Fjarðarpósturinn - 08.11.2007, Síða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. nóvember 2007
Framkvæmdum við nýtt opið
leiksvæði milli Dreka- og
Einivalla er nú nýlokið en þar
var sett upp nýtt fjölnotaleiktæki
frá fyr ir tækinu Garðyrkju ehf í
Hafn arfirði.
Að sögn Björn Bögeskovs
Hilmarssonar, garðyrkjustjóra
eru opnu leikvellir í bænum að
nálgast 65 en á hverju ári s.l. ár
hefur verið bætt við 2-3 opnum
leikvöllum í bænum.
„Að framkvæmdum á þessum
svæðum koma ýmsir aðilar t.d.
verktakar og umhverfisdeild
bæjar ins en deildin hefur yfir -
umsjón með leikvöllunum.“
Að sögn Björns eru einnig á
hverju ári endur gerð eldri
leiksvæði en á þessu ári var t.d.
endurnýjað undirlag og settar
gúmmímottur sem undirlag á
eftirfarandi svæði:
Leiksvæði neðan við Eyrarholt
(Ljónagryfjan).
Leiksvæði milli Tinnu- og
Vöruðubergs.
Leiksvæði í Lindabergi
Leiksvæði milli Eini- og
Fjóluhlíðar.
Einnig er reglubundið viðhald
á opnum leikvöllum á öðrum
svæðum í bænum.
Framundan er endurgerð og
framkvæmdir á nýjum opnum
leik- og sparkvelli ofan við
Vallar brautina (gamla Hval -
eyrar holtsvellinum) en sú
framkvæmd ætti að vera nýhafin.
Nýir leikvellir og lagfærðir
Nálægt 65 opnir leikvellir í Hafnarfirði
Glæsileg leiktæki við milli Drakavalla og Einivalla.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Fyrir skömmu voru þemadagar
í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Á
þemadögum er skólastarfið
brotið upp og nemendur og
kennarar taka þátt í verkefnum
sem ekki alltaf tengjast skóla -
starfinu. Þemadögum er ætlað að
auka samstöðu, bjartsýni og kraft
nemendanna en víst er að lang
flestir höfðu mjög gaman að.
Fjölbreytt starf á
þemadögum í
Iðnskólanum
Sjósund, hártíska, kvartmíla, listsköpun, smíði
Svipmyndir frá þemadögunum í
Iðnskólanum
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Óskum eftir um
70 m² húsnæði undir
hárgreiðslustofu,
helst í eða sem
næst miðbænum.
Upplýsingar í s. 555 1434,
691 9445 og 848 2537
Hárgreiðslustofan
Guðrún
Húsnæði óskast