Fjarðarpósturinn - 31.05.2007, Síða 11
Knattspyrna
Úrvalsdeild karla:
FH-HK: 4-0
Fram - FH: 0-2
2. deild karla:
Haukar - KS/Leiftur: 1-1
Sindri - ÍH: 1-0
1. deild kvenna:
FH - Leiknir R.: 4-2
Afturelding - Haukar: 10-2
Næstu leikir:
Knattspyrna
31. maí kl. 20, Kaplakriki
ÍH - Ýmir
(bikarkeppni karla)
31. maí kl. 20, Ásvellir
Haukar - FH (br. tími)
(bikarkeppni kvenna)
1. júní kl. 20, Skallagr.völlur
Skallagrímur - Haukar
(bikarkeppni karla)
4. júní kl. 20, Valbjarnarv.
Þróttur Rvk. - FH
(1. deild kvenna, a-riðill)
Lið UMFÁ
keppir í
meist ara flokki
Á síðasta ári var stofnaður
meistaraflokkur í knattspyrnu
hjá Ungmennafélagi Álftaness,
UMFÁ og hefur öflugur hópur
30-40 stráka stundað æfingar
undanfarið. Þann 20. maí urðu
svo þau tímamót að spilaður
var fyrsti meistaraflokksleikur
UMFÁ á Bessastaðavelli en
fyrir leikinn var undirritaður
samningur við Nettó sem aðal
styrktaraðila liðsins.
Lið UMFÁ er í þriðju deild
og þessi fyrsti leikur var við
Tindastól frá Sauðárkróki sem
hefur haft góðu liði á að skipa.
Nokkur strekkingur var en
hvorki knattspyrnumenn né
áhorfendur létu það spilla
góðum degi. Lið UMFÁ átti
góðan leik jafnt í sókn sem
vörn og fékk fleiri mark tæki -
færi í leiknum en and stæð ing -
arnir. Leiknum lauk með jafn -
tefli 0-0 og voru áhorf endur
ánægðir með árang ur sinna
manna í þessum heimaleik.
www.fjardarposturinn.is 11Fimmtudagur 31. maí 2007
Íþróttir
Auglýsing í Fjarðarpóstinum borgar sig!
Auglýsingasíminn: 565 3066
Þegar þú vilt ná til
Hafnfirðinga...
Hei þú…!
Viltu verða
• Flottur kroppur?
• Líða betur?
• Fá meira sjálfstraust?
• Það er leikur að breytast
með okkur
4 vikna frítt aðhaldsnámskeið
Vigtun og mæling vikulega
Skráning er hafin
Vertu með ☺
Dagný og Kalli
S: 897-7612 / 866-2220
Herbalife heilsuráðgjafar
Heldur fannst mér lítið leggjast
fyrir ágætan ritstjóra Fjarðar -
póstsins í síðasta blaði. Amaðist í
leiðara út í verðskuldaða upp -
hefð Þórunnar Svein bjarnar dótt -
ur í sæti umhverfis ráðherra og
taldi smán arlega farið
með Gunn ar Svavars -
son. Undir þetta var
for síðan einnig lögð. Á
öllum Norður lönd un -
um nema Íslandi er
það orðin regla, að
hafa jafnvægi milli
karla og kvenna í ráð -
herrastólum. Í nýrri
ríkis stjórn Finnlands
eru konurnar reyndar
fleiri (12 og 8). Það var því mjög
til sóma fyrir formann Sam -
fylkingarinnar að taka jafnrétti
milli kynja fram yfir gogg -
unarröðina.
Ef ég man rétt hefur Þórunn
setið 8 ár á Alþingi. Sú reynsla
og yfirburðaþekking á um -
hverfis málum er nægt veganesti í
ráð herrastól. Ekki fékk Guð -
bjartur Hannesson ráðherrasæti,
þó að hann væri efstur á lista á
Norð vesturlandi, enda nýr á
þingi eins og Gunnar Svavars -
son. Ekki ætla ég að draga í efa
hæfni og dug Gunnars til æðstu
starfa í stjórn okkar lands. Sá
myndi nú aldeilis taka til hend -
inni. Það mun okkar ágæta Þór -
unn líka gera.
Er þetta nú ekki svolítill Hafn -
ar fjarðarrembingur og tveir
ráðherrar fyrir á stalli. Þegar ég
var að alast upp vestur á Snæ -
fells nesi, máttu Óls arar og
Sandarar ekki hittast. Svo var
lagður vegur undir
Ennið og nú eru allir
undir Jökli í sama
sveitarfélaginu. Það
eru a.m.k. nægir vegir
milli Hafnarfjarðar og
Garðabæjar og sumir
vita varla í hvoru
bæjarfélaginu þeir
búa. Svo erum við í
sama kjördæminu.
Í kosningunum um
álverið í vetur tók Þórunn
afdráttarlausa afstöðu gegn
stækkun. Fátt hefur líklega
komið Samfylkingunni betur á
lokaspretti kosninga baráttunnar,
en úrslitin í Hafn ar firði. Og nú er
sá flokkur komin í ríkisstjórn.
Kannski réði þetta ein hverju um
að Þórunn Svein bjarnardóttir er
nú orðin um hverfisráðherra?
Höfundur er Hafnfirðingur af
Snæfellsnesi.
Gunnar, Þórunn og leiðarinn
Reynir
Ingibjartsson
Hátíðartónleikar
Í tilefni af 125 ára afmæli Flensborgarskólans
Frumfluttar verða þrjár nýjar tónsmíðar
Einsöngvari: Eyjólfur Eyjólfsson
Píanóleikari: Ástríður Alda Sigurðardóttir
Stjórnandi: Hrafnhildur Blomsterberg
Sunnudaginn 3. júní 2007 kl. 16
í Hamarssal Flensborgarskólans
Forsala aðgöngumiða er í Flensborgarskólanum,
Súfistanum Strandgötu 9 Hafnarfirði,
Súfistanum Laugavegi 18 Reykjavík og hjá kórfélögum
Frítt kaffi og meðlæti í hléi. Aðgangseyrir kr. 2000,
kr. 500 fyrir börn 12 ára og yngri
Frítt fyrir nemendur Flensborgarskólans
Fatahreinsun
JAKKAFÖT .................................... 1.630,-
HEIMILISÞVOTTUR (30 stk, 15 lítil og 15 stór) ......3.980,-
SKYRTUR ........................................ 400,-
KÁPUR.......................................... 1.435,-
GARDÍNUR (pr. kg.) ................................ 815,-
ÞVOUM OG HREINSUM ALLAN FATNAÐ
GLUGGATJÖLD OG MARGT FLEIRA
ALLT Á HREINU SÍÐAN 1965
HRAUNBRÚN 40
SÍMI 555 1368
Er FH að
stinga af?
FH sigraði Fram á þriðju -
daginn 2-0 og eru komnir með 4
stiga forystu eftir aðeins 4
umferðir. Liðið hefur unnið alla
sína leiki en Valur, sem er í 2.
sæti hefur aðeins unnið 2 af 4
leikjum sínum.
Matthías Guðmundsson og
Tryggvi Guðmundsson skoruðu
mörk FH og eru þeir marka -
hæstir FH-inga með 4 mörk hvor
en Arnar Gunnlaugsson hefur
skorað 3 mörk.
Hvort FH sé að stinga af skal
ósagt enda getur margt gerst enn
því Íslandsmótið er rétt byrjað.
L
j
ó
s
m
.
:
J
ó
h
a
n
n
e
s
L
o
n
g
L
j
ó
s
m
.
:
J
ó
h
a
n
n
e
s
L
o
n
g