Fjarðarpósturinn - 08.02.2007, Page 1
ISSN 1670-4169w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
6. tbl. 25. árg. 2007
Fimmtudagur 8. febrúar
Upplag 8.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.66north.is
Miðhraun 11 - Sími 535 6600
Opið
alla daga
til 21
HVALEYRARBRAUT
www.as.is
Sími 520 2600
Kennt á
öskudag
Vegna eindreginna óska
foreldraráða og foreldrafélaga í
grunnskólum bæjarins verður
kennt á öskudag til kl. 11 og
nemendum verða ekki gefin
leyfi til að fara í bæinn á þeim
tíma. Töluverð gagnrýni hefur
verið á ferðir barna í fyrirtæki
bæjarins til að reyna að fá
sælgæti gegn söng. Búist er við
dagskrá í flestum skólum í
staðinn auk þess sem líklegt er
að öskudagsball verði eftir
hádegi að venju.
Vilja ekki
Capacent
Sól í Straumi gerir athuga -
semdir við val Hafnar fjarðar -
bæjar á Capacent sem óháðum
kynningaraðila í aðdraganda
kosninga um stækkunina í
Straumsvík á sama tíma og
fyrir tækið vinni skoðana kann -
an ir og markhópa grein ing ar
fyrir Alcan. Skora samtökin á
bæjaryfirvöld að endurskoða
ákvörðun sína.Í könnun sem Talnakönnun
gerði fyrir Vísbendingu dagana
17. - 22. janúar sl. meðal Íslend -
inga kemur í ljós að 55% þeirra
sem tóku afstöðu voru fylgjandi
stækkun álversins í Straumsvík
en 45% á móti. Mikill munur var
á afstöðu kynj anna en tveir af
hverjum þremur körlum studdu
stækkun ina en aðeins 43%
kvenna.
Yfir 80% svarenda höfðu
myndað sér skoðun á málinu en
konur voru áberandi óákveðnari
í afstöðu sinni.
Vert er að geta að könnun þessi
var gerð hjá úrtaki af öllu landinu
en það verða aðeins Hafnfirð -
ingar sem fá að taka afstöðu til
þess hvort auglýsa eigi deili -
skipulagstillöguna.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
sam þykkti að tillaga að deili -
skipu lagi vegna stækkunar
álvers ins í Straumsvík dags. 15.
jan. 2007 verði auglýst með
fyrirvara um niðurstöðu vænt -
anlegrar atkvæðagreiðslu meðal
íbúa í Hafnarfirði um deili -
skipulagstillögunaa
Meirihluti landsmanna
fylgjandi stækkun álversins
En það verða Hafnfirðingar einir sem fá að ráða
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Um 150 manns mættu í 100
ára afmæli Verkalýðsfélagsins
Hlífar sem haldið var í Íþrótta -
húsinu við Strandgötu. Vel var
staðið að hátíðinni og umgjörð
glæsileg. Kristján G. Gunnars -
son, formaður Verka lýðs- og sjó -
mannafélags Keflavíkur var
veislustjóri og fórst vel úr hendi
Margir héldu ávörp og færðu
félaginu gjafir en hápunktur
dagsins var þegar Kolbeinn
Gunn arsson, formaður afhenti
gullmerki félagsins.
Ekki er vitað nákvæmlega um
daginn sem félagið var stofnað
sem mun þó hafa verið um
mánaðarmótin janúar - febrúar
1907 en til gamans má geta að
Kvenfélagið Hlíf á Akureyri varð
100 ára 4. febrúar, daginn sem
afmælishátíð Hlífar var haldin.
Fengu gullmerki á 100 ára afmæli
Verkalýðsfélagið Hlíf fagnaði aldarafmæli sínu
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Hversu lengi fáum við að sjá svona við bæjardyrnar?
Kolbeinn Sigurjónsson, Guðríður Elíasdóttir, Hörður Sigursteins -
son, Þorbjörg Samúelsdóttir og Sigurður T. Sigurðsson fengu
gullmerki Hlífar.