Fjarðarpósturinn - 18.01.2007, Side 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 18. janúar 2007
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.hafnarf jardark i rkja. is
Þorrafróðleiksmolar á
Byggðasafninu í kvöld
Í ókeypis fróðleiksmolum í Pakkhúsi
Byggðasafns Hafnarfjarðar í kvöld kl.
20 gefst færi á nauðsynlegum undir -
bún ingi fyrir komandi þorrablót.
Í framsögu sem ber yfirskriftina Þorra
konungi Snæssyni fagnað mun Sigrún
Ólafsdóttir þjóðfræðingur bregða upp
matarlegri sýn á þorrann og velta því
upp hvort samtíminn hafi fært gamlar
hefðir þorrans í rangan búning.
Sýningar Kvikmyndasafnsins
Á laugardaginn kl. 16 verður sýnd
myndin Il ladro di bambini sem á
íslensku var kölluð Stolnu börnin.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
mynd Bernardo Bertolucci frá árinu
1987, Last Emperor eða Síðasti
keisarinn. Myndin er einskonar ævi -
saga Pu Yi, sem þriggja ára að aldri
tók við veld issprotanum sem síðasti
keis arinn í Kína. Sagt er frá hátignar -
legri fæðingu hans og stuttri valdatíð
sem keisari í Forboðnu borginni, þar
sem hann var tilbeðinn af 500
milljónum manna og síðan afsögn
hans, niðurlægingu og spilltu líferni og
að lokum þegar hann deyr sem garð -
yrkjumaður í grasagarði Peking borgar.
Sýningar Kvikmyndasafnsins eru í
Bæjarbíói, Strandgötu 6.
Tríó Reykjavík í Hafnarborg
Nýárstónleikar Tríós Reykjavíkur verða
haldnir í Hafnarborg á sunnudaginn
kl. 20. Efnisskrá fyrri hluta tónleikanna
verður að mestu helguð Edvard Grieg,
en í ár verður öld liðin frá andláti hans.
Tríóið mun leika fjöruga dansa og Elín
Ósk syngja nokkur af frægustu söng -
lögum hans, m.a. Söng Sólveigar.
Á seinni hluta tónleikanna verður fjörið
allsráðandi, dansar, polkar og glæsi -
aríur úr óperettum eftir Nico Dostal,
Franz Lehar, Ernesto de Curtis og
Emmerich Kálmán.
Einsýna list í Hafnarborg
Í Hafnarborg stendur yfir mál verka -
sýningin Einsýna List sem sett er upp
í samvinnu við Norður landa húsið í
Færeyjum, Listasafnið í Þrándheimi og
Nordatlantens Brygge í Kaup manna -
höfn.
Þar sýna færeysku lista menn irnir
Edward Fuglø, Astri Luihn, Sigrun
Gunn arsdóttir, Torbjørn Olsen, Eyðun
av Reyni og Ingálvur av Reyni.
Tónleikar í kvöld
Hljómsveitirnar Ten Steps Away, Ar -
tika, Ashton Cut og Civil Fool munu
koma fram í Gamla bókasafninu í
kvöld kl. 20. Þar mun rock & roll ráða
ríkjum en allar hljómsveitir kvöldsins
tileinka sér rokkið. Ekkert kostar inn en
það er 16 ára aldurstakmark.
Umræðan um stækkun álversins í Straumsvík
er orðinn sérkennilegur farsi. Þegar umhverfis -
mat vegna stækkunar var lagt fram í júní 2002
var enginn áhugi bæjarbúa á málinu, sem varð
forsíðufrétt hér í Fjarðarpóstinum 27. júní 2002.
Í blað inu þá voru kynnnt helstu umhverfisáhrif
stækk unarinnar. Í árslok 2003 selur Hafnar fjarð -
ar bær Alcan landssvæði, 52 hektara fyrir 290
millj. kr. vegna stækkunar áforma Alcan og
skuld bindur sig til að útvega land undir nýtt
vegastæði Reykjanesbrautar og að lagnir og línur verði færðar til á
keyptu landi að kostnaðarlausu fyrir Alcan. Það er svo ekki fyrr en
um mitt ár 2005 sem bæjarbúar vakna til lífsins og hafa skoðun á
málinu og einn íbúi krefst kosninga um málið.
Það dylst engum að 170% stækkun álversins veldur verulegri
meng unaraukningu í magni og hlutfallslega um 150% miðað við
núverandi mengun. Hins vegar hefur ekki mikil umræða verið um
auknar mengunarvarnir t.d. bæði þurr- og vothreinsun en vot -
hreinsun drægi verulega úr brennisteinsmengun.
Umræðan í dag snýst meira um það hver sagði hvað og hver
lofaði hverju. Hver eigi að greiða fyrir færslu á raflínum og hver
eigi að greiða fyrir færslu á Reykjanesbrautinni. Lá það ekki ljóst
fyrir þegar bæjarstjóri seldi og afsalaði bænum landi við verksmiðju
Alcan? Hvernig gat bæjarstjóri lofað færslu Reykjanesbrautar eigi
síðar en þegar hagsmunir kaupanda kröfðust þess?
Að kosningu verður ekki alveg í bráð því skv. bókun sem fulltrúar
D-lista lögðu fram í bæjarstjórn og aðrir tóku undir er krafist
vothreinsunar eftir þurrhreinsun og að ríkið eða Alcan greiði færslur
Reykjanesbrautar og að fram komi hver borgi flutning á línustæði.
Guðni Gíslason
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 21. janúar
Sunnudagaskólinn kl. 11.00
Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri
Guðsþjónusta kl. 13.00
Kór Víðistaðasóknar syngur létta söngva
undir stjórn Úlriks Ólasonar.
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara á
miðvikudögum kl. 13.00
Spil, spjall og kaffiveitingar
Foreldrastundir
á fimmtudögum kl. 13.00
Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra.
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
12. Stórsveit Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar - styrkbeiðni.
Lögð fram styrkbeiðni Stórsveitar
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar vegna
tónleikaferðalags. Bæjarráð sam -
þykkir að styrkja Stórsveitina um
300.000 kr., takist af lið 21-815.
13. Hávaðamengun frá Dverg
við Brekkugötu
Lagt fram bréf frá eigendum við
Brekkugötu 9 vegna hávaða meng -
unar. Bæjarráð samþykkir að vísa
erind inu til frekari yfirferðar hjá
Fast eignafélagi Hafnarfjarðar með
það í huga að finnta hentugt hús -
næði undir starfsemina.
21. Knattspyrnufélagið Haukar,
endurskipulagning fjármála.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir
skriflegri umsögn ÍBH og íþrótta full -
trúa vegna erindis.
11. Styrkir
Lagt fram erindi Barnaheilla,
dags. 22. des. sl., þar sem óskað
er eftir styrk að fjárhæð kr. 600.000
fyrir árið 2007 vegna verkefnisins
Stöðvum barnaklám á Netinu.
Lagt fram erindi frá Parkin son -
samtökunum, dags. 2. jan. sl., ósk
um styrk vegna tímarits sam tak -
anna, að lágmarki kr. 50.000, í
formi auglýsingar. Fjölskylduráð
samþykkir að veita tímariti Park -
insonsamtakanna styrk að fjárhæð
kr. 50.000, í formi aug lýsingar.
2. Afskriftir skulda
Lögð fram tillaga að niðurfellingu
skulda að fjárhæð kr. 7.145.296.
Fjölskylduráð samþykkir til -
löguna fyrir sitt leyti en vísar
endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.
5. Samstarf við ÍBH
Unnið er að gerð leiðbeinandi
bæklings vegna barnaverndarmála
og kynferðisofbeldis gegn börnum
sem ÍBH og forvarnanefndar sem
ætlaður er starfsfólki sem vinnur
með börnum og unglingum í
íþrótta- og æskulýðsstarfi. Drög að
bæklingnum lögð fram.
Fiskur veitir sálarró
Sunnudaginn 21. janúar
Fjölskylduhátíð kl. 11
Báðir sunnudagaskólarnir
og allir leiðtogarnir taka þátt.
Hljómsveitin Gleðigjafarnir leiðir söng.
Sr. Þórhallur segir glærusögu
og sr. Gunnþór leiðir bænir.
Boðið verður upp á góðgæti í safnaðarheimilinu
eftir stundina.
KRAKKAR!
FJÖLMENNUM MEÐ PABBA OG MÖMMU
OG AFA OG ÖMMU!
Ungir sjálfstæðismenn!
Í kvöld, þann 18. janúar
kl. 20, mun Stefnir,
félag ungra sjálfstæðis -
manna í Hafnarfirði
halda opinn félagsfund
í Sjálfstæðis húsinu í
Hafnarfirði.
Til umræðu m.a. kosning
fulltrúa á landsþing.
Það eru spennandi
tímar framundan í vor.
Verum virk og fjöl -
mennum á fundinn!