Fjarðarpósturinn - 13.12.2007, Síða 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 13. desember 2007
Á nær
þreföldum
hámarkshraða
Lögreglan mælda hraða með
hraðamyndavél á Hvanna völl -
um fyrir skömmu og var mælt
kl. 13-14 en þar er 30 km.
hámarkshraði.
Á þessu tímabili vaktaði
mynda vélin 33 ökutæki. Af
þeim voru ljós mynduð 19 brot
þar sem ökumenn óku yfir af -
skiptahraða. Meðalhraði þeirra
sem ljósmyndaðir voru var
49,3 km/klst. Sjö ökutækjum
var ekið á 50 km hraða eða
meira. Þremur ökutækjum var
ekið á 60 km hraða eða meira.
Sá sem hraðast ók mældist á 83
km hraða.
Ók aftan á bíl í
langri röð
grunaður um ölvun
Harður árekstur varð á
Reykjanesbraut gengt Bónus á
Völlum sl. fimmtudag. Á
Reykja nesbrautinni hafði
mynd ast löng röð bifreiða
vegna umferðarslyss sem var á
móts við álverið í Straumsvík.
Bifreiðin sem ekið var aftaná
var öftust í röðinni þegar
pallbifreið var ekið aftaná hana
með miklu afli.
Ökumaðurinn sem ók aftaná
var grunaður um ölvun við
akstur.
Jökull og sporhundurinn Píla
félagar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar
við leit á Svínafellsjökli
Jólatrjáasala Björgunarsveitar Hafnarfjarðar
er í Hvalshúsinu, við Flatahraun, beint á móti Nóatúni
Opnunartími 12.-23. desember frá kl. 10-21.30
Jólasveinar koma með jólatrén heim dagana
20., 21., og 22. des. frá kl. 18-21
Allur ágóði rennur óskiptur til björgunarstarfa
Fríkirkjan
Sunnudagurinn 16. desember
Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 11
Góð aðventustund fyrir alla fjölskylduna.
Góð aðventustund fyrir alla fjölskylduna kl. 17
Létt og skemmtileg jólalög í bland við hátíðlega jólasálma.
Ásamt kórnum koma fram einsöngvarar og hljómsveit. Stjórnandi Örn Arnarson.
Þriðjudagurinn 18. desember
Tónleikar kl. 20.30
Esther Jökulsdóttir söngkona heldur tónleika til heiðurs
gospeldrottningunni Mahaliu Jackson og syngur hennar helstu
gospel- og jólalög ásamt karlatríói og hljómsveit.
Karlatríóið skipa: Örn Arnarson, Skarphéðinn Hjartarson og
Þorvaldur Þorvaldsson. Hljómsveit: Aðalheiður Þorsteinsdóttir,
Helgi Egilsson og Kristinn Snær Agnarsson. www.frikirkja.is
Verslum í Hafnarfirði!
. . . og ve rum í jó laskap i !