Fjarðarpósturinn - 25.09.2008, Blaðsíða 9
www.fjardarposturinn.is 9Fjardarpósturinn 25 ára Fimmtudagur 25. september 2008
Mætum öll og styðjum okkar fólk!
Stórleikir í Kaplakrika!
̶ fyrstu heimaleikir ársins
handbolti • handbolti • handbolti
Á laugardaginn:
FH - HK í meistaraflokki kvenna kl. 16
Í dag, fimmtudag:
FH - HK í meistaraflokki karla kl. 19.30
H
i
l
d
u
r
Þ
o
r
g
e
i
r
s
d
ó
t
t
i
r
Ó
l
a
f
u
r
G
u
ð
m
u
n
d
s
s
o
n
23
10
F
j
a
r
ð
a
r
p
ó
s
t
u
r
i
n
n
0
8
0
9
–
©
H
ö
n
n
u
n
a
r
h
ú
s
i
ð
e
h
f
.
•
L
j
ó
s
m
.
:
Þ
o
r
b
j
ö
r
n
G
u
ð
m
u
n
d
s
s
o
n
Hvað borðaðir þú í morgun?
Elma: 846 6447 – 555 4750
Gjafapakki
Hagstæður samningur fyrir
Hafnarförð. Einróma samkomu -
lag í Hafnarstjórn
Undirritaðir hafa verið samn -
ingar við fyrirtækið Glacier
World um sölu á vatni úr Kaldár -
botn um og útflutning
um Hafnarfjarðarhöfn.
Allmikil umræða hefur
orðið um þennan
samn ing í fjölmiðlum
og byggist hún aðal -
lega á andstöðu Sjálf -
stæðis manna sem fram
kom við afgreiðslu
málsins á síðasta bæj -
ar stjórnar fundi. Sú af -
staða virðist byggð á
stefnumörkun um að leggjast nú
í „harða stjórnarandstöðu“ á
síðustu misserum kjörtíma -
bilsins, fremur en málefnalegum
rökum.
Ýmsar tilraunir hafa verið
gerð ar til útflutnings á vatni frá
Íslandi og hafa flestar gengið
illa. Íslensk fyrirtæki hafa tapað
tölu verðum fjarmunum á fjár -
festingum í slíkum rekstri og
flest gefist upp. Því hafa menn
dregið þann lærdóm að rétt sé að
þeir sem ráða markaðs setning -
unni taki alla áhættu af vatns -
öflun og öðrum fjárfestingum.
Slíka ráðleggingu hafa menn í
viðskiptalífinu, sem mesta
reynslu hafa á þessu sviði, gefið
með skýrum hætti í fjöl miðlum
nýverið. Og það er einmitt
þannig sem Hafnar -
fjarðarbær stendur að
þessu máli. Glacier
World leggur til alla
fjármuni og tekur
þannig alla áhættu, en
fyrirtækið og bæjar -
félagið munu bæði
njóta góðs af ef vel
tekst til.
Vatnssölusamning -
urinn kveð ur á um að
Glacier World kaupir vatnið
beint úr borholu í Kaldár botnum
og greiðir allan kostnað við
sérstaka vatnslögn niður að
höfninni þar sem átöppunar -
verksmiðja verður reist. Félagið
greiðir 40 evrusent, nú um 53 kr.
fyrir hvert tonn, en stórnotendur
í bænum greiða nú 12 kr. á tonn,
en nýta sér þó stofnæðina til
bæjarins og dreifikerfi hans, sem
Glacier World gerir ekki. Sjálf -
stæðismenn hafa reynt að kasta
rýrð á samninginn með því að
fullyrða að almenningur greiði
mun hærra verð. Bæjar búar
greiða vissu lega vatns skatt með
fast eigna gjöld unum og deila má
um hvort hann sé réttlátur eins
og hann er fram kvæmdur, en það
bygg ist á lögum frá Alþingi. En
auk þess að standa undir vatns -
öflun er vatnsskatt inum ætlað að
standa undir stofnlögninni til
bæjarins og dreifi kerfinu öllu (og
þar með leka sem í því er enn þó
mikið átak hafi verið gert til að
setja fyrir hann). Þessir þættir,
sem Glacier World nýtir ekki,
eru mun dýrari en sjálf vatns -
öflunin. Samanburður Sjálfstæð -
is manna er því augljóslega út í
hött.
Þar fyrir utan ber að nefna að
Glacier World hyggst reisa um
7.000 fermetra vatnsátöppunar -
verksmiðju við höfnina. Á þá
byggingu verða lögð fasteigna -
gjöld og vatnsskattur með ná -
kvæmlega sama hætti og aðrar
fasteignir í bænum.
En meðal annarra orða. Hvern -
ig er með rafmagnsverðið til
álversins í Straumsvík, er það
ekki öllu lægra en önnur fyrir -
tæki og almenningur í bænum
greiðir, þveröfugt við það sem nú
gildir um vatnssöluna? Samt
hefur ekki skort á stuðning Sjálf -
stæðismanna við þá starfsemi og
reyndar álasa ég þeim ekki neitt
fyrir það.
Nú um þessar mundir er sér -
lega mikilvægt að leitað sé leiða
til nýsköpunar og aukinnar
verðmætasköpunar í gjaldeyri.
Má í því sambandi vitna til
marg endurtekinnar hvatningar
for sætisráðherrans. Með hinum
nýja samningi eru bæjaryfirvöld
í Hafnarfirði að leggja lóð á þær
vogarskálarnar svo um munar.
Höfundur er formaður
Hafnarstjórnar
Hafnarfirskt vatn á heims markað
Eyjólfur
Sæmundsson