Fjarðarpósturinn - 09.09.2010, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 9. september 2010
Allt ætlaði um koll að keyra þegar færeyskur
lögþingsmaður upplýsti að hann vildi ekki
snæða með forsætisráðherra Íslands og maka.
Hafði hann fyrir því rök sem ég ætla að láta
liggja á milli hluta en urðu aðal hitamálið.
Menn hrópa fordómar! og ólíklegasta fólk er
látið tjá sig í fjölmiðlum sem taka svona uppá
komum fegins hendi svo lesendur fái eitthvað til
að smjatta á. Allt veltur á því hvernig skoðanir
eru settar fram og til hvaða aðgerða menn taka. Skoðanafrelsi og
tjáningarfrelsi eru hluti af mannréttindum okkar en það má elska
náungann en hata gjörðir hans. Það er ekkert sjálfgefið, þó einhverjir
upplýsi skoðanir sínar sem ganga gegn almennum skoðunum og
reglum, að þeir séu fordómafullir. Það er mikill munur á að hafa
skoðun og að virða ekki rétt annars fólks. Viðkomandi lögþingsmaður
vitnaði í Biblíuna og sagði samkynhneigð ranga. En þar stendur líka
að menn skuli elska náunga sinn eins og sjálfan sig, ef ég man rétt.
Það er svo algengt að við veljum okkur reglur til að fara eftir en
látum svo liggja á milli hluta þó við förum ekki eftir öðrum. Þetta
sjáum við jafnvel þegar lögreglan sinnir ekki sumum brotum á
umferðalögum en leggur mikla áherslu á önnur. Þetta sjáum við í
túlkun á byggingarreglugerð svo einhver dæmi úr daglegu lífi séu
tekin. Ef lög banna að fólki sé mismunað vegna kynhneigðar bannar
það ekki fólki að hafa skoðun á kynhneigðinni
Á fésbókarsíðum er viðkomandi löþingsmaður kallaður öllum
illum nöfum og eru þá andstæðingarnir ekki fallnir í sömu gröf og
hann? Skv. rannsóknum Félagsvísindastofnunar finnast fordómar á
Íslandi og árið 1999 vildu t.d. 31% svarenda ekki hafa geðveikt fólk
sem nágranna sína!
Guðni Gíslason
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Loftnets og símaþjónusta
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Árangur með
Herbalife
Aukin orka -
Betri líðan
Gerður Hannesdóttir
gsm 865-4052
ghmg@internet.is
Pantaðu frían
prufupakka!
sjálfstæður dreifingaraðili
Stífluþjónusta Geirs
Stíflulosun, myndun lagna,
endurnýjun frárennslis- og
drenalagna, gröfuþjónusta,
efnisflutningar, múrbrot,
malbikssögun, kjarnaborun.
Geir s. 697 3933
www.vidistadakirkja.is
Víðistaðakirkja
sunnudagurinn 12. september
Sunnudagaskólinn kl. 11
Nú hefst barnastarf vetrarins með nýju efni.
Fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri, fer fram
uppi í norðursal kirkjunnar.
Verið með frá upphafi!
Guðsþjónusta kl. 11
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson
Þriðjudagurinn 14. september
Foreldramorgnar kl. 10-12
Notalegar og uppbyggilegar samverur
fyrir foreldra ungra barna.
6-9 ára starf hefst kl. 15.30
10-12 ára starf hefst kl. 17.00
Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Sunnudagur 12. september
Fjölskylduhátíð kl. 11
Sr. Þórhallur Heimisson leiðir og segir glærusögu.
Tvö börn verða borin til skírnar.
Allir leiðtogar sunnudagaskólans taka þátt.
Barna- og unlingakórar kirkjunnar syngja.
Eftir hátíðina í kirkjunni er boðið upp á nammi og
hressingu í safnaðarheimilinu.
Morgunmessur alla miðvikudaga kl. 08.15
Morgunverður í safnaðarheimili.
Við morgunmessuna er safnað fyrir Mæðrastyrksnefnd
Hafnarfjarðar
Allt fyllingarefni, mold,
holtagrjót og grjót í veggi.
Vörubílar af öllum stærðum.
Kranabílar með krabba. Allar
stærðir af gröfum og með fleyg.
F A T A B R E Y T I N G A R
& V I Ð G E R Ð I R
OPIÐ 12.30-17.00
Lokað miðvikudaga
Flókagata 3 • 220 Hafnarfjörður
Sími 84 746 84
Síðan 2001
Dúna - bólstrun
Lyngbergi 39b
(áður Hjallahrauni 8)
Tek að mér að bólstra og
klæða eldri minni húsgögn.
Uppl. í síma 897 6666
www.frikirkja.is
Fríkirkjan
Sunnudagur 12. september:
Sunnudagaskóli kl. 11
Góð stund fyrir alla fjölskylduna.
Guðsþjónusta fellur niður vegna ferðalags
fermingarbarna og presta.
Fimmtudagur 16. september:
Sporin 12 - andlegt ferðalag kl. 20
Fyrsti kynningarfundur fyrir þetta vinsæla
sjálfstyrkingarnámskeið verður í safnaðar
heimilinu fimmtudaginn 16. september kl. 20.
Sjá nánar á frikirkja.is
Allir velkomnir
í Fríkirkjuna!