Bókbindarinn - 01.07.1961, Page 7

Bókbindarinn - 01.07.1961, Page 7
BOKBINDARINN 7 Þórður Magnússon ÁricS 1881 þann 17. febrúar fædd- ist hér í Reykjavík sveinn einn er skírb- ur var ÞórSur. Foreldrar hans voru Magn- ús Magnúson bóndi frá Hvammi í Kjós og kona hans Magnhildur Halldórsdóttir. Þann 1. apríl 1897, er ÞórSur var 18 ára, hóf hann nám í ísafoldarbókbandi og lauk þar námi 1901. Árin 1902 til 1904 dvaldist hann í Kaupmannahöfn viS aS kynnast starfinu og borginni vicS sundin með allar sínar lystisemdir og gleSskap. Er hann kom heim til íslands tók hann vicS verkstjórn í Isafoldarbókbandi og hefur starfaS þar stanzlaust síSan. Og er þaS mjög sjaldgæft nú á þessum miklu umbrotatímum. ÞórSur lét félagsmál mik- iS til sín taka. Er hann einn hér á landi lifandi, sem stofnuSu fyrstu samtök bók- bindara áriS 1906, er hét Bókbindarafé- lag Islands. Hinir eru Gísli Haukland, bú- settur í Khöfn, og Karel Kjarval, búsettur í Bandaríkjunum. ÁriS 1907 giftist ÞórSur GuSrúnu Magnúsdóttur. EignuSust þau fjögur börn. Af þeim eru þrjú á lífi og öll búsett hér í bæ. Lilja, húsfrú; Magnús, er býr hjá föSur sínum, og Geir, bókbindari í Isa- fold .ÞórSur missti konu sína áriS 1927, eftir tuttugu og tvö hamingjusöm hjú- skaparár. ÞórSur lét af verkstjórn 1947. En á þeim tíma hefur hann útskrifaS eftirtalda bókbindara: Skafta GuSjónsson, GuS- mund Gíslason, Arnkel B. GuSmundsson og Geir ÞórSarson. Auk þess voru Sig- urSur Ingimundarson og Pétur Magnús- son hálfan námstímann hjá honum. ÞórSur mun vera bæSí elzti núlifandi og starfandi bókbindari á Islandi. ÞórSur er dagfarsprúSur og vinsæll maSur jafnt hjá starfsfélögum og öSrum er hann hef- ur umgengizt. AfbragSs heilsu hefur ÞórS- ur haft alla tíS og er hægt aS telja þá daga á fingrum annarrar handar sem hann hefur legiS rúmfastur. Hann hefur nú síS- astliSiS ár unniS hálfan daginn og er mjög ern enn og gáskafullur. ÞórSur hefur ávallt veriS hrókur alls fagnaSar í öllum þeim gleSihófum sem hann hefur tekiS þátt í og þau eru eigi fá, þar hefur skipzt á lipurS og prúSmennska. ÞórSur hefur veriS búsettur í Ingólfs- stræti 7 A, öSru nafni Ofanleiti, síSast- liSin 80 ár, og sést þaS aS hann er vana- fastur maSur og lítiS fyrir aS skipta um heimilisfang eSa vinnustaS, enda elzti starfsmaSur IsafoldarprentsmiSju. Jæja, ÞórSur, ég óska þér, fyrir hönd allra starfsfélaga þinna, okkar innilegustu hamingjuóskir meS daginn og alls hins bezta í framtíSinni. Heill þér áttræSum, A. B. G.

x

Bókbindarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókbindarinn
https://timarit.is/publication/951

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.