Fjarðarpósturinn - 09.09.2010, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 9. september 2010
Actavis Group hf. hefur
tilkynnt að það stefni á að færa
sig inn á svið líftækni.
Dr. Claudio Albrecht forstjóri
Actavis Group sagði í tilefni
þess að fyrirtækið hyggst hefja
áreiðan leika könnun á sivss
neska lyfja fyrirtækinu Bio
partners: „Með því að færa sig
inn á svið líftækni fá sam heita
lyfjafyrirtæki aðgang að vöru
fram boði sem krefst nýrrar
nálg unar í þróun og markaðs
setn ingu. Við munum í fram
tíðinni sjá samheitalyfjafyrir
tæki fjár festa mun meira í þró
un og frumlyfjafyrirtæki þróa
samheitalyf. Það eru aðeins
stóru sam heita lyfja fyrirtækin
eins og Teva , Sandoz, Mylan og
Actavis sem hafa bolmagn til
að fara inn á þetta svið, ann að
hvort sjálf eða í samstarfi við
frumlyfjafyrirtæki.
Við viljum velja vandlega
hvaða líftæknilyf við tökum inn
í vöruframboð okkar. Þróun
lyfja við innkyrtla sjúk dómum
er ein áhugaverðasta og mest
vaxandi grein lyfja iðn aðar ins.
Actavis býð ur nú breitt
vöruúrval sykur sýkis lyfja í
töfluformi, þannig að framboð
insúlín lyfja og síðar insúlín
hliðstæðu er rökrétt fyrir
Actavis og eitt af þeim sviðum
sem við lítum til.
Actavis er í hópi leiðandi
fyrirtækja í samheitakrabba
meinslyfjum og með breitt
vöru úrval. Líftæknilyf væru því
tilvalin viðbót við vöru framboð
okkar af krabba meinslyfjum,“
segir Claudio, forstjóri Actavis
Group.
Peking-önd
Okkar vinsæla stökka Peking-önd með appelsínusósu ásamt
pönnusteiktum hrísgrjónum, grænmeti og eggi - eða - með
pönnusteiktum núðlum, grænmeti og eggi.
Fyrir tvo: aðeins kr. 4.490,-
Kvöldverðarhlaðborð
Kjúklingur, lambakjöt, djúpsteiktar rækjur,
steiktar eggnúðlur, súrsætt svínakjöt.
Aðeins kr. 1.450,-
Kvöldverðartilboð!
síðan 2001
Reykjavíkurvegi 69 • sími 555 6999
www.kinaferdir.is
Opið kl. 11-22 virka daga
og kl. 16-22 um helgar.
Nýtt
Fræðsla um kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum hefur
stað ið yfir allt árið 2010 á
fræðslu sviði Hafnar fjarðar
bæjar. Síðasta vetur voru stjórn
endur í leik og grunnskólum
fræddir um málefnið, starfsfólk
grunnskólanna í bænum (aðrir
en kennarar) fengu fræðslu nú í
ágúst og á haustönn 2010 verð
ur allt starfsfólk leikskól anna
frætt um málefnið.
Þetta skólaár heldur fræðslan
einnig áfram fyrir kennara í
grunnskólum. Það er námskeið
sem nefnist „Verndarar barna“
og er sniðið að erlendri fyrir
mynd.
Fræðsla gegn kynferðislegu ofbeldi
Hafnfirska söngkonan Mar
grét Eir hefur stofnað söng
skólann „Meiri skóli“ sem hef
ur fengið aðstöðu hjá Tón
listarskóla Hafnarfjarðar í Tón
kvísl í gamla leikfimi og
handa vinnuhúsinu við Gamla
Lækjarskóla.
Margrét er lærður raddkennari
og hefur 15 ára reynslu við
söngkennslu m.a. hjá Eddu
Borg, Möggu Pálma og Tón
vinnsluskólanum auk þess að
taka fólk í einkatíma.
Margrét segir skólann vera
fyrir 13 ára og eldri. Hún bjóði
upp á góða söngkennslu en tekur
fram að þetta sé ekki karókí
námskeið. Nemendur fái undir
stöðuatriði í söng, byggt verði
upp sjálfstraust og hverjum og
einum hjálpað að finna sjálfan
sig í söng. Þetta sé í raun bæði
söng og fram komunámskeið.
Nem endum er skipt í 34 manna
hópa eftir aldri en einnig er hægt
að fá einkatíma.
Skólastarf hefst 20. september
en kennt verður á miðviku
dögum og föstudögum. Með
Mar gréti verður Pétur Örn
Guðmundsson (Pétur Jésús) en
Margrét segir að hún hlakki
mikið til að koma að kenna í
Hafnar firði.
Hægt er að fá nánari upp
lýsing ar á Facebook síðunni
Meiri skóli og hægt er að senda
óskir um skráningu á meiri
skoli@gmail.com
Margrét Eir stofnar
söng- og raddskóla
Margrét Eir.
Actavis vill kaupa í líf tækni fyrirtæki
Er kominn tími til að gera eitthvað?
Námskeið sem opna þér nýjar leiðir
Hringsjá náms- og starfsendurhæfing býður mikið úrval
af öðruvísi og spennandi námskeiðum sem hafa hjálpað
mörgum að komast aftur eða í fyrsta sinn af stað til meiri
virkni, meiri lífsgæða og fleiri valkosta í námi eða starfi.
Námskeiðin eru sniðin fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem hafa verið frá
vinnumarkaði eða námi vegna slysa, veikinda, félagslegra erfiðleika eða
annarra áfalla. Námskeiðin geta líka hentað þeim sem hafa litla grunnmenntun
eða hafa átt erfitt með að tileinka sér hefðbundið nám.
Um er að ræða eftirfarandi námskeið:
• Bókhaldsnámskeið – hagnýtt
námskeið fyrir þá sem stefna á
frekara nám eða skrifstofustörf
• Excel fyrir byrjendur
Þátttakendur læra að setja upp
tölur á vinnublaði og læra að beita
einföldum reiknireglum. Kenndar
eru helstu vinnuaðferðir og að
útbúa myndrit.
• Enska fyrir byrjendur
Námskeiðið er fyrir þá sem hafa
átt mjög erfitt með að læra ensku/
önnur tungumál. Notast er við
myndrænar og óhefðbundnar
aðferðir sem nýst hafa vel á öðrum
sviðum. Áhersla er lögð á að bæta
orðaforða og að auka sjálfstraust
nemenda.
• Fjármál einstaklinga
Fjármál á mannamáli!
Námskeiðinu er ætlað að veita
þátttakendum yfirsýn yfir eigin
fjármál og auka fjármálalæsi.
• Minnistækni
Kennd er tækni til þess að efla
og bæta minnið. Námskeiðið
hentar þeim sem eiga við
hversdagsgleymsku að stríða, hafa
skert minni eftir veikindi eða áföll
eða vilja bæta minni sitt af öðrum
ástæðum.
• Stærðfræði fyrir byrjendur
Námskeiðinu er ætlað að skapa
áhuga á stærðfræði og jákvætt
viðhorf. Kennsluaðferðir eru
nýstárlegar þar sem nemendur
læra að meðhöndla tölur
með áþreifanlegum hætti í
skemmtilegum æfingum. Beitt
er óhefðbundnum aðferðum í
kennslunni.
• Sjálfstyrking
Námskeiðinu er ætlað að efla getu
nemenda til að tjá sig og vera til.
Þetta verður gert á skemmtilegan
og líflegan hátt og nemendur
öðlast þjálfun í öruggri framkomu.
• Tölvugrunnur
Kennd er tölvunotkun fyrir
byrjendur og lengra komna. Farið
er í Windows umhverfið, ritun
og útlitsmótun texta, Internetið,
tölvupóst, teikningu, skjalaumsjón
og fleira.
Næstu námskeið eru að hefjast!
Frekari upplýsingar og skráning hjá Hringsjá
í síma 510 9380 eða á www.hringsja.is
Hringsjá
náms- og
starfsendurhæfing