Fjarðarpósturinn - 01.02.2007, Blaðsíða 3
Menningarsjóður Glitnis,
Hafn ar borg og Byggðasafn
Hafn arfjarðar undirrituðu í
síðustu viku samstarfssamning
sem felur í sér að boðinn verður
ókeypis aðgangur að sýningum í
Hafnarborg og Byggðasafni
Hafnarfjarðar á þessu ári. Auk
þess að auðvelda almenningi að
njóta þess sem söfnin hafa upp á
að bjóða verður stuðlað að auknu
samstarfi safnanna og skóla í
Hafnarfirði.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, undirritaði samn -
inginn fyrir hönd Hafnarborgar
og Byggðasafns Hafnarfjarðar
og Einar Sveinsson, stjórnar -
formaður Glitnis, fyrir hönd
bankans.
Pétrún Pétursdóttir forstöð -
umaður Hafnarborgar og Björn
Pét urs son bæjarminjavörður
fagna samstarfssamningnum við
Glitni og eru þess fullviss að
aðsókn að sýningum muni
aukast til muna nú þegar hægt
verður að bjóða frían aðgang að
söfnunum. Bæði söfnin standa
fyrir metnaðarfullri starfsemi í
sýningarhaldi og fræðslustarfi og
er stuðningur Glitnis mikil
hvatn ing fyrir söfnin.
Einar Sveinsson sagði Glitni
stoltan af stuðningi sínum við
það merka starf sem unnið er í
menningarlífi Hafnarfjarðar.
„Glitnir hefur fylgst með því
kraftmikla menningarstarfi sem
hér á sér stað og það leynir sér
ekki að það er áhugi á að gera
vel. Þær sýningar sem settar eru
upp í Byggðasafni Hafnarfjarðar
og í Hafnarborg eiga erindi við
alla Íslendinga og erlenda gesti.
Við vonum að með þessu fram -
taki eigum við eftir að stuðla að
því að sem flestir heimsæki
söfnin í Hafnarfirði á árinu.“
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 1. febrúar 2007
www.frikirkja.is
Fríkirkjan
Sunnudaginn 4. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Poppmessa kl. 20
Allir velkomnir
Við leitum að starfsmanni á besta aldri,
tækniglöggum, reglusömum með ríka þjónustu -
lund og góða nærveru - óháðum tóbaki. Starfið
felst aðallega í lagerhaldi, afgreiðslu og einfaldri
tölvuvinnu, s.s. reikningagerð. Þekking á pípu-
eða hita veitulögnum æskileg, einnig dönsku-
eða enskukunnátta.
Þeir sem hafa áhuga og hæfni til að gegna
þessu starfi sendi umsókn og meðmæli með
ítarlegum upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf til:
ÍSRÖR ehf. pósthólf 644, Hringhellu 12,
221 Hafnarfjörður eða birgir@isror.is
fyrir 15. febrúar 2007.
Sölu- og lagermaður
óskast
ÍSRÖR ehf. er rótgróið innflutningsfyrirtæki með forein angruð
PEX- og stál- hitaveiturör og efni því tengdu. Hitaveitu-, strengja-
og gasskápa, ídráttarrör, nuddpotta o.fl.
Vinna er hafin við byggingu
dælu- og hreinsunarstöðvar fyrir
skolp í Hraunsvík rétt við álver -
ið. Um þessa stöð mun allt skolp
frá bænum fara en þaðan verður
því dælt langt á haf út. Mikill
vatnsagi var í stöðv ar grunn inum
og kom bæði inn sjór og hreint
vatn úr kalda vatns æð sem m.a. er
talin koma úr Kaldánni.
Rekið var niður stálþil í kring -
um stöðvargrunninnn og steypt
þriggja metra þykkt þrifalag í
botn hans en sú þykkt var nauð -
synleg svo lagið flyti ekki upp á
flóði.
Áætlað er að stöðin verði full -
búin í árslok en útrásin fyrir mitt
næsta ár.
Lokahnykkurinn í endurbótum á frárennslismálum Hafnarfjarðar
Þriggja metra botn í dæluhúsi
L
jó
s
m
.:
K
ri
s
tj
á
n
S
te
fá
n
s
s
o
n
Fyrirtæki og einstaklingar
Færsla á bókhaldi, launaútrreikningur,
vsk-uppgjör, ársuppgjör, skattframtöl,
skattakærur, fjármálaráðgjöf.
Magnús Waage, viðurkenndur bókari
Reykjavíkurvegi 60, s. 565 2189, 863 2275
Vinna hafin við dælu- og hreinsunarstöðina í Hraunsvík
Taekwondoo:
Björn Norðurlandameistari - enn á ný
Glitnir býður á söfnin
Styrktarsamningur við Hafnarborg og Byggðasafnið
Einar Sveinsson og Lúðvík Geirsson fagna samningnum.
Björn Þorleifsson úr Tae Kwon
Do deild Bjarkar varð Norð ur -
landameistari nú um helg ina í
Stokkhólmi. Björn, sem er
margfaldur Norðu rlanda meist -
ari, gerði það gríðarlega gott og
virtist ekki vera í neinum vanda -
málum frá upphafi. Hann kláraði
alla bardagana sína á sjö stiga
reglunni. Björn keppti í -78 kg.
flokki.
Sólrún Svava Skúladóttir fékk
silfur. Auður Anna Jónsdóttir,
Haukur Daði Guðmundsson og
Adrian Rodriquez fengu brons.
Björn Þorleifsson.
Þórður Birgir Bogason hefur
óskað eftir því að láta af störfum
sem forstjóri MEST ehf. og hefur
stjórn félagsins gengið frá
starfslokasamningi við hann.
Bjarni Gunnarsson, stjórnar for -
maður AGN Holding og MEST
ehf., mun taka við starfi forstjóra
og gegna því tímabundið.
Síðastliðið haust sameinuðust
MEST og Súperbygg undir
merkjum MEST en áætluð velta
sameinaðs félags er um 8
milljarðar króna og starfsmenn
eru um 270 talsins. MEST flutti
nýlega höfuðstöðvar sínar að
Fornubúðum í Hafnarfirði.
Þórður Birgir hættir hjá Mest