Fjarðarpósturinn - 07.02.2008, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 7. febrúar 2008
Dagur leikskólans var í gær 6.
febrúar og bar upp á öskudag. Á
þessum degi fyrir 58 árum
stofnuðu frumkvöðlar leik skóla -
kennara fyrstu samtök
sín. Félag leikskóla -
kenn ara, menntamála -
ráðuneyti, Samband
ís lenskra sveitarfélaga
og Heimili og skóli
hafa lagt til við stjórn -
endur leikskóla að þeir
stuðli að því að gera
Degi leikskólans hátt
undir höfði. Leik skóla -
stjórar í leikskólum
Hafnarfjarðar hafa sammælst um
það og verður dagurinn fram -
veg is merktur sem slíkur í skóla -
dagatölum. Þar sem 6. febrúar í
ár bar upp á öskudag þá féll
Dagur leikskólans sem slíkur í
skugga hinna hefðbundinna
venja öskudagsins, s.s. náttfata-
og grímuballa, að slá köttinn úr
tunnunni og annarra skemmtana.
Í ár fagnar Hafnarfjarðarbær
ald ar afmæli sínu og munu leik -
skólar Hafnarfjarðar leggja sitt á
vogaskálarnar til þess að fagna
þeim merka áfanga. Marg -
víslegar uppákomur munu eiga
sér stað í leikskólunum á árinu
s.s. opin hús og listsýningar.
Dagur leikskólabarna í Hafnar -
firði verður haldinn hátíðlegur
29. maí með skrúðgöngu og
útihátíð á Víðistaðatúni og
mörgu fleiru. Á atburðadagatali
heimasíðu Hafnarfjarðar kemur
fram það sem er í brennidepli
hverju sinni í hverjum
leikskóla fyrir sig.
Þrátt fyrir erfið skil -
yrði til skólaþróunar á
sér stað metnaðarfullt
starf í leikskólum
Hafn ar fjarðar. Skóla -
þróunarverk efnin eru
margvísleg og hafa
fjórir leikskólar tekið
að sér að vera í forystu
í samræmi við áhersl -
ur þeirra í mennta starfinu. Marg -
vísleg önnur verk efni eru í gangi
og má þar t.d. nefna að einn
leikskólinn leggur áherslu á
læsishvetjandi um hverfi með
þunga á málskilning meðan aðrir
einbeitir sér að lífsleikni, um -
hverfi smennt, hreyf ingu eða
lista- og sköpunar greinum.
Mikið hugsjónarstarf á sér stað
í leikskólum bæjarins og ber að
þakka starfsmönnum þá þraut -
seigju sem þeir hafa sýnt, oft í
miklum mótvindi. Ágæti lesandi,
ég hvet þig til að kynna þér það
fjölbreytta og merka starf sem
fram fer í leikskólum með því að
fara inn á heimasíður þeirra.
Höfundur er leikskólakennari
og þróunarfulltrúi leikskóla í
Hafnarfirði.
Dagur leikskólans
Sigurborg
Kristjánsdóttir
Frammistaða handbolta lands -
liðs karla á Evrópumótinu í
handbolta sem fram fór í Noregi í
janú armánuði olli mörgum von -
brigðum. Ég viðurkenni fúslega
að ég var grautfúll eftir
slaka frammistöðu í
leikjunum við Svía og
Frakka. Við Íslendingar
gerum meiri kröfur til
handknattleiksmanna
okkar heldur en annarra
landsliðsmanna þrátt
fyrir það að nenna ekki
að koma á hand bolta -
leiki t.d. þegar okkar
bestu lið taka þátt í
Evrópukeppni. Eins og í knatt -
spyrnunni leika okkar bestu menn
erlendis og eru margir á meðal
bestu leikmanna sinna erlendu
liða. En eins og ég hef áður bent á
er leikmannahópur okkar svo
mik ið fámennarri en annarrra
þjóða sem við etjum kappi við.
Við meigum því lítt við því þegar
margir af okkar bestu mönnum
heltast úr lestinni vegna meiðsla
og veikinda eins og raunin var í
þessu móti. Það var því ekki við
því að búast að við næðum góð -
um árangri að þessu sinni. Þrátt
fyrir það verður að segjast að ár -
ang ur okkar sem smáþjóðar er
við unandi þegar við sjáum hvaða
þjóðir komust ekki áfram eftir
riðlakeppnina. Slæm töp fyrir
Þjóð verjum og Spánverjum í
milliriðli gerðu það að verkum að
við áttum okkur ekki viðreisnar -
von þrátt fyrir frábæran sigur á
Ungverjum. Tveir góðir leikir af
sex voru einfaldlega ekki nógu
gott. Næsta verkefni landsliðsins
verður að taka þátt í umspili fyrir
Olympíuleikana og vonandi
verða allir okkar bestu leikmenn í
góðu formi þá. Og það er engin
ástæða til að örvænta. Við eigum
nú fleiri góða hand -
boltamenn og efnilega
unga leik menn í okkar
röðum en nokkru sinni
fyrr. Framtíðin er því
björt og vonandi munu
stór fyrirtæki landsins
veita HSÍ þann stuðn -
ing sem það þarf til
þess að vera áfram í
hópi hinna bestu í
handbolta heiminum.
Ein hverra hluta vegna virðist
þessi íþrótt henta okkur Íslend -
ingum betur en flestar aðrar til
þess að ná árangri á alþjóða -
vettvangi. Það er því full ástæða
til þess að hlúa að þessari „þjóð -
ar íþrótt“ okkar svo hún megi
áfram eflast og verða okkur til
sóma á alþjóðavettvangi. En það
sem langoftast hefur orðið okkur
að falli í alþjóðlegum hand knatt -
leik er að við höfum ekki nógu
öfl ugum markmönnum á að
skipa. Þarna verða HSÍ og félögin
að taka sig á. Það hefur verið
venjan í yngri flokkunum að setja
þá sem ekkert geta í sókninni í
markið. Þetta er ekki vænlegt til
árangurs. Það þarf að leita skipu -
lega að þeim krökkum sem hafa
hæfileika til að leika í marki og
veita þeim markvissa þjálfun alla
leið upp í meistaraflokk. Með því
einu móti náum við að búa til
öfluga markmenn.
Höfundur er fv.
flugumferðarstjóri.
EM í handbolta - 11. sætið
Viðunandi frammistaða okkar manna
Hermann
Þórðarson
Flatahrauni 5a, Hafnarfirði
Hárgreiðslustofan Guðrún hefur hætt störfum á Linnetsstígnum.
Guðrún Magnúsdóttir, Sigrún Einarsdóttir og Guðrún Júlíusdóttir hafa
hafið störf á hárstofunni Menn og meyjar að Flatahrauni 5a.
Nýir og eldri viðskiptavinir velkomnir.
Sími 555 0072
Guðrún Karla Sigurðardóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Sigrún Einarsdóttir og Guðrún Júlíusdóttir.
Erum fluttar af Linnetsstígnum
efti 31 ár þar!
Fimmtíu ár eru liðin síðan
fyrstu konurnar settust í bæjar -
stjórn, þær Þórunn Helgadóttir
sem skipaði 2. sæti Alþýðuflokks
og Elín Jósefsdóttir sem skipaði
4. sæti Sjálfstæðisflokks árið
1958. Síðan þá hafa aðeins 18
konur sest í stól bæjarfulltrúa í
Hafn ar firði.
Í tilefni tímamótanna var boðið
til fagnaðar í Pakkhúsinu þar
sem þær Rannveig Traustadóttir,
Valgerður Sigurðardóttir og Jóna
Ósk Guðjónsdóttir rifjuðu upp
veru sína í bæjarstjórn og sögðu
frá skemmtilegum stundum en
Ellý Erlingsdóttir kynnti gesti og
stjórnaði samkomunni.
Tuttugu konur á 50 árum
Núverandi og fyrrverandi bæjarfulltrúar hittust
Kvenbæjarfulltrúarnir sem mættir voru til að fagna að 50 ár eru liðin frá því konur settust í bæjarstjórn,
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Ellý Erlingsdóttir, forseti bæjarstjórnar afhendir Guðríði
Elíasdóttur f.v. bæjarfulltrúa blómvönd.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
F
j
a
r
ð
a
r
p
ó
s
t
u
r
i
n
n
0
8
0
2
–
©
H
ö
n
n
u
n
a
r
h
ú
s
i
ð
e
h
f
.