Fjarðarpósturinn - 24.05.2007, Page 1
ISSN 1670-4169w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
21. tbl. 25. árg. 2007
Fimmtudagur 24. maí
Upplag 9.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.66north.is
Miðhraun 11 - Sími 535 6600
Opið
alla daga
til 21
HVALEYRARBRAUT
www.as.is
Sími 520 2600
Ný fjólublá ríkisstjórn hefur
verið mynduð með 6 ráðherrum
úr hvorum flokki, Sjálfstæðis -
flokki og Samfylkingu. Aðeins
ein breyting var gerð hjá Sjálf -
stæðisflokki, Sturla Böðv ars son
fer út og Guðlaugur Þór Þórðar -
son, 1. þingm. Rvk. N tekur við
heil brigðis ráðu neytinu. Arnbjörg
Sveinsdóttir, 5. þingm. NA verð -
ur áfram þingflokks for mað ur.
Gunnar Svavarsson (S), 2.
þingmaður SV-kjördæmis fékk
ekki ráðuneyti en 8. þingmaður
kjördæmisins, Þórunn Svein -
bjarnardóttir, sem Gunnar keppti
við í prófkjöri og vann, verður
umhverfisráðherra. Katrín Júl -
íus dóttir sem er 5. þingm. kjör -
dæmisins fékk heldur ekki náð
hjá formanninum. Aðrir ráð herr -
ar flokksins eru Ingibjörg Sól rún
Gísladóttir, 2. þingm. Rvk.S,
utanríkisráðherra, Björg vin G.
Sigurðsson, 2. þingm. S, við -
skipta ráðherra, Össur Skarp héð -
insson, 2. þingm. Rvk. N, iðn -
aðarráðherra, Kristján Möller, 3.
þingm. NA, sam göng urá ðherra
og Jóhanna Sigurðar dótt ir, 4.
þingm. Rvk. N, félags mála ráð -
herra.
Í samtali við Fjarðarpóstinn
sagðist Gunnar Svavarsson hafa
samþykkt tillögu formannsins en
auðvitað hafi hann sóst eftir
ráðuneyti. Ákveðið hafi verið að
hafa jafnt hlutfall kynja og fjórir
oddvitar hafi fengið sæti og tvær
konur til að jafna kynjahlutfallið.
Miðað við þessar forsendur hafi
ekki verið pláss fyrir hann.
Hann vildi ekkert gefa upp um
afstöðu sína til þessarar niður -
röðunar.
Tveir ráðherrar úr SV-
kjördæmi – báðar konur
8. þingmaðurinn ráðherra en ekki sá nr. 2
L
j
ó
s
m
.
:
S
m
á
r
i
G
u
ð
n
a
s
o
n
Eru fimmtugir
barnlausir?
Fjölgun íbúða
umfram
skipulag
Tveir fulltrúar í skipulags- og
byggingarráði, Trausti Bald -
urs son (S) og Jón Páll Hall -
grímsson (V) gagnrýndu
harðlega fjölgun íbúða á
Skipalóni 16-20 þar sem eru
íbúðir fyrir 50 ára og eldri.
Með þessari fjölgun og fyrri
fjölgun vegna mistaka og
hugsanlegri fjölgun á öðrum
lóðum megi búast við 16 auka
íbúðum sem muni auka
umferðarálag og segir í bókun
Trausta að engin trygging sé
fyrir því að álag á Hval -
eyrarskóla aukist ekki þrátt
fyrir að íbúarnir séu 50 ára og
eldri.
Friðarljósi
stolið
Friðarljósi skátanna var
stolið úr Jósefskirkju á mið -
vikudaginn í síðustu viku en
friðarljósinu er haldið við allt
árið í kirkjunni en um jól er því
dreift um landið. Kerti sem
þarna var og bar loga af lugt -
inni var logandi og færði Ás -
geir Sörensen, sem haft hefur
umsjón með Friðar log anum
undanfarin ár, ljós af kert inu
yfir á varalugt og er henni nú
komið fyrir í læstu rými.
Friðarloginn kemur frá Jerú -
sa lem en kom hingað til lands
frá Danmörku.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Það getur verið glæsilegt brimið við Hraunavík við Hvaleyrina þó öldurnar teljist ekki mjög stórar.
Fékk Gunnar Svavarsson ekki ráðuneyti vegna kynferðis?
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
565 2525
Hjallahrauni 13
30%
afsláttur
af sóttum pizzum
Gildir ekki með öðrum tilboðum