Fjarðarpósturinn - 01.02.2007, Blaðsíða 9
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 1. febrúar 2007
Á fundi bæjarstjórnar fyrr í
mán uðinum fór bæjarfulltrúi
Vinstri Grænna, Guðrún Ágústa
Guð mundsdóttir, mikinn í um -
ræðu um stuðning Glitnis við
hafn firskt menn ing arlíf. Glitnir
hefur und ir ritað samn -
ing um að styðja
Byggða safnið og
Hafn ar borg um 2,5
millj ónir króna og
þann ig tryggja Hafn -
firð ingum frían aðgang
að söfnunum næsta
árið. Bæjarfulltrúinn
hef ur áhyggjur og telur
slíkan stuðning geta
skert ábyrgð og vel -
sæmi sveitarstjórnarinnar gagn -
vart Hafnfirðingum og jafnvel
sjálf stæði bæjarfélagsins. Lagði
hún jafnframt til að setja málið í
nefnd. Sérstaka athygli vekur að
bæjarfulltrúinn minnist ekki einu
orði á kostun í rekstri íþrótta -
félaga sem hún þekkir þó vel af
eigin reynslu.
Gamalt fyrirbæri
Kostun er nefnilega gamalt
fyrirbæri hjá íþróttafélögum en
þar eru auglýsingar líka mjög
áber andi. Auk framlags bæjar -
félags ins er rekstur íþróttafélaga
tryggð ur með kostun og aug lýs -
ingum. Á kappleikjum blakta
fán ar styrktaraðila við hlið ís -
lenska fánans og vörumerki um -
talaðasta fyrirtækis landsins Al -
can er á forsíðu heima síðu FH,
Hauka og Bjarkanna. Á hverjum
degi hlaupa hafnfirsk börn, allt
niður í leik skólaaldur, um á
íþrótta völlum í keppn is búningum
sem skarta vörumerkjum fyrir -
tækja á brjóstum, baki og bossum.
Ég kannast ekki við að fólk hafi
al mennt áhyggjur af vel sæmi
þessarar kostuðu starf semi.
Tækifæri felast í kostun
Kostun af ýmsum
toga er einn ig að verða
algengari á öðrum
svið um samfélagsins.
Kostun er tæki færi
fyrir fyrirtæki og ein -
staklinga til að auðga
ákveðna starfsemi í
samfélaginu. Þó kost -
un eigi ekki alls staðar
við og um hana þurfi
skýr viðmið þarf alltaf að vera
svigrúm til staðar til að meta
hverju sinni hvort utanað komandi
framlag fyrirtækis, félaga samtaka
eða einstaklings falli að því starfi
sem um ræðir og geti jafnvel nýst,
t.d. sem hluti af námi, tenging við
atvinnulíf eða þróun í skólastarfi.
Sjálf hef ég beitt mér fyrir því
að sveitarfélög setji sér slík
viðmið í skólum. Snemma árs
2005 sendu Heimili og skóli-
lands samtök foreldra, sveitar -
stjórn um tilmæli um að setja al -
mennar verklagsreglur um aug -
lýs ingar og kostun í skólum. Drög
að slíkum verklagsreglum voru
kynntar í Fræðsluráði Hafnar -
fjarðar haustið 2005. Það væri
nær að bæjarfulltrúi Guðrún
Ágústa fylgdi því eftir hvort þess -
ar verklagsreglur hafi komist í
fram kvæmd áður en hún sest sjálf
í enn einn starfshópinn.
Það er gott framtak hjá Glitni að
styðja við menningarstarfsemi í
bæjarfélaginu og tryggja Hafn -
firð ingum jafnan aðgang að
menn ingarverðmætum sínum.
Starfs menn Byggðasafnsins og
Hafn arborgar geta nú eftir sem
áður einbeitt sér að því að efla
fræðslu öllum Hafnfirðingum til
hagsbóta.
Höfundur er varabæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks og fulltrúi í
menningar- og
ferðamálanefnd.
Er kostun kostur fyrir Hafnfirðinga?
María Kristín
Gylfadóttir
Umsókn um styrk úr
Minningarsjóði hjónanna
Helgu Jónasdóttur og Bjarna Snæbjörnssonar, læknis í Hafnarfirði
Minningarsjóður Helgu og Bjarna hefur þann tilgang að veita
styrki til að hlúa að hagsmunamálum og velferð barna í
Hafnarfirði allt að 18 ára aldri. Í skipulagsskrá sjóðsins segir að
„einkum skulu veittir styrkir til starfsemi á vegum einstaklinga,
samtaka, fyrirtækja og opinberra aðila, sem veita börnum, sem
eiga við erfiðleika að etja vegna fötlunar, sjúkdóma eða
félagslegra aðstæðna, þjónustu og aðstoð.“
Stjórn Minningarsjóðsins auglýsir hér með
eftir umsóknum úr sjóðnum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6,
Hafnarfirði. Ennfremur má nálgast umsóknar-
eyðublöð á veffanginu www.bjarnioghelga.is
Umsóknir merktar „Minningarsjóður Helgu og Bjarna“ þurfa að
berast Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar fyrir 20. febrúar n.k.
Stjórn Minningarsjóðsins
LAGERHÚSNÆÐI
120 m² - 170 m² lagerhúsnæði
óskast fyrir smávörulager.
Gjafavöruverslunin Glugg-inn
Hallur s. 895 1712
Vakin er athygli á því að nú er í fyrsta skipti unnin
útfærsla á afslætti til ellí lífeyris- og örorku þega,
sem byggð er á samkeyrslu raf rænna gagna frá
ríkisskatt stjóra. Það er gert til að tryggja að allir
sem rétt eiga á afslætti sam kvæmt sam þykktum
Hafnarfjarðarbæjar njóti hans.
Miðað er við álagningarskrá fyrir árið 2006.
Breytist tekjufor sendur á árinu 2007 eða ef
ellilífeyris- og eða örorku þegar hafa athuga -
semdir fram að færa varðandi útsenda álagn ingu
og afslátta kjör, ber að koma gögnum þar að
lútandi til Þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar þann -
ig að hægt sé að afgreiða þau mál sérstak lega.
Bæjarstjórn heimilar með stoð í 4. mgr. 5. gr.
laga um tekjustofna sveitarfélaga að fella niður
fasteignaskatt og holræsa gjald elilífeyrisþega
af eigin íbúð á eftir far andi hátt:
a) Einstaklingar:
Brúttótekjur 2006 allt að:
1.760.000 . . . . . 100% niðurfelling
Brúttótekjur 2006 allt að:
2.140.000 . . . . . 80% niðurfelling
Brúttótekjur 2006 allt að:
2.440.000 . . . . . 50% niðurfelling
b) Hjón sem bæði eru ellilífeyrisþegar:
Brúttótekjur 2006 allt að:
2.450.000 . . . . . 100% niðurfelling
Brúttótekjur 2006 allt að:
2.890.000 . . . . . 80% niðurfelling
Brúttótekjur 2006 allt að:
3.390.000 . . . . . 50% niðurfelling
Tekjuviðmiðun er árstekjur 2006 skv.
skattframtali 2007.
Við mat á niðurfellingu fasteignaskatts og
holræsagjalda af eigin íbúð 75% öryrkja, skal
hafa hliðsjón af fyrrgreind um reglum.
Fasteignaskattur er lagður á með heimild í lög -
um nr. 4/1995, vatnsgjald með heimild í reglu -
gerð nr. 421/1992 og holræsagjald með heimild
í reglugerð nr. 507/1975 sbr. síðari breytingar.
Reynist heildarálögð gjöld 20.000 kr. eða lægri
er gjalddagi gjaldanna 1. febrúar 2007.
Gjalddagar fasteignagjalda árið 2007 eru
1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og
1. júlí. Eindagi er 30 dögum síðar.
Lækkanir eða niðurfellingar hjá ellilíf eyris- og
örorkubótaþegum taka ein göngu til
fasteignaskatts og holræsa gjalds en ekki til
lóðaleigu, vatnsgjalds og sorpeyðingargjalds.
Orðsending til elli-,
lífeyris- og örorku -
þega í Hafnarfirði