Fjarðarpósturinn - 22.11.2007, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 22. nóvember 2007
Eldsneytisverð
21. nóvember 2007 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 129,1 131,3
Atlantsolía, Suðurhö. 129,1 131,3
Orkan, Óseyrarbraut 129,0 131,2
ÓB, Fjarðarkaup 129,1 131,3
ÓB, Melabraut 129,1 131,3
Skeljungur, Rvk.vegi 131,7 134,9
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð u olíufélaganna.
N1 gefur ekki upp verð á heimasíðu.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir HarðarsonSverrir Einarsson
Barmmerki við öll tækifæri
www.barmmerki.tk
Frábær árangur með Herbalife
Ráðgjöf og eftirfylgni. Fríar prufur
Þyngdarstjórnun - Aukin orka
Gerður Hannesdóttir sjálfst. dreifingaraðili.
865 4052 • 565 1045 • ghmg@simnet.is
Óska eftir skrifstofustarfi, 50-70%,
frá 2.1.2008 í Hafnarfirði. Helst fyrir
hádegi. Uppl. í s. 866 2361.
Vantar barngóða manneskju, helst
eldri konu eða stúlku á tánings -
aldri, til að gæta tæplega tveggja
ára snáða miðvikudaga, fimmtu -
daga og föstudaga tvo tíma í senn
milli 16 og 18. Góð laun í boði !!!!
Vins. hafið samband í s. 846 0876.
Tökum að okkur þrif. Gerum tilboð.
Uppl. í s. 849 0605.
STÆRÐFRÆÐI - RAUNGREINAR
Þarftu aðstoð fyrir prófin? Ef svo er,
hringdu þá í mig og við skulum skoða
málin saman. Marteinn Guðjónsson,
framhaldsskólakennari s. 898 7725
eða 565 1045.
Sófaborð, dökkur viður, útskorið á
hliðum með reyklitaðri glerplötu
fæst gefins. U.þ.b. 1,5 m á lengd.
Upplýsingar í síma 825 8142.
Bansi er grár fress með græna ól.
Eyrnamerktur: OOG132. Týndist
14. nóv frá Hellisgötu. Mjög
heimakær, gæti hafa lokast inní
kompu. Vinsamlega látið vita ef
keyrt hefur verið á hann, því að 82
ára gömul amma er enn að leita.
Rakel s. 845 7040.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
Tapað - fundið
Þrif
Gefins
Kennsla
Barnapössun
Atvinna óskast
Rakel 869 7090 • Sindri 861 7080 • www.kolbrunrakel.is
Næring + Hreyfing + Fræðsla = Árangur
Sjálfstæðir dreifingaraðilarHERBALIFE
www.fjardarposturinn.is
Starfsmann
vantar í Kaplakrika
Bað- og húsvörð, karlkyns, vantar strax
í íþróttahús Kaplakrika.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 821 4494.
Rekstrarstjórn FH
Morgunblaðið hefur undan -
farna sunnudaga birt sérlega at -
hygli verðan greinaflokkur um
líf stíl okkar og um -
hverfis áhrif sem hon -
um fylgja. Flokkurinn
nefnist „Út í loftið“ og
þar er í forgrunni fjög -
urra manna fjölskylda
sem veltir fyrir sér
hvern ig þau geta unnið
að því að draga úr nei -
kvæðum umhverfis -
áhrif um af daglegu lífi
sínu. Margar athygli -
verð ar staðreyndir um lífstíl
okkar hafa komið fram og einnig
frá bærar hugmyndir um hvernig
við getum dregið úr neikvæðum
áhrif um af honum. Ekki er vafi á
því að greinaflokkurinn hefur
hrist upp í mörgum og fengið þá
til að hugsa „ætli ég geti þetta
líka?“
Svarið er já, það er ekki vafi að
við getum öll lagt okkar af mörk -
um til að draga úr neikvæðum
áhrif um á umhverfi okkar sem eru
tilkomin vegna lífstíls. Við getum
nefnilega allt sem við vilj um.
Greinaflokkurinn byggir á
verk efninu „Vistvernd í verki“
verkefni sem Landvernd hefur
for göngu um og rekur. Hafnar -
fjarð arbær er í samstarfi við
Land vernd um verkefnið og
stend ur öllum íbúum Hafnar -
fjarðar til boða að taka þátt. Í
verk efninu eru myndaðir svo
kall aðir visthópar sem saman
standa af 5-8 fjölskyldum. Hver
hópur hittist 7 sinnum og fer
fyrsti og síðasti fund ur
fram með þátt töku
þjálfaðs leið bein enda.
Á hverjum fundi er
tekið fyrir eitt mál efni
og það krufið. Við -
fangs efnin eru sorp,
orka, samgöng ur, inn -
kaup, vatn og virkj um
aðra. Á milli funda
skoða og prófa þátt -
takendur þær hug -
myndir sem fram komu í um -
ræð unum um hvað þeir geta gert
til að draga úr áhrifunum. Ekki er
gerð krafa um ákveðin árangur,
málið er að hver og einn skoði
hvar hann/ hún hefur áhrif, hvað
hann/hún getur gert til að draga
úr áhrif un um og hvað hann/hún
er tilbúinn að gera. Það er ekki
þannig að við eigum öll að taka
upp mein læta líf og flytja í
torfkofana, hver og einn gerir
það sem hann get ur og vill. Þá
komumst við að því að við
getum allt sem við vilj um.
Hafir þú áhuga á því að taka
þátt í visthópi þá skaltu endilega
hafa samband við undirritaðan
(gie@hafnarfjordur.is, s. 585-
5526) sem kemur þér saman við
aðra sem einnig eru áhugasamir
og vilja breyta til.
Höfundur er verkefnisstjóri
Staðardagskrár 21
Við getum allt sem
við viljum
Guðjón Ingi
Eggertsson
Fyndin þóttu mér skrif Ómars
Smára Ármannssonar í Fjarðar -
póst inum í síðustu viku: „Eru
menningarmálin í
ólestri“, og hefur mik -
ið verið að þeim hlegið
á bæjarskrifstofunum.
Þótt þau séu hið besta
skemmtiefni, verð ég
samt að leiðrétta ýms -
ar rangfærslur Ómars
Smára varðandi stjórn -
kerfi Hafnarfjarðar.
Óm ar segir orðrétt:
„Menningar mála full -
trú inn er daglega undir sviðs -
stjóra byggingar- og skipu lags -
sviðs.“ - Hér verð ég að valda
hon um vonbrigðum, því sú mæta
kona hefur aldrei undir mér
verið, hvorki stjórnsýslulega né á
annan hátt.
Síðan segir Ómar Smári: „Til -
lögur, sem koma inn á borð
ferða málafulltrúa, eru færðar á
borð sviðsstjóra. Hann ákveður
(meira og minna) í hvaða farveg
þær eigi að fara. Sumar rata yfir
til Byggðasafns Hafnarfjarðar
þar sem þegar hefur verið ákveð -
ið hver skuli gera hvað. Þar situr
m.a. eiginkona sviðs stjórans.
Það eitt vekur tortryggni.“ - Hér
skal það leiðrétt að bæði menn -
ingar- og ferðamálafulltrúi og
Byggðasafn Hafnarfjarðar heyra
undir fjölskyldusvið, en undir
það heyra íþrótta- og tóm -
stundamál, forvarnir, félags -
þjónustan og menn ingar- og
ferðamál, svo sem lesa má á vef -
síðu Hafnar fjarðar bæj ar. Sviðs -
stjóri fjöl skyldu sviðs heitir
Gunn ar Rafn Sigur björnsson og
er alls ótengdur eiginkonu minni,
sem réttilega starf ar sem forn -
leifa fræðingur á Byggða safni
Hafnarfjarðar. Þar eru
því engin hagsmuna-
eða fjöl skyldu tengsl,
og hef ég ekkert með
menn ingarmál eða
málefni Byggða safns -
ins að gera.
Enn segir Ómar
Smári: „Ekki er svo
langt síðan að um -
ræddur sviðs stjóri
gerði samning við
einka fyrirtæki um forn leifa -
skrán ingu á svæði í Kapellu- og
Selja hraunssvæðinu. Fyrirtækið
fól Byggðasafninu að fram -
kvæma skráninguna. Hver skyldi
þá hafa orðið fyrir valinu við
skýrslugerðina?“ - Hið rétta er að
Byggðasafnið sér alfarið um
forn leifaskráningu í Hafnarfirði.
Bæjarminjavörður stjórnar mál -
efnum Byggðasafnsins, og kem
ég hvergi þar nærri að öðru leyti
en að nota niðurstöðurnar sem
undirlag fyrir skipulag, svo sem
lög gera ráð fyrir. Því síður hef
ég nokkurn tíma falið einka -
fyrirtæki að framkvæma slíka
skráningu, né nokkurt einka -
fyrirtæki haft umboð til að fela
öðrum slíka skráningu.
Að öðru leyti ætla ég ekki að
tjá mig um skrif Ómars Smára
um menningar- og ferðamál,
enda eru þau mál ekki á mínu
borði.
Höfundur er sviðsstjóri
skipulags- og byggingarsviðs
Hafnarfjarðar.
Ómar Smári og
menningarmálin
Bjarki
Jóhannesson
Stjarnan lagði Hauka í 8 liða
úrslitum bikarkeppni kvenna í
handbolta, 34-30 og eru Haukar
því úr leik. Haukar eru núverandi
bikarmeistarar en eru nú í 5. sæti
úrvalsdeildar en Stjarnan trónir á
toppi úrvalsdeildar.
Karlalið Hauka, sem trónir á
toppi úrvalsdeildarinnar, dróst á
móti Íslandsmeisturum Vals og
verður leikið 2. eða 3. desember.
Karlalið Hauka er eina hafn -
firska liðið eftir í bikarkeppni.
Haukastúlkur úr leik
í bikarkeppninni
Karlalið Hauka dróst á móti toppliði Vals
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n