Fjarðarpósturinn - 31.05.2007, Blaðsíða 8
Geir Bjarnasyni, forvarnar full -
trúa var í síðustu afhent viður -
kenning Foreldraráðs Hafnar -
fjarðar við athöfn í Hafnarborg.
Þegar kom að því að velja
þann sem viðurkenninguna átti
að hljóta var valið nokkuð
auðvelt að sögn Helenu Mjallar
Jóhannsdóttur, formanns for -
eldra ráðsins, því allir voru á einu
máli um ágæti Geirs enda allir
sammála um að erfitt sé að finna
jafn ötulan og liðlegan mann
þegar kemur að kvabbi við að
mæta með forvarnir inn í t.d.
skólastofnanir okkar sama hvort
er snemma morguns eða að
kvöldi. „Við erum rík að eiga
jafn mikinn mannauð og við
eigum í Geir Bjarnasyni,“ sagði
Helena er hún afhenti Geir
málverk eftir Jean Posocco.
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 31. maí 2007
Í tilefni af 105 ára afmæli
Krist ínar Guðmundsdóttur þann
11. maí gaf innflutnings fyrir -
tækið FASTUS fullkomið
sjúkra rúm á Deild 3 á Sólvangi.
Rúmið er afar fullkomið með
sérstaklega þægilegri sjúkradýnu
af bestu gerð. Að sjálfsögðu var
strax búið um Kristínu sem er
elsti Íslendingurinn og hefur hún
virkilega notið sín og hvílst vel í
rúminu frá fyrsta degi.
Rúmið býður upp á mjög
mikla fjölbreytni hvað varðar
stillingar enda hentar hverjum og
einum ekki það sama. Til dæmis
er Kristín mun betur fær um að
matast sjálf og minni þörf er fyrir
hana að snúa sér.
Sandra Hjálmarsdóttir hjúkr -
un ar fræðingur hjá FASTUS af -
henti gjöfina og kenndi jafnframt
starfsfólki Sólvangs á þá stil li -
möguleika sem bjóðast með
slíku sjúkrarúmi.
Á sunnudaginn heldur Kór
Flensborgarskólans hátíðar tón -
leika í Hamarssal Flens borgar -
skól ans kl. 16. Einsöngvari á
tónleik unum verður tenór söngv -
arinn Eyjólfur Eyjólfsson og
píanó leikari Ástríður Alda Sig -
urðardóttir en þau útskrifuðust
bæði úr Flensborgarskólanum og
störfuðu jafnframt í kór skólans.
Tónleikarnir eru liður í hátíð -
ar höldum í tilefni af 125 ára af -
mælis Flensborgarskólans. Kórn -
um hafa hlotnast fjórar nýj ar
tónsmíðar á árinu og verða þrjár
þeirra frumfluttar á tón leik unum
3. júní. Forsala aðgöngumiða er í
Súfistanum, Strandgötu 9, á skrif -
stofu Flensborgarskólans og hjá
kórfélögum. Að vanda verður
boðið upp á frítt kaffi og meðlæti
í hléi. Stjórnandi Kórs Flens -
borgarskólans er Hrafnhildur
Blomst erberg.
Í júlí leggur kórinn enn á ný
land undir fót og aftur til Torre -
vieja á Spáni, þar sem kórnum
hefur aftur verið boðin þátt taka í
alþjóðlegu kórakeppninni Certa -
ment International de Haba neras
y Polifónía. Að sumarleyfi loknu
hefst svo kórstarfið aftur og þá
geta áhugasamir þreytt inn -
tökupróf.
Afmælistónleikar Kórs
Flensborgarskólans
Eyjólfur Eyjólfsson syngur einsöng með kórnum
Kór Flensborgarskólakórsin í Hamarssal.
Áttu hjól sem
má láta í gott
málefni?
Hafnarfjarðardeild RKÍ aug -
lýsir eftir hjólum fyrir verk efni
með hælisleitendum. Hjólin
þurfa ekki að vera ný, aðeins vel
nothæf til almennra hjól reiða.
Hópur heimsóknarvina heim -
sækir hælisleitendur einu sinni í
viku og stefnir nú að því að
safna fjórum til fimm reið -
hjólum til afnota fyrir hælis leit -
endur. Hjólin verða merkt
Rauða krossinum og eign hans.
Hælis leitendur hafa sér stak lega
óskað eftir reiðhjólum til afnota
til að geta farið í stutta
hjólreiðatúra til að brjóta upp
daginn hjá sér.
Ef þú átt reiðhjól sem þú vilt
gefa þá hafðu samband við
okkur í síma 565 1222.
Sýning hjá
Fjölgreina -
námi
Sýning á verkum nemenda
Fjölgreinanáms verður í Gamla
Lækjarskóla dag ana 1. og 2.
júní.
Föstudaginn 1. júní verður
opið frá kl. 10 til 17 og
laugardaginn 2. júní frá kl. 10 til
15.
Nemendur standa fyrir kaffi -
sölu meðan á sýningu stendur
og mun ágóði af henni renna til
ABC barna hjálp arinnar.
Álftnesingar
harma sölu á
HS
Vilja taka upp
samninginn um söluna
Samþykkt var á bæjar stjórn -
arfundi á Álftanesi að kanna
með viðræðum við Hita veitu
Suðurnesja hvort hægt væri að
taka upp samning um sölu
hlutafjár sveitarfélagsins í HS
sem gerður var í desember 2005
og til vara að verðmæti hlutafjár
yrði endurskoðað í ljósi nýlegrar
sölu á hlut ríkisins í fyrirtækinu.
Grænn
markaður
Hinn árlegi Græni markaður
Kvenfélags Álftaness verður
haldinn á laugardaginn frá kl. 11
til kl. 16 við Náttúruleikskólann
Krakkakot.
Mikið og fjölbreytt úrval af
sumarblómum, fjölærar plöntur,
krúttrunnar, valin tré í útipotta,
garðskraut, mat- og kryddjurtir,
mold og áburður.
Nýr fram -
kvæmdastjóri
Fim leikafélagið Björk hefur
ráðið nýjan framkvæmdastjóra
fyrir félagið, Gauta Má Guðna -
son. Gauti Már hefur starfað
sem yfirþjálfari taekwondo -
deildar félagsins síðasta starfsár
auk þess sem hann sat í stjórn
taekwondodeildarinnar um
árabil. Gauti Már er stúdent frá
Verslunarskóla Íslands og er að
ljúka námi í hagfræði við
Háskóla Íslands.
Gauti Már tekur við af Hall -
gunni Skaptason
sem verið hef -
ur fram -
k v æ m d a -
stjóri Bjark -
ar til margra
ára.
Katrín Árnadóttir, fiðlukennari
í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
lætur af stöfum um þessar mund -
ir og hélt hún glæsilega kveðju -
tónleika með nemendum sínum í
skólanum sl. fimmtudag. Katrín
hefur kennt við skólann í yfir 20
ár og náð mjög góðum árangri
með nemendum sínum.
Kata fiðlukennari kveður
Katrín Árnadóttir, l.t.h. ásamt nemendum sínum sem léku á kveðjutónleikunum sl. fimmtudag.
L
j
ó
s
m
.
:
K
r
i
s
t
j
a
n
a
Þ
.
Á
s
g
e
i
r
s
d
ó
t
t
i
r
Gaf fullkomið sjúkrarúm
Sandra Hjálmarsdóttir ásamt Kristínu, 105 ára, í nýja rúminu.
Bókasafnið býður 10-12 ára
börnum sem hafa gaman af að
búa til sögur upp á 3ja daga
ritsmiðju dagana 11. til 13. júní,
eftir hádegi. Þar fá börnin
tækifæri til að vinna að skap -
andi skrifum með rit höf und -
inum og myndskreytinum
Ragnheiði Gestsdóttur.
Skráning fer fram á bóka -
safninu 1.-8. júní. Ókeypis
þátttaka meðan húsrúm leyfir
Ritsmiðja fyrir 10-12 ára
Geir fékk foreldraverðlaunin
Geir Bjarnason og Helena Mjöll Jóhannsdóttir.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n