Fjarðarpósturinn - 13.09.2007, Síða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. september 2007
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um Hafnarfjörð og
margvíslega starfsemi á vegum sveitarfélagsins hjá þjónustuveri
bæjarins í síma 585 5500 og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is
VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR!
Tillaga að breytingu á
Aðalskipu lagi Hafnarfjarðar
2005-2025,
íbúðabyggð við Jófríðarstaði
Bæjarráð í umboði Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, samþykkti á fundi
sínum þann 26. júlí 2007, að auglýsa tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 vegna íbúðabyggðar við
Jófríðarstaði í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 m.s.br.
Tillagan felur í sér að hluti stofnanareits við Jófríðarstaði breytist í
íbúðarreit. Í gildandi aðalskipulagi, er um 16.300 m² og skilgreint
„Kaþólska kirkjan og leikskóli“. Breytingin felur í sér að svæðið
skiptist í þrennt á eftirfarandi hátt: lóð Kaþólsku kirkjunnar verður
um 7.410 m², íbúðasvæði verður 4.450 m² og leikskólalóð verður
4.400 m². Breytingarnar eru gerðar til samræmis við tillögu að
deiliskipulagi fyrir lóð Kaþólsku kirkjunnar.
Auglýsing um breytingu á
samþykktu deiliskipulagi á
kirkjulóð við Jófríðarstaði
í Hafnarfirði
Bæjarráð Hafnarfjarðar í umboði bæjarstjórnar, samþykkti á fundi
sínum þann 26. júlí 2007, að auglýsa til kynningar tillögu að
breytingu á deiliskipulagi á kirkjulóð við Jófríðarstaði í Hafnarfirði í
samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Breytingin felst í því að hluti stofnanareits breytist í íbúðareit. Gert
er ráð fyrir þremur íbúðabyggingum með 5 íbúðum í hverri byggingu.
Einnig er gert ráð fyrir að hver bygging sé 3 hæðir þar sem efsta
hæðin verði inndregin á 3 hliðar.
Aðalskipulagið og deiliskipulagið verða til sýnis í þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá 6. september – 4. október 2007.
Nánari upplýsingar eru veittar á skipulags- og byggingarsviði.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta við aðalskipulagið eða
deiliskipulagið er gefinn kostur á að gera við þau athugasemdir, og
skal þeim skilað skriflega til skipulags- og byggingarsviðs
Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 16. október 2007. Þeir sem ekki gera
athugasemdir teljast samþykkir skipulaginu.
Skipulags- og byggingarsvið Hafnarfjarðar
Auglýsing um skipulag -
Hafnarfjarðarkaupstaður
Í Hafnarfirði eru 16 leikskólar,
15 reknir af Hafnarfjarðarbæ og
leikskólinn Hjalli sem starfræktur
er samkvæmt rekstrarsamningi
við bæinn. Á leikskólunum höf -
um við, upp til hópa, á
að skipa hæfu og góðu
starfsfólki. Að sjálf -
sögðu eiga leik skóla -
kenn arar að leiða fag -
legt starf, en af þeim
hef ur ekki verið nægi -
legt framboð til að
manna allar stöður
leik skólanna. Ófaglært
starfs fólk hefur því
einn ig mótað góða og
faglega uppbyggingu leik skóla -
starfs. En hvað er gert til þess að
halda í það góða starfsfólk sem
við höfum og fá nýtt fólk til starfa.
Hér skal stiklað á stóru hvað það
varðar með von um að þú viljir
slást í hópinn.
- Samkvæmt skólastefnu Hafn -
ar fjarðar eiga leikskólar þess kost
að gerast forystuskólar og marka
sér með þeim hætti sérstöðu og
efla faglegt starf,
- Einnig hefur skólunum gefist
kostur á að sækja um framlög til
þróunarverkefna sem gefa starfs -
fólki tækifæri til að eflast og
þroskast í starfi.
- Leikskólakennarar geta sótt
um námsleyfi að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum.
- Leikskólakennarar geta sótt
um TV-einingar (sem þýðir aukin
laun vegna tímabundinnar vinnu)
vegna sérstakra verkefna og
hæfni í starfi.
- Ófaglærðu starfsfólki leik -
skólanna býðst að sækja svo -
kallaða leikskólalínu á fram -
haldsskólastigi eftir að hafa aflað
sér eins árs starfsreynslu. Slíkt
tveggja anna nám með vinnu er
met ið til allt að 6 launaflokka
hækk unar.
- Viðbótarmenntun ófaglærðra
leiðir oft af sér fjarnám í leik -
skólakennarafræðum á háskóla -
stigi.
- Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
stendur fyrir fjölbreyttu úrvali af
sí- og endunmenntunar nám skeið -
um fyrir starfsfólk leikskólanna.
- Starfsfólk Skólaskrifstofu hef -
ur kynnt starfsemi leikskóla
Hafnarfjarðar meðal nema á
lokaári í leikskólakennarafræðum
við KHÍ og útskrifaðir leik skóla -
kennarar ráðist hér til starfa í
kjölfarið.
- Samkvæmt ákvörðun fræðslu -
ráðs hafa verið útfærðar regl ur um
styrkveitingar til ný útskrifaðra
leikskólakennara gegn
skuldbingingu um starf
við leikskóla Hafnar -
fjarðar.
- Skólastjórnendur
ein stakra leikskóla hafa
auglýst sér staklega
eftir starfsfólki í við -
kom andi skóla í stað
sameiginlegra aug -
lýsinga skólanna.
-Með markpósti í
skóla hverfi einstakra skóla er leit -
að eftir góðu starfsfólki.
- Leikskólahúsnæði hefur verið
byggt upp með markvissum hætti
á undanförnum misserum og
kappkostað að skapa gott starfs -
umhverfi fyrir nemendur og
starfsfólk.
- Unnið er að endurbótum á
hús næði þeirra leikskóla sem
komnir eru til ára sinna.
Hér hefur fátt eitt verið talið af
því sem unnið er að til að halda í
okkar góða starfsfólk og laða að
nýtt. Efni í nýja grein væri það
framlag sem margir af okkar
ágætu leikskólastjórnendum
leggja af mörkum í þeim efnum.
Erfitt er að fjalla um málefni
starfs fólks leikskólanna án þess
að nefna launamál og launakjör.
Miðað við þá tekjustofna sem
sveitarfélögum eru ætlaðir sam -
kvæmt lögum og það bætta og
síaukna þjónustustig sem íbúar
gera réttilega kröfu um og flest
sveitarfélög vilja veita, þá er bog -
inn hátt spenntur. En það er eðli -
legt og sjálfsagt að greiða því
fólki, sem menntar og sinnir um -
önnun þess sem við dýrmætast
eigum, góð laun. Með góðum
rekst ir á okkar ágæta bæjarfélagi
og vonandi aukinni hlutdeild í
tekjustofnum ríkisins ætti að
skapast aukið svigrúm til að bæta
kjör þeirra sem mennta og annast
börnin okkar.
Vilt þú vera með í að móta
framtíðina.- Við óskum eftir fólki
á öllum aldri til starfa við
leikskóla Hafnarfjarðar.
Höfundur er formaður
fræðsluráðs og forseti
bæjarstjórnar.
Við leitum að þér!
Ellý
Erlingsdóttir
Bikarkeppni FRÍ 16 ára og
yngri fór fram á Kópavogsvelli á
laugardaginn. FH sigraði bæði í
sveina og meyjaflokki og
samanlagt. Lið FH hafi yfirburði
í keppninni, sérstaklega í sveina -
flokki, þar sem þeir sigr uðu í sjö
keppnisgreinum af tíu og voru 18
stigum á undan næsta liði. Engin
Íslandsmet féllu á mótinu, en
sveinasveit FH var aðeins 17/100
úr sek. frá metinu í 1000m
boðhlaupi.
FH hlaut 197,0 stig samanlagt,
ÍR - A lið 163,5 stig og Breiða -
blik 157,0 stig.
FH bikarmeistari 16 ára og yngri
L
j
ó
s
m
.
:
K
r
i
s
t
j
a
n
a
O
d
d
n
ý
Þ
o
r
s
t
e
i
n
s
d
ó
t
t
i
r