við kynningu á rökum
á móti stækkun álversins í
Straumsvík.
Hann lét kuldann ekki á sig fá, húsbyggjandinn efst í Áslandi 3 sem nú er að byrja að byggjast upp.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Sérstæð samstaða í bæjarstjórn
Fulltrúar flokkanna sammála um forsendur álkosninga
Tilveran
Veitingahús í hjarta Hafnarfjarðar — Linnetsstíg 1 — sími 565 5250
Humar fyrir bóndann
á bóndadaginn
Raflínur á Kaldárselsvegi