Fjarðarpósturinn - 01.02.2007, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 1. febrúar 2007
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Nú er bæjarstjórn búin að samþykkja deili -
skipulag vegna hugsanlegrar stækkunar álverk -
smiðjunnar í Alcan með fyrirvara um samþykkt
bæjarbúa en áður en samþykktar voru máls með -
ferðarreglur um framkvæmd slíkrar kosningar.
Það verður spennandi að sjá hvað kosið verður í
raun um.
Einhvern veginn finnst mér vel við hæfi að
kalla eftir íbúaþingum núna þegar lýðræðinu er
svo mikið hampað. Hvað varð um þau? Þeim var
lofað á síðasta kjörtímabili og eitt var haldið - svona fyrsta tilraun.
Lofaði Samfylkingin ekki íbúaþingum? Á ekki að efna öll loforð?
Á einu slíku vildi ég gjarnan að rætt yrði um sóðaskap í bænum,
ekki síst í iðnaðarhverfum bæjarins. Það virðast bara sum fyrirtæki
eiga að hafa umhverfisstefnu og þurfa að ganga snyrtilega um á
meðan önnur geta sóðað út eins og þeim lystir - og enginn gerir
neitt.
Nú er frítt í Hafnarborg og Byggðasafnið og því ber að fagna. Mér
hefur alltaf þótt skrýtið að stórum upphæðum er eytt í að setja upp
sýningar, kalla til erlenda listamenn eða sérfræðinga en svo þegar
almúginn á að bera menninguna augum skal hann borga fyrir hana.
Sennilega hefur aðgangseyrir litlu skilað í kassann, hlutfallslega.
Hrós til Glitnis að vilja borga. Er þetta ekki bara byrjunin, nægt fé
virðist vera hægt að sækja í kassa bankanna ef marka má nýjustu
afkomutölur. Mörg fyrirtækin eru orðin sterk og fleiri og fleiri
fyrirtækjastjórnendur eru farnir að sýna listum og stuðningi við
þjóðfélagsmál áhuga og vonandi eigum við nógu stór fyrirtæki sem
áhuga hafa á að gera vel fyrir heimabæ sinn. Fyrirtæki ættu að vera
stolt af því að vera frá Hafnarfirði, þar gerist þó alltaf eitthvað.
Guðni Gíslason
Ástin í Hafnarborg í dag
Ástin er dauðans alvara er yfirskrift
hádegistónleika Hafnarborgar kl. 12 í
dag þar sem Antonía Hevesi tekur á
móti Jóhanni Friðgeir Valdimarssyni,
tenór. Saman munu þau flytja
dramatískar aríur, Jóhann syngur og
Antonía spilar undir á píanó. Frítt inn.
Sýningar Kvikmyndasafnsins
Á laugardaginn kl. 16 verður sýnd
spænska kvikmyndin Deprisa, dep r -
isa eftir Carlos Saura. Myndin segir frá
vinahópi sem lifir hratt og hættulega í
glæpaveröld Madridborgar á áttunda
áratug síðustu aldar.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
myndin Prét-á-Porter frá 1994 eftir
Robert Altman. Myndin er paródía um
tískuviku í París og var kvikmynduð á
einni slíkri. Þetta er dæmigerð Altman
mynd með margþættum söguþræði
og stórkostlegum leikurum. Aðal -
hlutverk eru í höndum; Sophiu Loren,
Marcello Mastroianni og Kim Bas -
inger.
Sýningar Kvikmyndasafnsins eru í
Bæjarbíói, Strandgötu 6, þriðjudaga
kl. 20 og laugardaga kl. 16.
Mælsku- og ræðukeppni ITC
Tjáningasamtökin ITC halda mælsku
og ræðukeppni á þriðjudaginn kl.
20.15 í Vonarhöfn Hafnarfjarðarkirkju
Deild samtakana í Hafnarfirði heitir Íris
sem heldur þessa keppni. Lið deildar -
innar keppir við lið úr annari deild.
Þetta er mjög skemmtileg keppni og
þeir sem hafa áhuga á ræðkeppni að
hvattir til að mæta. Ókeypis að gang ur.
Kammerkór Akraness í
Bessastaðakirkju
Á sunnudaginn kl. 20 heldur
Kammer kór Akraness tónleika í
Bessa staðakirkju á Álftanesi. Kamm -
er kórinn, sem skipaður er 14 manns,
var stofnaður í ársbyrjun 2004 og eru
felstir meðlimir einnig félagar í Kór
Akraneskirkju.
Á efnisskrá tónleikanna eru veraldleg
lög frá Norðurlöndunum og Bretlands -
eyjum í aðgengilegum, áheyrilegum
og laglegum útsetningum. Stjórnandi
kórsins er Sveinn Arnar Sæ munds -
son, organisti Akranes kirkju.
Ljósmyndasýning
Nú stendur yfir sýning á ljósmyndum
Svans Más Snorrasonar í Bókasafni
Hafnarfjarðar. Hann sýnir átta ljós -
myndir í lit. Svanur, sem er 35 ára
gam all og gaflari í húð og hár, hefur
lengi haft áhuga á ljósmyndun, en
þetta er í fyrsta skipti sem hann sýnir
verk eftir sig á opinberum vettvangi.
Þrjár myndanna eru staðsettar á fyrstu
hæð safnsins en fimm á þeirri annarri.
OR tekur við
rekstri
fráveitu á
Álftanesi
10 millj. kr. í
umhverfissetur
Orkuveita Reykjavíkur kaup -
ir fráveituna á Álftanesi og tek -
ur við uppbyggingu og rekstri
fráveitumannvirkja í sveit -
arfélaginu en Orkuveitan rek ur
nú þegar fráveitu fyrir Reykja -
vík, Akranes og Borgar byggð.
Kaup verð fráveitunnar á Álfta -
nesi er 57,5 milljónir króna og
skuldbindur Orku veit an sig til
að sjá um upp byggingu hennar
til samræmis við kröfur um
áhrif hennar á um hverfið.
Framundan eru talsverðar
framkvæmdir í þessu skyni og
er reiknað með að fjárfestingar
í veitunni muni nema um 340
milljónum króna á árunum
2008 og 2009 til þess að hún
uppfylli kröfur reglugerða.
Samhliða kaupunum skuld -
bindur Orkuveitan sig til að
leggja 10 mkr. til um hverfis -
seturs á Álftanesi, en ný verið
samdi sveitarfélagið við
Þyrpingu hf. um að kanna
mögu leika á því að reisa
menn ingar- og náttúrusetur á
Álftanesi.
Tillaga að
matsáætlun
fyirr raflínur
og tengivirki
Á fundi skipulags- og
byggingarráðs 23. jan. sl. voru
teknar fyrir að nýju breytingar
á tillögu að matsáætlun fyrir
háspennulínur frá Hellisheiði
að Straumsvík. Lögð var fram
tillaga Landsnets að mats -
áæltlun dags. 16.01.2006, sem
vísað er til umsagnar Hafnar -
fjarðarbæjar. Óskað var eftir
því að umsögn Hafnar fjarðar -
bæjar yrði send Skipu lags -
stofnun fyrir 1. febrúar 2007.
Skipulags- og byggingarráð
vísaði málinu til umsagnar
skipulags- og byggingarsviðs.
www.hafnarf jardark i rkja. is
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 4. febrúar
Fjölskylduhátíð kl. 11.00
Sunnudagaskólinn og fjölskylduguðsþjónustan
saman í einni stórri fjölskylduhátíð.
Barnakórinn og Unglingakórinn syngja
undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttir.
Veitingar í safnaðarheimilinu á eftir.
8-9 ára starf á mánudögum kl. 16.30
10-12 ára starf (TTT) á þriðjudögum kl. 17.00
Unglingastarf á þriðjudögum kl. 19.30
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara á
miðvikudögum kl. 13.00
Spil, spjall og kaffiveitingar
Foreldrastundir
á fimmtudögum kl. 13.00
Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra.
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Álversvísa
Þegar Kristján Bersi Ólafsson
las í blöðunum að stuðn ingsleysi
við stækkun ál vers ins væri meira
en stuðn ingur inn kom þessi
fagnaðarvísa upp í huga hans:
Sólin á himni hækkar,
hlúir að lyngi og trjám.
Og álverið ekki stækkar
eftir nýjustu spám.
Sunnudaginn 4. febrúar
Messa kl. 11
Báðir prestarnir þjóna
Organisti: Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Guðrún Árný
Karlsdóttir syngur einsöng við eigin píanóleik.
Kór Hafnarfjarðarkirkju leiðir safnaðarsöng.
Samsæti og léttur hádegisverður í boði Kvenfélagsins
í Hásölum Strandbergs eftir messuna.
Sunnudagaskóli
í Strandbergi og Hvaleyrarskóla á sama tíma.
Fundir Æskulýðsfélagsins Æskó. kl. 20-21.30
Barnastarf T.T.T. 10-12 ára, þriðjud. kl.17-18.30.
Krakkakirkja 7-9 ára, fimmtud. kl.17-18.30.
Ungbarnamorgnar fimmtudaga kl.10-12.
Fullorðinsfræðsla: Sjá heimasíðu.
Ekki draga ýsur
við aksturinn