Prentneminn - 01.05.1984, Blaðsíða 40
Morgunblaðið fær nýja prentvél
Stjórnun véíarinmr fer að mestu fram frá einu stjórnborði
Kröfur um betri prentun dagblaða og
þá sérstaklega litaprentun hafa aukist
mjög mikið á síðustu árum. Því hafa
framleiðendur í auknum mæli byggt
prentvélar sem svara þeim kröfum.
Hér í þessum pistli er gefín stutt
tæknileg lýsing á þessari fullkomnu
prentvél Morgunblaðsins, en vélin
verður tekin í notkun bráðlega.
Prentvélin er af gerðinni KÖNIG
UND BAUER express 60, framleidd í
Þýskalandi.
Hámarks síðufjöldi úr vélinni, eins og
hún er útfærð á teikningunni, er 128 síð-
ur, þar af 16 síður í fjórum litum og 16
síður með einum aukalit. Sem dæmi um
litamöguleika er hægt að hafa í 64 síðna
blaði 32 síður í fjórum litum, 16 síður í
þrem litum og 16 síður í svart/hvítu.
Hraðinn er 30.000 eintök á klukkustund,
og ef keyrt er „straight“ skilar vélin
60.000 eintökum á klst.
Rúlluskipting fer fram á fullri ferð.
Mjög nákvæm stilling á bremsum.
Mótordrifnir valsar eru fyrir pappírs-
strenginn áður en hann fer í unitið.
Stjórna þeir enn betri strekkingu á
strengnum fyrir prentun. Sams konar
valsar eru síðan þegar strengurinn kemur
úr unitinu. f stjórnborði sést hve mikið
strengirnir eru strekktir og er því stýrt
þaðan.
Registering á cylindrum er mótordrifin
bæði til hliðar, áfram og aftur á bak og
er fjarstýrð.
Allir cylindrar eru settir í 0-stöðu með
því að þrýsta á hnapp.
Allar farvaskrúfur eru mótordrifnar og
stjórnað frá stjórnborði, sem m. a. sýnir'
farvagjöfina. Allir farvahnífar eru ofaná-
liggjandi. Vatnskerfið er svokallað
burstakerfi. Þeytir vatninu á vatnsvalsinn,
þannig að aldrei er möguleiki á að farvi
eða óhreinindi safnist í vatnið.
Farvabox eru skiptanleg fyrir hverjar
tvær síður, þá er sjálfvirk hringrás á dæl-
um fyrir farva og fer allur farvi í gegnum
filtera áður en honum er dælt inn í farva-
boxin.
Hægt er að kúpla efra eða neðra uniti
út eða inn frá stjórnborði.
Unit 1 er með einu prentuniti fyrir lit
og er það „reversible".
Litar-unit er með 10 cylindrum og ,,re-
versible". Þannig er hægt að prenta 16
síður í fjórum litum í einu uniti eða 2x2
liti á 32 síður. Pá er einnig hægt að keyra
Vi streng tvívegis í gegnum unitið og fá lit
beggja megin á strenginn.
Sérstök þræðing er fyrir litarstrengi,
sem gerir mögulegt að raða litasíðum á
mun fleiri staði í blaðinu.
Brotvélin er mikið og flókið verkfæri.
3:2 jawfolder og tekur allt að 160 síðum.
Allar stillingar eru fjarstýrðar og marg-
ar hægt að framkvæma á fullri ferð.
Öryggiskerfi, mekaniskt og elektron-
iskt, er mjög fullkomið í brotvélinni sem
og allri prentvélinni. Fimm mótorar drífa
vélina og gefur það mikið rekstraröryggi.
Svo til öll stjórnun vélarinnar fer fram
frá stjórnborði. Pá er einnig ritvél, sem
skráir allar stillingar og breytingar, skráir
stopp, bilanir og jafnvel hvað sé bilað.
Lítill „scanner" fylgir, sem gefur til
kynna farvamagn á síðum, þannig að
hægt er að stilla það áður en prentun
hefst.
Vélin er öll hljóðeinangruð og nánast
lokuð, þannig að hávaði er mjög lítill
miðað við það, sem við þekkjum í dag.
40 PRENTNEMINN