Fjarðarpósturinn - 18.04.2007, Síða 1
ISSN 1670-4169w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
16. tbl. 25. árg. 2007
Miðvikudagur 18. apríl
Upplag 9.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.66north.is
Miðhraun 11 - Sími 535 6600
www.as.is
Sími 520 2600
Allir í
skrúðgöngu!
kl. 11 - Víðavangshlaup á
Víðistaðatúni
kl. 13 - Skátamessa í
Víðistaðakirkju
kl. 13.45 - Skrúðganga frá
Víðistaðakirkju
kl. 14-16 - Fjölskyldu -
dagskrá í umsjón skátanna
á Thorsplani.
Hafnarfjarðarbær kynnir
dag skrána í eigin dreifiriti.
Sjá nánar á bls. 2
Hafnarfjarðarbær
Skuldir juk -
ust um 22%
Rekstur Hafnarfjarðarbæjar
var jákvæður um 805 millj. kr.
fyrir fjármagnsliði en nei kvæð -
ur um 833 millj. kr. eftir fjár -
magnsliði sem voru neikvæð ir
um 1,6 milljarð kr. Mestu mun ar
um gengistap en á síðasta ári var
411 millj. kr. gengis hagn aður.
Veltufé frá rekstri var 15,3% en
var 11,4% á síð asta ári.
Skuldir bæjarfélagsins jukust
um 22% en skuldaaukningin
var 3,3 milljarðar kr. en eignir
hækkuðu um 12%. Rekstur
ársins 2006 fyrir fjármagnsliði
skilar 147 milljón króna verri
árangri en árið á undan sem fer
nærri þeim tekjum sem gert var
ráð fyrir því að skiluðu sér til
bæjarfélagsins með því að
Alcan í Straumsvík færi yfir í
íslenskt skattaumhverfi. Það
gekk ekki eftir.
Lækkun skatta
er fjölskyldumál
Fimm ungar stúlkur úr Hafnar -
firði eru á leið til útlanda með
Björk. Allar leika þær á málm -
blásturshljóðfæri og eiga það
sameiginlegt að hafa lært í Tón -
listarskóla Hafnarfjarðar. Þetta
eru þær Björk Níelsdóttir, tromp -
et, Erla Axelsdóttir, horn, Sigrún
Jónsdóttir, básúna, Sigrún K.
Jóns dóttir, básúna og Særún
Pálma dóttir, horn.
Þær voru valdar úr hópi fjöl -
margra umsækjenda til að leika
með Björk og munu fara um all -
ar heimsálfurnar næsta hálft ann -
að árið ásamt 5 öðrum blásurum
og öðrum tónlistarmönnum. Þær
leggja af stað í dag og er för inni
fyrst heitið til Bandaríkjanna þar
sem tónleikar verða í New York,
Chicago, Denver og San
Fransisco. Síðan liggur leiðin um
Evrópu í júlí og ágúst.
Björk Níelsdóttir hefur líka lagt
stund á söng og var að ljúka fram -
haldsprófi í söng frá Tón -
listarskólanum á mánu daginn
með stórglæsilegum tón leikum.
Sigrún K. leikur auk básúnunnar
á fiðlu og lauk framhaldsprófi á
föstudaginn með glæsilegum
tónleikum og Erla tók F1 sem er
hluti framhaldspróf í síðustu
viku. Þessar stúlkur eru aldar upp
í Lúðrasveit Tónlistarskólans og
hafa líka spilað með Lúðrasveit
Hafnarfjarðar.
Spila með Björk á tónleikum
Fimm hafnfirskar stúlkur í úrvalssveit
L
j
ó
s
m
.
:
E
i
n
a
r
J
ó
n
s
s
o
n
Sigrún K., Björk, Sigrún, Erla og Særún.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n