Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 06.03.2008, Síða 1

Fjarðarpósturinn - 06.03.2008, Síða 1
ISSN 1670-4169w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s 10. tbl. 26. árg. 2008 Fimmtudagur 6. mars Upplag 9.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi www.66north.is Miðhraun 11 - Sími 535 6600 www.as.is Sími 520 2600 Flatahrauni 7 sími 565 1090 Þegar þú þarft púst... Enginn er lengur á vakt á milli kl. 22 og 7 virka daga né um helgar á lögreglustöðinni í Hafnarfirði frá 1. mars sl. Engin tilkynning hefur verið send út um þessa breytingu, hvorki til almennings né bæjaryfirvalda í Hafnarfirði og sagði Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnar - firði að þetta kæmi sér verulega á óvart og hann hefur þegar sent ósk um skýringar til lögreglu - stjóra og fengið svör en málið er tekið upp í bæjarráði í dag. Geir Jón Þórisson, aðal varð - stjóri segir í viðtali við Fjarðar - póstinn að þó bein afgreiðsla stöðvarinnar sé lokuð á nóttunni og um helgar munu varðstjórar stöðvar innar, sem eru fjórir, vinna við löggæslu í Hafnarfirði all an sólarhringinn alla daga vik - unnar ásamt fleiri óbreyttum lögreglumönnum. „Ef einhver kemur að læstum dyrum lög - reglu stöðvarinnar er tilgreint á útidyrum að viðkomandi hringi í 112 og biðji um lögreglu og þá kemur varðstjórinn á stöðina og afgreiðir málið.“ Viðmælandi Fjarðarpóstsins innan lögreglunnar er hins vegar ekki sáttur við aðgerðina og segir hana enn einn liðinn í sparnaði sem bitni á starfseminni og segir hann mikinn kurr meðal lög reglu - manna um starfsskilyrði. Geir Jón segir fáa koma á lögreglustöðina á þeim tíma sem nú verður lokað og að íbúar vilja vita af því að lögreglan sé á ferðinni til að koma í veg fyrir afbrot og tryggja þannig öryggi þeirra. Hann segir jafnfram að það hafi löngum verið vitað að með því að halda mörgum lög - reglu stöðvum hjá sama embætti opn um allan sólarhringinn alla daga vikunnar taki þær til sín lög reglu menn sem annars væru útivinnandi. Afgreiðslutíma í Kópavogi hefur einnig breytt. Þeir sem koma að stöðinni geta einnig átt von á að koma að lokuðum dyrum snemma kvölds ef lögreglumenn hafa verið kallaði út til starfa. Lögreglumaður að mjúkum störfum við Tjarnarbraut. Sólarhringsopnun aflögð á lögreglustöðinni í Hafnarfirði Lokunin kemur flatt upp á bæjarstjóra Taco Bell Hjallahrauni 15 Sími: 565 2811 www.tacobell.is Opið frá 11:00 22:00

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.