Fjarðarpósturinn - 13.09.2007, Blaðsíða 8
Gunnar B. Guðmundsson, leik -
stjóri missti af frum sýning unni en
tók á móti frumburði sínum í
staðinn á fæðingar deild inni og
undi vel við sitt. Gunnar er
Hafnfirðingur frá 2 ára aldri og
gekk í Lækjarskóla sem hann
breytti í fangelsi í myndinni.
Gunnar var liðtækur íþrótta mað -
ur, keppti í handbolta og frjálsum
íþróttum og margfaldur Íslands -
meistari. Hann hefur verið
viðloðinn Leikfélag Hafnar -
fjarðar frá 1993 og með í upp -
setn ingu um 20 leikverka auk
stuttmynda sem hann hefur gert.
Gunnar segir að unnið hafi
verið að myndinni í 6 ár og
ofboðslegur metnaður lagður í
hana og algjör misskilningur að
eitthvað léttara sé að gera grín -
mynd en aðrar myndir. Hand rit
myndarinnar skrifuðu þeir Ottó
Geir Borg og Jóhann Ævar
Gríms son og aðstoðar leikstjóri
var Alexía Björg Jó hannes dóttir.
Framleiðendur mynd arinnar voru
Hafn firð ing urinn Ingvar Þórðar -
son og Júlíus Kemp. Fjölmargir
Hafnfirðingar komu að verkinu
og meðal aðalleikara voru Snorri
Engil bertsson, Davíð Þór Jóns -
son, bræðurnir Halldór Magnús -
son og Steinn Ármann og sagði
Gunnar að allar helstu kanónur
Leikfélags Hafnarfjarðar hafi
verið með.
Myndin hefst á teiknuðum
ramma og Gunnar segir að líkja
megi myndinni við teiknimynda -
blað. Annars fjallar myndin um
samkvæmisstúlkuna Hildi sem
fer af illri nauðsyn að vinna í búð
sem sérhæfir sig í hlut verka -
leikjum og hasarblöðum. Áður en
varir heillast hún af ævin -
týraheimi hlutverkaleikja og
skilin milli hans og raun veru -
leikans verða óskýrari og ofur -
hetjan vaknar. Enginn ætti að
missa af þessari bráðskemmti legu
og vönduðu hafnfirsku kvik -
mynd.
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. september 2007
Bílaþjónusta
Magga
Pústþjónusta
Bílaþjónusta
Bónstöð
Opið virka daga kl. 9-18
Opið laugardaga kl. 9-16
Tilboð: (fólksbíll)
Alþrif aðeins kr. 5.495,-
Hraðþrif að utan kr. 1.195,-
Mössun kr. 9.995,-
Hvaleyrarbraut 2
sími 517 0350
Kringlan
Reykjavíkurvegur 74
Suðurlandsbraut 4A
konditori.is 588 1550
Kaffihús og bakarí
morgunverður og hádegisverður
Alhliða veisluþjónusta & salir
Mótið framtíðina
með okkur
Er nokkuð skemmtilegra en að taka þátt í að móta
framtíðina með börnum og unglingum?
Við leik- og grunnskóla bæjarins eru laus störf og hægt er
að velja um heilar stöður eða hlutastörf.
Allar upplýsingar gefa stjórnendur skólanna.
Sjá nánar á heimasíðum skólanna og heimasíðu
Hafnarfjarðar, www.hafnarfjordur.is.
Ertu stíf(ur)?
Heilsunudd og verkjameðferð
Upplýsingar og pantanir
í síma 699 0858
Erlendur M. Magnússon, heilsunuddari
Bæjarhrauni 2, 2.h
Fangarnir losa sig við jarðefni
í fangelsinu í Lækjarskóla.
Astrópía er skemmtun fyrir alla fjölskylduna
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir í upptöku við Kleifarvatn.
L
j
ó
s
m
.
:
B
j
a
r
n
i
G
r
í
m
s
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
B
j
a
r
n
i
G
r
í
m
s
s
o
n
Gunnar B. Guðmundsson
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n