Fjarðarpósturinn - 04.10.2007, Blaðsíða 8
Í Lesbók Morgunblaðsins hinn
22. september s.l. birtist samtal eftir
Lárus Ými Óskarsson, kvikmynda -
leikstjóra, sem hann átti við hinn
finnska starfsbróður sinn, Aki
Kauris mäki í síma. Eitt tilsvar Aki
Kaurismäki í þessu samtali er svo
skorinort, stutt og ógnvekjandi að
því verður ekki gleymt. Lárus spyr:
„Hvað finnst þér um Finnland?“
Kaurismäki svarar: „Fólkið er þarna
ennþá, en þjóðin er horfin.“
Við lestur þessara orða leitar
hugurinn í eigin rann. Hvað með
okkur Íslendinga? Erum við sem
þjóð á förum? Erum við að búa
okkur undir brottför?
Fyrir þúsund árum
lagðist vitur Íslendingur
undir feld á Alþingi.
Honum hafði verið falið
að finna heillaráð handa
ungri þjóðinni sem nú
hafði klofnað í tvennt.
Eftir langa legu undir
feldinum steig hann upp
á stein og mælti við
valdsmenn þjóðar sinnar
og þingheim allan: Við skulum hafa
einn sið í landinu. Ráðið var þegið
og eftir því var farið næstu þúsund
árin. Og gafst vel.
Ekki lengur einn siður
Nú við upphaf nýs árþúsunds þá
er allt á leið í sama farið aftur. Eftir
þúsund ár. Tveir siðir eru á góðri leið
með að kljúfa þjóðina í öndverðar
fylkingar. Nýr siður kenndur við
Mammon er að skjóta hér rótum og
er á góðri leið með að gera þann sið
sem fyrir var hlægilegan frá sínu
sjónarmiði. Þessi nýi siður afhelgar
það sem áður var heilagt. Nýlegt
dæmi er auglýsing fyrir síma, sem
seldir eru af fyrirtæki, sem einu sinni
var í sameign þjóðarinnar.
Vitringur allra tíma gekk á milli
þorpa fyrir botni Miðjarðarhafsins
fyrir tvö þúsund árum og spjallaði
við fólkið. Hann fullyrti að ekki væri
hægt að þjóna tveimur herrum. „Því
annaðhvort hatar maður annan og
elskar hinn eða þýðist annan og
afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað
Guði og mammon“, sagði hann og
bættti við: „Hvar sem fjársjóður þinn
er, þar mun og hjarta þitt vera.“
Sá sem svo mælti hafði 12 postula
í sínu liði. Mammon sem nú haslar
sér völl hefur 12 sinnum 12 postula
á sínum snærum og þeir eru að koma
sér fyrir í öllum kimum þjóðlífsins, í
iðnaðarráðuneytinu, Landsvirkjun,
verktakafyrirtækjum, orku fyrirtækj -
um, fjármálafyrirtækjum og að
einhverju leyti í ríkisstjórn og bæjar -
stjórnum víða um land. Það er hins
vegar ekki sjálfgefið að þennan
flokk skipi allir auðmenn Íslands.
Það ræðst af því hvar fjársjóður
þeirra er. Margir postular Mammons
hafa verið að koma sér fyrir í Hafn -
arfirði. Það mega þó valdsmenn
bæjarins eiga að þeir hafa spyrnt við
fæti. En þá hefur eina útleið þeirra
verið sú að freista þess að þjóna
tveimur herrum. Hugsuðu kannski
með sjálfum sér að það gæti verið
farið að slá í 2000 ára speki sunnan
úr Miðjarðarhafsbotni, því á sama
tíma og þeir heimiluðu Mammons -
postulunum að umbreyta hjarta
bæjarins með þvílíkum byggingum
að svíður í augu og sál á degi
hverjum efndu þeir til íbúakosningar
vegna óska annarra Mammons -
postula um að fá að stækka álverið í
bæjar jaðrinum um helming. Bæjar -
búar fengu þar með tækifæri til að
láta álit sitt í ljós í lýðræðislegum
kosn ingum. Og höfnuðu óskinni. En
ekki munaði nema örfáum at kvæð -
um sem þýddi að eining bæjar sam -
félagins var rofin, tveir siðir klufu
íbúana í tvennt.
Hverfandi útivistarparadís?
En lengi getur vont versnað. Nú er
verið að leggja drög að því, ef marka
má skrif Reynis Ingibjartssonar hjá
Reykjanesfólkvangi í
Fjarðar póst inum 27. sept.
sl., og í Morgun blað inu
30. september, að svipta
okk ur Hafnfirðinga úti -
vistar paradís okkar og
raunverulega leggja í rúst
eina helstu náttúruperlu
landsmanna allra, Krýsu -
vík, og stóran hluta þess
svæð is á Reykjanesi sem
búið var fyrir löngu að
ákveða að skyldi vera fólkvangur.
Valdsmennirnir, fulltrúar okkar,
íbúanna, hafa uppi óskir við stjórn
Reykjanessfólkvangs að breyta frið -
lýstu svæði í iðnaðar svæði til að
hægt verði að umbreyta því í
peninga námu. Nú á að þýðast annan
Guð en afrækja hinn. Ef það var þörf
á því að efna til íbúa kosn inga vegna
álversstækkunnar þá er hún enn
brýnni í tilviki Krýsuvíkur og óska
Hitaveitu Suðurnesja um að fá að
hefja þar tilraunaboranir enda
markmið framkvæmdarinnar að
útvega rafmagn til enn frekari
álvinnslu á Reykjanesi. En Reynir
og aðrir á sömu bylgjulengd hafa
talað fyrir því að við leitumst við að
njóta þessarar náttúruperlu án þess
að umturna henni. Beina frekari bor -
un um að þeim svæðum sem þegar
hefur verið raskað en hlúa að Krýsu -
vík og öðrum gildum perlum á
Reykja nesi t.d. með því að stofna
eld fjalla garð og fólkvang. Efla á
þeim vettvangi samspil náttúru,
menn ingar minja, listsköpunar,
skáta starfs og kristnihalds. Það er
ekki lengra en síðan í vor að við
minnt umst þess að 150 ár væru liðin
frá því að núverandi bygging Krýsu -
víkurkirkju var reist og 10 ár frá því
að listasafnið Sveinssafn, sem hefur
sýningaraðstöðu í Sveinshúsi í
Krýsu vík, var stofnað. Sveinssafn og
Krýsuvíkurkirkja hafa átt gifturíkt
samstarf í ræktun samspils trúar og
listar í Krýsuvík s.l. 10 ár. Í tilefni
þessara tímamóta orti Matthías
Johannessen kvæði og Atli Heimir
Sveinsson samdi við það tónlist. Í
kvæðinu segir skáldið:
Moldhlý er jörðin, mosgrænn blær af fjalli
mjúkhentur dagur við vatnsins öldunið,
eilífðin þagnar, þögn við dauðans klið.
Sól rís til himins, horfir eins og falli
himneskur dagur, nýr að ösku og gjalli
þangað sem hugarveröld vatnsins býr,
þangað sem lífið einatt aftur snýr
og jörðin föndrar glöð við sína liti
og án þess nokkur undrist það og viti,
hér er þinn guð og vinnur vorið að
þeim veruleika sem er eins og hniti
þríein sól um þennan grýtta stað,
líkast því sem lífið endurriti
leiftrandi von á dauðans minnisblað.
Undirritaður hefur ekki tölu á öll -
um þeim ferðum sem hann hefur
farið í Krýsuvík með útlendinga,
sem átt hafa það sammerkt að hafa
gert stuttan stans í landinu. Við höf -
um staðnæmst við Kleifarvatn þar
sem klettaandlit hvert öðru svip -
sterkara hafa boðið okkur inn í
„hugarveröld vatnsins“, og gildir þá
engu hvort hefur verið sumar eða
vetur, vor eða haust. Þvínæst hefur
leiðin legið í Seltún, þar sem jörðin
kraumar og skaparinn heldur
málverkasýningu við hvert fótmál.
Þaðan liggur leiðin í Krýs víkur -
kirkju, sem helguð var Maríu mey á
miðöldum og er í réttri andstæðu við
infernó Seltúnsins, áðan. Menning -
ar minjarnar allt um kring, enda var
Krýsuvíkurbærinn stórbýli á mið -
öldum. Kirkjan er yfirlætislaus og
laðar fram samtöl gesta sinna við
Guð í gestabókum sínum. Altaris -
taflan er eftir málarann Svein
Björns son, sem varði starfsævi sinni
til að fá okkur til að sjá fegurðina í
Krýsuvík. Upprisan, en svo nefnist
altaristaflan, varð til í kvikmynd sem
sýnir málara að störfum í þessu
kyngi magnaða umhverfi. Frá kirkj -
unni liggur leiðin heim til hans,
nema ferðafólkið hafi tíma til að
skreppa á Selatanga eða Krýsu -
víkurbjarg. Minnist ógleymanlegrar
stundar með New York búa þar sem
við sátum upp við fiskbyrgin þar og
hlustuðum á úthafsölduna sogast að
og frá. Í vinnustofuhúsi Sveins
opnast fólki enn einn heimurinn,
sem enginn á von á. Útsýnið úr
glugg um hússins er ekki síður mál -
verk en þau sem hanga á veggjum
þess. Úr einum glugga má sjá tvö
stöðuvötn í forgrunni og úthafið fyrir
handan á milli fjallanna Arnarfells
og Bæjarfells. Allt þetta ferðafólk
hefur ekki átt orð til að lýsa hug -
hrifum sínum, margbreytileika og
dýpt upplifunarinnar. Á slíkum
stundum skilur leiðsögumaðurinn
hversu mikið honum sjálfum hefur
verið gefið.
Og nú getum við spurt hvort lífið
sé þess megnugt að „endurrita leiftr -
andi von á dauðans minnisblað“. Og
hvort guð okkar sé að vinna vor -
verkin sín í Krýsuvík, þar sem
„jörðin föndrar glöð við sína liti“.
Kvæði Matthíasar er um von.
Enginn er svo aumur að hann geti
ekki átt sér von sem ekki verður frá
honum tekin. Það er von okkar allra,
sem aðhyllumst ríki fegurðarinnar í
lýðræðissamfélaginu íslenska að við
verðum spurð, hvort við séum til -
búin að fórna Krýsuvík fyrir þá pen -
inga sem postular Mammons vilja
búa þar til. Við vonum að komið
verði til móts við þá ósk, sem þá yrði
niðurstaða í kosningu, það er að
segja ef leyfisumsókn Hitaveitunnar
verður ekki hafnað. Verði vilji meiri -
hluta fólksins forsómaður eftir allt
sem á undan er gengið á Kára -
hnjúkum, Þjórsársvæðinu og víðar,
ætli við séum þá ekki á förum sem
þjóð?
Fegurð Krýsuvíkur verðmeiri
Tilfinningin sem við höfum fyrir
verðmætum í Krýsuvík er ekki sú
sama og hjá Hitaveita Suðurnesja.
Enda eru þar á bæ allt önnur viðmið,
annar siður. Við og þeir aðhyllumst
sitthvoran siðinn og erum eins og
fylkingarnar á alþingi fyrir þúsund
árum sem vitur maður bjargaði frá
ósköpum með því að segja að
siðurinn yrði að vera einn. Á meðan
þjóðin undi enn glöð við sitt á
öldinni sem leið, eignuðumst við
annan vitring ekki síðri Þorgeiri
Ljósvetningagoða. Sá fann leið í
skáldverki til að orða og sviðsetja
tilfinninguna sem að baki býr, þegar
við segjum að fegurð Krýsuvíkur sé
miklu verðmætari en öll sú orka sem
þar gæti verið hægt að virkja.
Halldór Laxness lætur skáld sitt í
Heimsljósi vera komið á skipsfjöl,
rúið allri eign og mannorði og er á á
leið í fangelsið fyrir sunnan. Við
erum stödd í fjórðu bók Heimsljóss,
sem heitir Fegurð himinsins. Skáldið
skrifar:
„Menn sigla út í heiminn við ólík
kjör, en það er altaf gaman, ekki síst
í fyrsta sinn, þó maður hafi orðið
síðbúinn; hið ókunna er fyrirheit í
sjálfu sér. Grænir reitir hlíðanna
teygja sig milli gilja og skriðna
uppundir sólroðin hamrabeltin; inn
milli fjallanna liggja grösugir dalir
með líðandi ám, sælir einsog
mannlíf þeirra væri goðsögn eða
ævintýri, slóðir fjallshlíðanna lokka
augu sæfarans. Nú þykist skáldið
alfrjáls þar sem hann stendur á
þiljum íklæddur flibba og stígvélum
og líður framhjá nýjum og nýjum
sveitum: þó hann eigi ekki gagn
þessa lands á hann fegurð þess. Í
fjarska gnæfir jökullinn, stærsta
auðlegð hans, þúsund hans og
miljón. Fegurð hlutanna er æðri en
þeir sjálfir, dýrmætari, flestir hlutir
lítilsvirði eða einskis í samanburði
við fegurð sína, æðst af öllu fegurð
jökulsins. Skáldið var ríkastur maður
á Íslandi að eiga sjón fegurðarinnar,
þessvegna kveið hann ekki í
heiminum, fanst hann ekki hræðast
neitt. Sumir eiga mikla penínga og
stórar jarðir, en aungva fegurð. Hann
átti fegurð als Íslands og als
mannlífsins. Hann var öllum góður
og ekki í missætti við neinn. Óm -
urinn sem bar sál hans, það var sá
ómur sem mun sigra í heims styrj -
öldinni ásamt nætur galanum. Hér
sigldi ríkt skáld. Sú þjóð er
hamingju söm og vinnur marga
sigra, sem á rík skáld. Hann skildi
ekki hversvegna skapari heimsins
hafði gefið honum svo mikið. Guð
guð guð, sagði hann og horfði til
lands og tárin streymdu niðreftir
kinnum honum svo einginn sá; ég
þakka þér fyrir hvað þú hefur gefið
mér mikið.“ (Heimsljós/ Fegurð
himinsins, bls. 213/1967).
Krýsuvíkin er okkar þúsund og
milljón. Við Hafnfirðingar getum
ekki siglt inn í 100 ára afmælisveislu
Hafnarfjarðar í dýrlegum fagnaði á
næsta ári ef sá tími verður notaður til
að breyta friðlandinu í Krýsuvík í
iðnaðarsvæði og spilla þar með öllu
því sem gerir staðinn ómetanlegan á
mælikvarða Heimsljóssins. Því
verður ekki trúað á þá, sem treystu
íbúa lýðræðinu fyrir réttlátri niður -
stöðu í málefnum álversins að þeir
hugsi sér að leita svo skömmu síðar
í smiðju Rómverja hinna fornu og
sjá íbúum bæjarins fyrir brauði og
leikum í heilsárs afmælisveislu til að
geta beitt valdi sínu óáreittir við
útbreiðslu Mammonsríkisins. Nið -
ur rifsstarfsemi í Krýsuvík, sem post -
ul ar Mammons kalla upp byggingu,
fer ekki saman við 100 ára afmæli
Hafnarfjarðar. Eigum við ekki frekar
að þakka fyrir hvað okk ur hefur ver -
ið gefið mikið og ígrunda, hvort
Heimsljós Laxness feli ekki í sér leið
til gagnkvæms skilnings sem geti
sameinað á ný?
Erlendur Sveinsson
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. október 2007
Postular Mammons
Fólkið er þarna ennþá – en þjóðin er farin
Erlendur
Sveinsson
Tvö andlit við Kleifarvatn
L
j
ó
s
m
.
:
E
r
l
e
n
d
u
r
S
v
e
i
n
s
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n