Fjarðarpósturinn - 01.02.2007, Qupperneq 7
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 1. febrúar 20076 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 1. febrúar 2007
Um þessar mundir eru liðin eitt
hundrað ár frá því að Verka lýðs -
félagið Hlíf var stofnað. Fyrsta
fund ar gerðarbók félagsins er
glötuð og því ekki nákvæmlega
vit að um stofndaginn,
en hann mun hafa verið
um mánaðamótin jan -
úar og febrúar, árið
1907. Stofn fundurinn
var haldinn í Góð -
templara húsinu. Stofn -
félag ar voru um 40,
bæði karlar og konur.
Um miðjan mars voru
félagar orðn ir um 230,
þar af 70-80 kon ur. Árið
1925 var síðan stofnað
sérstakt verkakvennafélag í Hafn -
arfirði, verkakvennafélagið Fram -
tíðin. Félögin sameinuðust síðan
árið 1999.
Verkalýðsfélagið Hlíf er stofn að
einu ári áður en Hafnarfjörður
hlaut kaupstaðarréttindi. Saga
Hlíf ar er því samofin sögu Hafnar -
fjarðar. Það er ekki ein ung is vegna
þess að félagið og bær inn eru
næst um jafnaldrar. Það er ekki síð -
ur vegna þess að ýmis mikilvæg
skref í þróun hafnfirsks atvinnulífs
hafa verið stigin með atbeina og að
áeggjan verka lýðsfélaganna í
bæn um. Þar má nefna Bæjar -
útgerð ina, Alþýðu brauðgerðina,
leikskólann á Hörðu völlum, svo
fátt eitt sé talið.
Hlutverk í sögu þjóðar
Íslenskt samfélag væri ekki eins
og við þekkjum það í dag ef
verkalýðshreyfingarinnar hefði
ekki notið við. Réttarbætur eins og
lög um slysatryggingar 1925, lög
um verka mannabústaði 1929, lög
um almannatryggingar 1936,
Vinnulöggjöfin 1938,
réttur til orlofs 1942,
atvinnuleysis trygg ingar
1956, líf eyris sjóðir
1969, sjúkra sjóðir 1979,
fræðslu sjóðir 2000, svo
fátt eitt sé talið, eru allt
þættir sem rekja má
beint til starfs verka -
lýðs hreyfingar innar.
All ir líta á þetta sem
sjálfsagða hluti í dag.
Verkalýðsfélagið Hlíf
hafði forgöngu í sumum af mikil -
væg ustu málunu, eins og varð andi
orlofsréttinn og 8 stunda vinnu dag.
Saga Hlífar er þó ekki síður
sam ofin sögu samtaka jafnaðar- og
félags hyggjufólks í bænum.
Snemma á starfsferli Hlífar beitti
félag ið sér fyrir þátttöku í bæjar -
stjórnarkosningum og náði fljótt
árangri. Óhætt er að fullyrða að
hreyf ing jafnaðar- og félags -
hyggju fólks væri ekki jafn sterk í
Hafn arfirði og raun ber vitni, ef
grunnurinn að pólitísku starfi sem
verkalýðshreyfingin í Hafnarfirði
lagði á öðrum og þriðja áratug
aldarinnar hefði ekki verið lagður.
Sömu grunngildin
Hermann Guðmundsson, sem
að öðrum ólöstuðum er einn
áhrifa mesti forystumaður Hlífar
þessi hundrað ár, skrifaði í 50 ára
afmælis rit Alþýðusambandsins
árið 1966:
En þrátt fyrir allar breytingar, er
enn í dag í gildi sú hin sama regla,
sem leiddi til stofnunar verka -
lýðssamtakanna, að sam einað
átak margra getur lyft grettis taki,
sem hverjum einum er um megn að
ráða við.
Þetta er höfuðatriðið í öllu starfi
verkalýðssamtakanna, að þroska
félaga sína í þeim skiln ingi, að
samstarfið, samheldnin sé fyrir
öllu, að einstaklingurinn sé því
aðeins sterkur, að hann sé tengd ur
öðrum, að koma fram í skipu legri
og sterkri fylkingu, í stað þess að
vera dreifðir og mátt lausir.
Þetta verður varla skýrar sagt.
Þessi orð eru í fullu gildi enn í dag,
rúmum fjörutíu árum síðar. Það er
mikilvægt að við njótum áfram
öflugs starfs þessarar hreyf ingar,
ekki síður í Hafnar firði en á
landinu öllu. Ég hef svosem engar
efasemdir um það. Starf Hlífar er
öflugt og félagið nýt ur mikils
trausts á landsvísu.
Á þessum tímamótum flyt ég
Hlífarfólki hamingjuóskir og vona
að við Hafnfirðingar njótum þess
mikilvæga starfs sem félagið sinnir
um ókomin ár.
Guðmundur Rúnar Árnason,
bæjarfulltrúi.
Verkalýðsfélagið Hlíf 100 ára
Lj
ós
m
yn
d
í e
ig
u
B
yg
gð
as
af
ns
H
af
na
rfj
ar
ða
r
Guðmundur Rúnar
Árnason
Verslum í Hafnarfirði!
w w w . f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
Þau pólitísku tíðindi urðu í
Hafnarfirði á fundi bæjarstjórnar
16. janúar sl. að fulltrúar Sjálf -
stæðisflokksins í
bæjar stjórn lögðu fram
bók un þar sem m.a.
var sett fram sú krafa
að mengunarlosun frá
ál bræðslunni í
Straums vík mætti ekki
auk ast við fyrirhugaða
stækk un. Samkvæmt
fréttum Fjarðar pósts -
ins fimmtudaginn 18.
janúar var óvenjuleg
sam staða á meðal allra
flokkana um þessa bókun sjálf -
stæðismanna á bæjar stjórnar -
fundinum.
Hér er útdráttur úr bókuninni:
„2) Að tryggt sé að ýtrustu
meng unar varnir við álverið séu
fyr ir hendi og notast sé við bestu
fáanlegu tækni í því skyni, þ.m.t.
vothreinsun eftir þurrhreinsun,
þannig að að eftir stækkunina
verði mengun ekki meiri en nú
er, jafnvel minni.“ (Úr fundar -
gerð bæjarstjórnar 16. janúar
2006).
Það eru góð tíðindi fyrir Hafn -
ar fjörð að allir bæjar stjórnar -
flokkarnir taki undir þessa bókun
sem þýðir í raun að ekki er leng -
ur pólitískur vilji í bæjarstjórn
fyrir stækkunaráformunum í
Straums vík. Í öllum þeim áætl -
unum sem Alcan hefur lagt fram
og í samþykktu starfsleyfi er gert
ráð fyrir 2,5 földun á nær allri
mengun frá stækkaðri
álbræðslu. Hér er um
að ræða svifryk, flúor,
brennistein, gróður -
húsa loftegundir og
PAH efni. Eina undan -
tekningin frá þessari
meng unaraukningu
við stækkun er hugs -
anlega brenni steins -
mengun en henni má
ná niður með vot -
hreinsi búnaði. Sú
tækni sem gerði það mögulegt að
þre falda álbræðsluna í Straums -
vík án tæplega þreföldunar á
meng unarlosun er einfaldlega
ekki til og ekkert bendir til þess
að hún sé á leiðinni næsta ára -
tuginn.
Þó svo að mengunarmálin séu
ekki sterkustu rökin gegn stækk -
unaráformunum í Straumsvík
ber að fagna þessum skilaboðum
frá pólitískt kjörnum fulltrúum
bæjar búa. Þetta endurspeglar
líka vilja bæjarbúa, en ég hef
ekki hitt þann Hafnfirðing sem
auka vill mengunarlosun á -
bræðslunnar í Straumsvík.
Höfundur er íbúi í Áslandi og
meðlimur í Sól í Straumi
Ekki lengur pólitískur vilji til að
auka mengun í Hafnarfirði
Pétur
Óskarsson
Söngvakeppni Hafnarfjarðar
og Álftaness fór fram síðast -
liðinn fimmtudag fyrir troðfullu
húsi í Víðistaðaskóla.
Alls voru 21 lög sem kepptu
um sigursætið en þau Karlotta og
Egill úr Öldunni sigruðu í
keppninni með lagið Suits me.
Í öðru sæti var Sigurbjörg úr
Verinu með lagið Once upon a
december og í þriðja sæti var
Alexandra með lagið Nobody
does it better.
Þessi lög munu keppa til
úrslita í Söngvakeppni Samfés
sem verður í byrjun mars. Hægt
er að hlusta á öll lögin á vefsíðu
Hraunsins, www.hraunid.is.
Söngvakeppni Hafnarfjarðar og Álftaness
Karlotta og Egill sigruðu með glæsibrag
Sigurbjörg úr Verinu við píanóið, en hún lenti í þriðja sæti
Lj
ós
m
.:
S
m
ár
i G
uð
na
so
n
Lj
ós
m
.:
Jó
na
ta
n
G
ar
ða
rs
so
n
Menningar- og ferðamálanefnd auglýsir
eftir umsóknum um styrki til endurgerða
á gömlum húsum í Hafnarfirði, sem hafa
sögulegt og/eða byggingarsögulegt
varðveislugildi.
Umsækjendum er bent á að kynna sér
samþykktir um styrkina og þar tilgerð
eyðublöð á heimasíðu bæjarins
www.hafnarfjordur.is eða í Þjónustuveri
Hafnarfjarðar, Strandgötu 6.
Styrkumsókn skulu fylgja greinargóðar
upplýsingar um áætlaðar framkvæmdir,
kostnaðaráætlun og ljósmynd. Nánari
upplýsingar veitir Karl Rúnar Þórsson í
síma 585 5780.
Merkja skal umsóknir:
Styrkir til húsverndar 2007
Strandgata 6, 220 Hafnarfirði.
Skilafrestur er til 19. febrúar 2007.
Styrkir til húsverndar
Menningar- og ferðamálanefnd
Hafnarfjarðar auglýsir eftir
styrkumsóknum til lista- og
menningarstarfsemi.
1. Í umsókninni þarf að lýsa verkefninu,
skilgreina kostnaðaráætlun og
styrkupphæð.
2. Listamenn, félagasamtök eða
menningarviðburðir skulu tengjast
Hafnarfirði.
3. Ekki er styrkt til náms eða rekstrar
(t.d. húsaleigu).
4. Nefndin áskilur sér rétt til að krefjast
endurgreiðslu styrkja, komi ekki til
verkefna sem sótt er til.
Umsóknareyðublöð og nánari
upplýsingar er að finna á vefslóðinni
www.hafnarfjordur.is. Einnig má nálgast
eyðublöðin í Þjónustuveri Hafnarfjarðar
að Strandgötu 6, og á Skrifstofu menn -
ingar- og ferðamála að Vesturgötu 8.
Ef ekki er sótt um með rafrænum hætti
skal merkja umsóknir Styrkir til lista- og
menningarstarfsemi 2007, Strandgata 6,
220 Hafnarfirði.
Skilafrestur er til 19. febrúar 2007.
Styrkir til lista - og
menningarstarfsemi
Ljósmyndarinn er neðarlega í Áslandinu og tekur á móti sólu þar sem sólin gyllir Keili og háspennu -
möstrin og hæsta blokk in á Völlum skera sig úr á meðan sólarljósið glampar í enda Ástjarnarinnar.