Fjarðarpósturinn - 13.09.2007, Qupperneq 6
Í byrjun mars á þessu ári seldi
Ný-ung ehf. leigubifreiða -
stöðvarnar Aðalbíla í Reykja -
nesbæ og BSH til NL ehf. og í
framhaldi af því sögðu 30
bifreiðastjórar upp viðskiptum
við stöðvarnar og stofnuðu nýja
stöð, Aðalstöðina BSH ehf.
(síðar Aðalstöðina ehf.). NL ehf.
kærði þessar uppsagnir til Sam -
keppniseftirlitsins sem úrskurð -
aði uppsagnirnar brot á sam -
keppnis lögum. Leigu bifreiða -
stjórarnir áfrýjuðu niðurstöðunni
og áfrýjunarnefnd hnekkti þess -
um úrskurði 4. september sl.
Taldi nefndin ekki hafa verið
sýnt fram á að markaðshlutur
bif reiðastjóranna næði 5% og
fjöldi bifreiðastjóra ekki talinn
nægur grunnur til að ákvarða það
og því hafi þeir ekki gerst
brotlegir við 10. gr. sam keppn -
islaga.
Aðalstöðin BSH breitti nafni
sínu vegna mótmæla NL í
Aðalstöðina og þannig var
nafninu breytt í fyrirtækjaskrá og
á leyfisbréfum. En fleiri stöðvar
hafa breytt um nafn og NL heitir
nú „Leigubílastöðin 5678910
Aðalbílar-BSH-NL ehf.“ BSH
og Aðalbílar eru ekki lengur
skráð með leyfi til leigu bíla -
aksturs.
Aðalstöðin ehf. hefur opnað
aðstöðu að Reykjavíkurvegi 60
og er síminn þar 520 1212.
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. september 2007
Lítið notaður skrifstofustóll m/ háu
baki til sölu á kr. 6.000 kr.
Uppl. í s. 565 4541.
Mig vantar barngóða stúlku til að
gæta 5 ára stúlku á mánudags- og
miðvikudagskvöldum. Erum í
Setbergshverfi.
Uppl. í s. 865 8075 eftir kl. 17.
Ipod fannst í nágrenni
Setbergsskóla. Upplýsingar gefnar í
síma 565 1217.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
Tapað - fundið
Til sölu
Barnagæsla
Eldsneytisverð
12. september 2007 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 125,9 124,9
Atlantsolía, Suðurhö. 125,9 124,9
Orkan, Óseyrarbraut 125,8 124,8
ÓB, Fjarðarkaup 126,4 124,4
ÓB, Melabraut 126,4 124,4
Skeljungur, Rvk.vegi 128,0 126,0
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð u olíufélaganna.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir HarðarsonSverrir Einarsson
Rakel 869 7090 • Sindri 861 7080 • www.kolbrunrakel.is
Næring + Hreyfing + Fræðsla = Árangur
Sjálfstæðir dreifingaraðilar
Barmmerki við öll tækifæri
www.barmmerki.tk
Frábær árangur með Herbalife
Ráðgjöf og eftirfylgni. Fríar prufur
Þyngdarstjórnun - Aukin orka
Gerður Hannesdóttir sjálfst. dreifingaraðili.
865 4052 • 565 1045 • ghmg@simnet.is
Evrópsk samgönguvika verður
haldin í sjötta sinn, dagana 16.-22.
september. Þemað að þessu sinni
er „Götur fyrir fólk“ og má lesa
um það á heimasíðu vikunnar
www.mobilityweek-europe.org.
Tilgangurinn með sam -
göngu viku er að efla vitund al -
menn ings um samgöngur,
hvaða áhrif þær hafa á um -
hverfi og heilsu og hvaða val -
kostir standa okkur til boða.
Sam göngu vandamál samtíðar
verða ekki leyst með því einu
að taka sífellt meira landsvæði
undir samgöngumannvirki.
Þvert á móti ætti að draga úr
um fangi samgöngu mann virkja
til að ná fram sjálf bær um og
skilvirkum lausnum sem um leið
stuðla að heilbrigð ari lífstíl íbúa
án þess að þrengja að hreyfan -
leika einstakl ingsins.
Verkefni í skólum
Í Hafnarfirði verður dagskrá
þessa viku, líkt og síðustu ár.
Skól ar bæjarins taka virkan þátt
og í þeim verða unnin marg vísleg
verkefni þessa daga. Nem endur
verða m.a. fræddir um öryggis -
mál í samgöngum og þeir munu
velta fyrir sér örugg um leiðum til
og frá skóla, sér staklega fyrir
hjólandi og gang andi vegfar end -
ur. Einnig verða unnin verkefni
um um hverfis áhrif sem fylgja
sam göng um, bæði hvað varðar
meng un sem fylgir, auðlinda -
notkun og land notkun.
Málþing í Hafnarborg
Fimmtudaginn 20. septem -
ber verður haldið málþing sem
hefur yfirskriftina umhverfi,
heilsa, borgarbragur. Þar munu
áhrifa menn og sérfræðingar í
sam félaginu velta fyrir sér
hvert við stefnum í sam göngu -
málum, hvort horfa megi til
nýrra lausna og hvort nýta
megi land á annan máta en
undir samgöngu mann vikri.
Jafnframt verður samband
samgangna og heilsu skoðað.
Málþingið verður í Hafnarborg
og hefst klukkan 20. Dagskrá
verður nánar auglýst síðar.
Hjólað til Reykjavíkur
Laugardaginn 22. september er
hjóladagur samgönguviku. Kl. 12
mun hjólalest leggja af stað frá
Hafnarborg og hjóla sem leið
liggur til Reykjavíkur til þátttöku
í dagskrá við Ráðhús Reykja -
víkur. Farið verð ur rólega yfir og
áð á leiðinni enda markmiðið að
öll fjölskyldan taki þátt í förinni.
Fyrir lestinni munu fara félagar í
Hjólafélagi Hafn firskra kvenna
HKK en félag ið hefur vak ið
athygli fyrir gott og skemmtilegt
starf við út breiðslu hjólamenn -
ingar í bæn um.
Það er von okkar að bæjarbúar
taki þátt í þessum viðburðum og
noti vikuna einnig til að skoða
samgönguvenjur sínar og velti
fyrir sér hvort þær megi ekki færa
í umhverfisvænna horf.
Guðfinna er formaður um -
hverfisnefndar Hafnarfjarðar
Guðjón Ingi er verkefnisstjóri
Staðardagskrár 21
Evrópsk samgönguvika
Fræðsla í skólum – Málþing í Hafnarborg – Hjóladagur 22. september
Guðfinna
Guðmundsdóttir
Guðjón Ingi
Eggertsson
HERBALIFE
Við viljum ráða
sjúkraliða, starfsfólk í aðhlynningu, býtibúr og
ræstingu á hjúkrunarheimilið Sólvang
Við sækjumst eftir áhugasömum
og metnaðarfullum einstaklingum.
Í boði er:
• Hlutastarf, einstaklingsmiðuð aðlögun, fræðsla,
• Góður starfsandi og teymisvinna þar sem mark -
miðið er að veita skjólstæðingum og fjölskyldum
þeirra bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á.
St. Jósefsspítali, Sólvangur er vinnustaður sem
leggur áherslu á umhyggju fyrir starfsfólki,
jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi og að
sérhver starfsmaður fái að njóta sín
Nánari upplýsingar gefa:
Erla M. Helgadóttir hjúkrunarstjóri, erla@solvangur.is
og í síma 590 6500 og
Birna G. Flygenring, framkvæmda stjóri hjúkrunar,
bgf@stjo.is og í síma 520 1000.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf skulu sendar til Erlu M Helgadóttur
hjúkrunarstjóra, Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði.
Laun ofangreindra starfa eru samkvæmt gildandi samningi
vikomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð
fást í upplýsingum STJO, Suðrugötu 41 og skrifstofu Sólvangs -
vegi 2, Hafnarfirði. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð
á heimasíðu stofnunarinnar www.stjo.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
Vilja betra
viðhald lóðar
Foreldri í Hvaleyrarskóla hafði
samband við blaðið og kvartaði
undan seinagangi Hafnarfjarðar -
bæjar við viðhald lóðar Hval -
eyrar skóla og einn bendi á annan
þegar skýringa væri leitað. Net í
mörkum væru rifin, girðingar
skemmdar en ekkert væri gert til
að bæta úr. Kennari sem
Fjarðarpósturinn ræddi við, tók
undir þessi orð og sagði að mun
betur mætti standa að viðhaldi
skólalóðarinnar.
Regnbogabörn
gefa litabók
Regnbogabörn, fjöldasamtök
gegn einelti ætla nú á haust -
dögum að gefa öllum börnum
sem eru að hefja nám í grunn -
skóla litabókina um Ýmu trölla -
stelpu. Þetta er ný og endurbætt
útgáfa en litabókin hefur þótt
prýðis gott fræðslu verkefni um
einelti fyrir yngstu börnin.
Ekki ólöglegar uppsagnir
hjá leigubílstjórum
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi
niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins