Fjarðarpósturinn - 13.12.2007, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. desember 2007
Fjárhagsáætlun Hafnar fjarðar -
kaupstaðar fyrir árið 2008 var
tekin til fyrri umræðu í bæjar -
stjórn Hafnarfjarðar á þriðju -
daginn. Reyndar var hún lítið
meira en kynnt en seinni umræða
fer fram að viku liðinni. Skv.
áætluninni verður næsta ár mesta
framkvæmdaár í sögu bæjar -
félagins og á árinu verður heild -
ar fjár festing bæjarfélagsins nær
6,7 milljarðar kr. á árinu.
Gert er ráð fyrir verulegum
fjár festingum í fasteignum, göt -
um, fráveitu og vatnsveitu en
eingöngu er gert ráð fyrir nýjum
langtímalántökum á árinu 2008
vegna átaks í kaupum á leigu -
íbúðum.
Áætlað er að heildar tekjur A-
og B- hluta verði um 13,9
milljarðar kr., hækki um 1,2
milljarða kr. á milli ára eða um
10%. Rekstrargjöld eru áætluð
12,9 milljarðar kr. á árinu 2008
og aukast því um tæpan 1,1
milljarð kr. á milli ára.
Rekstrar niðurstaða fyrir fjár -
magns liði er jákvæð um rétt
rúmlega 1 milljarð kr. en fjár -
magnsliðir eru áætlaðir um 400
m. kr. þannig að rekstrar niður -
staða ársins er talin verða já -
kvæð um 611 millj. kr.
Veltufé frá rekstri 1700 millj. kr.
Gert er ráð fyrir því að veltufé
frá rekstri verði tæpir 1,7
milljarðar kr. sem er um 12% af
heildartekjum. Veltufé er mæli -
kvarði sem gefur vísbendingu
um það hversu mikið er til ráð -
stöfunar frá rekstri til fjárfestinga
og til að greiða skuldir.
Heildar eignir samstæðunnar
eru ætlaðar um 33,3 milljarðar
kr. í árslok 2008. Skuldir og
skuldbindingar eru áætlaðar um
25,9 milljarðar kr. og eigið fé um
7,3 milljarðar króna.
Í greinargerð með tillögunni
kemur fram að bókfært verðmæti
fasta fjármuna bæjarins s.s.
eigna rhlutur hans í Hitaveitu
Suðurnesja hf. og eignir Hús -
næðis skrifstofu er mun lægra en
al mennt markaðsverð. Fyrir
ligg ur bæði verðmat á eignar -
hlutnum í Hitaveitu Suðurnesja
hf og bráðabirgðamat á eignum
Húsnæðisskrifstofu. Á sama hátt
eru dulin verðmæti í Vatnsveitu
og Fráveitu auk þess sem regn -
vatnsveita hefur enn ekki verið
færð í bækur framkvæmdasviðs.
Rekstrargjöld hækka um
1 milljarð króna
Rekstrartekjur A hluta er
áætlaðar tæpar 12,7 milljarða kr.
en þær hækka um tæplega 1,2
millj arða kr. á milli ára. Rekstr -
argjöld eru áætluð tæplega 12,3
milljarðar kr. og hækka því um
rúman 1 milljarð kr. á milli ára.
Meginþungi útgjaldaauka er
vegna launahækkana og hækk -
unar á lífeyrisskuldbindingu eða
um 450 m.kr, viðhaldskostnaður
fasteigna, gatna og útisvæða var
hækkaður á milli ára um 75 m.kr.
og styrkir vegna íþrótta- og tóm -
stundastarfa um 40 m.kr.
Á árinu 2008 verður tekin í
notk un ný sundlaug og nýr leik -
skóli, en rekstrarkostnaður sund -
laugarinnar er áætlaður um 73
m.kr og rekstrarkostnaður leik -
skólans um 48 m.kr. Þá er gert
ráð fyrir 130 m.kr. fjárveitingu í
100 ára afmælishátíð bæjarins.
Fjármagnsliðir eru áætlaðir um
148 m.kr. og að rekstar niður -
staða A hluta á árinu 2008 verði
jákvæð um 261 m.kr.
Samkvæmt áætluninni er
veltufé frá rekstri úr A-hluta um
1 milljarður kr. Áætlaðar heildar -
eignir A hluta í árslok 2008 verða
um 23,4 milljarða kr., skuldir
rúmlega 20 milljarðar kr. og og
eigið fé um 3 milljarðar kr.
Helstu verkefni
Aukið verður við niður greiðsl -
ur til barna- og unglingastarfs í
íþrótta- og æskulýðsmálum og
aldursmörk færð í 16 ár frá næstu
ára mótum. Komið verður á
skipu lögðu æskulýðsstarfi félags -
miðstöðva fyrir 5.-7. bekki
grunn skóla og styrkt starfsemi í
heimaþjónusta við eldri borgara.
Þá verður gert átak í fjölgun
leiguíbúða á árinu.
Helstu framkvæmdir í ný -
byggingu fasteigna verða loka -
fram kvæmdir við nýja sund mið -
stöð á Völlum, 3. áfangi Hraun -
vallaskóla í Vallahverfi, fram -
kvæmdir við íþrótta miðstöðina í
Kaplakrika og nýr leikskóli við
Hamravelli og nýr leik- og
grunnskóli við Bjarkar velli.
Þá verða umfangsmiklar fram -
kvæmdir í gatnagerð fyrir vel á
annan milljarð kr. á nýbygg -
ingar svæðum á Völlum og
nýjum iðnaðar- og atvinnu svæð -
um í Hellnahrauni og Kapellu -
hrauni.
Unnið verður að umhverfis -
verk efnum á miðbæjarsvæði við
Lækinn frá Hverfisgötu að
Strand götu, haldið áfram með
gerð strandstígs við Norður -
bakk ann og lokið gerð nýs úti -
svæðis og torgs við Byggða -
safnið við Vesturgötu.
Lokið verður endurbótum á
Bunga lowinu sem sýningar- og
mót töku hús bæjarins og unnið
að end ur bótum í Hellisgerði og
frek ari uppbyggingu úti vistar -
svæðis við Hvaleyrarvatn.
Á síðari hluta ársins verður
lokið við endurbyggingu dælu -
stöðvar við Óseyrarbraut og
nýrr ar dælu- og hreinsistöðvar
og útrásar í Hraunsvík fyrir nær
850 milljónir króna. Nýfram -
kvæmdir Vatnsveitu kosta um
290 milljónir króna. Á vegum
Hafnarsjóðs verður áfram unnið
að rannsóknum og hag kvæmnis -
úttekt varðandi mögulega nýja
hafnaraðstæðu vestan Straums -
víkur.
Markmiðin sem sett eru fram í
fjárhagsáætlun fyrir árið 2008
eru skýr og afdráttarlaus, að
treysta enn frekar rekstur og
afkomu sveitarfélagsins sam -
hliða áframhaldandi uppbygg -
ingu á öllum sviðum.
Miklar fjárfestingar á afmælisári
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar lögð fram
Sjötti bekkur í Setbergsskóla
safnaði skóladóti, pennum,
pennaveskjum, skólatöskum og
fleiru þarflegu til skólastarfs.
Örn Ragnarsson hjá Fataflokkun
Rauða kross Íslands mætti til að
taka á móti gjöfinni og greindi
frá því að þessar skólavörur færu
til barna í Malaví en þar styður
Rauði kross Íslands við
munaðarleysingjahæli og fleiri
verkefni sem snúa að velferð
barna.
Sjötti bekkur styður
Rauða krossinn
Gáfu skóladót sem fer til Malaví
Stoltir krakkar í 6. bekk Setbergsskóla
Þær kitluðu hláturtaugarnar
frásagnir Eyþórs Þórissonar
athafnamanns í bókinni Engin
miskunn - El Grillo karlinn sem
Tryggvi Harðarsona ritaði og gaf
út. Tryggvi las úr bókinni á Hótel
Víking sl. föstudag og Eyþór gaf
gestum El Grillo bjórinn að
smakka. Féllu frásagnirnar í
góðan jarðaveg og var frásögnin
lipur af þessum athafna- og
ævintýramanni sem kallaði ekki
allt ömmu sína og gerir vart enn.
Gaf enga miskunn
Tryggvi Harðarson, fv. bæjarfulltrúi og bæjarstjóri
á Seyðisfirði las úr bók sinni um El Grillo-karlinn
Eyþór Þórisson með bjórinn og Tryggvi Harðarson með bókina.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n