Fjarðarpósturinn - 13.12.2007, Qupperneq 10
Nú líður að jólum og er fólk að
undirbúa jólahald og njóta þeirra
fjölmörgu tækifæra sem gefast til
að njóta góðrar tónlistar og
annarra viðburða. Á meðan á því
stendur er Alþingi að ljúka gerð
fjárlaga og sveita -
stjórnir að vinna að
gerð fjárhags áætl ana
fyrir árið 2008. Það er
mjög eðlilegt að fólk
setji ekki í forgang nú
að fylgjast með gangi
bæjarmála en vek samt
athygli á að nú er
meiri hluti Sam fylk -
ing arinnar að fara
fram með hækkun
gjalda á Hafnfirðinga og um leið
að keyra í gegn deili skipu lags -
breytingu sem heimilar miklu
meira bygg ingamagn og hærri
hús en gildandi skipulag gerir
ráð fyrir.
Þetta eru með öfugum for -
merkjum jólagjafir Samfylk ing -
ar.
Auknar álögur á almenning.
Samfylkingin í
Hafnarfirði er sjáfri
sér samkvæm með
aukn ar álögur á Hafn -
firðinga. Út svar ið skal
enn vera í há marki
13,03% og fast eigna -
gjöld með því hæsta
sem þekkist á höfuð -
b o r g a r s s v æ ð i n u .
Hafn firðingar þurfa að
gera sér glögga grein
fyrir því að Sam fylk ingin býður
íbúum Hafnarfjarðar nú upp á
amk 10% hækkun á útsvari í
krónum talið útsvar meðan
nágranna sveitarfélagið Garða -
bær býður þegnum sínum upp á
12,46% og Seltjarnarnes er með
12,10%.
Fasteignagjöld. munu einnig
hækka um amk. 10% vegna
hækk unar á fatseignamati þar
sem álagsprósentan í Hafnarfirði
verður samkvæmt tillögu Sam -
fylkingarinnar óbreytt 0,27% af
fatseignamati. Það er með því
hæsta sem þekkist á höfuð -
borgarsvæðinu og sem dæmi má
nefna er Reykjavík með 0,22%
fast eignagjald. Vatnsskattur og
hol ræsagjald eru einnig í há -
marki hér og því má kalla Sam -
fylk inguna í Hafnarfirði „skatt -
menn ársins“.
Háhýsi í miðbæ
S.l föstudag samþykkti meiri -
hluti Samfylkingarinnar í Skipu -
lags- og byggingaráði að leggja
til við bæjarstjórn að samþykkja
nýtt deiliskipulag við Strandgötu
þar sem leyfð verður bygging 7
hæða húss. Samfylkingin hefur
verið að pukrast með þetta mál
enda óeining innan þeirra eigin
raða en telur nú lag að koma
þessu í gegn þrátt fyrir mikil
and mæli íbúa í miðbænum sem
annars staðar. Þegar tillaga um 9
hæða turna var auglýst bárust
mótmæli frá 485 einstaklingum
auk þess sem nokkrir undir skrift -
ar listar gegn tillögunni bárust.
Ekki verður séð að lækkun um 2
hæðir breyti neinu þar um.
Íbúalýðræði í nýrri mynd?
Hafnfirðingum er í fersku
minni hvernig bæjarfulltrúar
Samfylkingar komu sér hjá því
að taka afstöðu til stækkunar
álvers Alcan og dauðsáu svo eftir
þegar stækkun var hafnað með
naumum meirihluta. Nú fara þeir
hins vegar fram með mjög
umdeilda breytingu á skipulagi
miðbæjarins án þess að kanna
með formlegum hætti hug
Hafnfirðinga. Glöggir menn hafa
séð að í auglýsingu um háhýsin
var tekið fram að þeir sem ekki
gera athugasemdir teljist sam -
þykkir breytingunni. Þetta er ný
nálgun í íbúalýðræði en svo sem
ekki nýtt að vinstri menn fari
fram með þessum hætti því að
bygging turna við versl unar -
miðstöðina Fjörð var mjög
umdeild og þáverandi meirihluti
krata keyrði það í gegn þrátt fyrir
undirskriftir þúsunda Hafn -
firðinga.
Lokaorð
Þetta eru kaldar kveðjur Sam -
fylkingarinnar til Hafnfirðinga
nú í aðdraganda jóla. Ég bið
ykkur ágætu bæjarbúar að
fylgjast grannt með framvindu
þessara mála og mun í byrjun
næsta árs gera grein fyrir
tillögum okkar Sjálfstæðismanna
í þessum málum og viðbrögð við
þeim.
Höfundur er bæjarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. desember 2007
Frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði
Mikilvægar dagsetningar!
Lok haustannar 2007
Jólatónleikar Kórs Flensborgarskólans, Vinakvöld á aðventu, verða í Hamarssal
Flensborgarskólans mánudaginn 17. og þriðjudaginn 18. desember kl. 20:30.
Með kórnum koma fram söngvararnir Margrét Árnadóttir og Ívar Helgason,
píanóleikarinn Jónas Þórir og hljómsveit. Stjórnandi Hrafnhildur Blomsterberg.
Miðar til sölu hjá kórfélögum og á Súfistanum.
Einkunnaafhending og staðfesting á vali verður þriðjudaginn 18. desember kl. 10:00 til
10:45. Að því búnu hefst prófsýning og stendur til kl. 13:00.
Útskrift haustannar fer fram í Hamarssal Flensborgarskólans fimmtudaginn
20. desember kl. 13:30. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Aðstandendur útskriftarnema eru beðnir um að vera komnir tímanlega.
Upphaf vorannar 2008
Stundatöflur verða afhentar föstudaginn 4. janúar frá kl. 11:00 til kl. 16:00.
Kennt er samkvæmt hraðtöflu mánudaginn 7. janúar frá kl. 8:05.
Kennt samkvæmt stundatöflu frá þriðjudeginum 8. janúar.
Áætlað er að öllum töflubreytingum sé lokið föstudaginn11. janúar.
Nánari upplýsingar m.a. um opnunartíma skrifstofu í kringum jól og áramót verða sendar út í
Flensborgarfréttum og settar á heimasíðu skólans www. flensborg.is
Skólameistari
Jólagjafir Samfylkingar
Almar
Grímsson
Bifreið valt eftir að hafa ekið
upp á stoðvegg er hann var á leið
frá hringtorginu við Hlíðarberg í
átt að Reykjanesbraut. Er mesta
mildi að enginn skyldi vera á
gangbrautinni þar sem bíllinn
lenti en þarna eru göng undir
Reykjanesbrautina.
Virðist sem bifreiðin hafi farið
þar sem örvarnar á myndinni
sýna og er hún fór upp á
stoðvegginn valt hún. Allar líkur
eru að jeppabifreiðinni hafi verið
ekið á of miklum hraða.
Valt niður á gangbraut
Greinilega ýmislegt hægt ef of hratt er ekið
innfeld mynd