Prentarinn - 01.01.1987, Blaðsíða 3

Prentarinn - 01.01.1987, Blaðsíða 3
oV&at Y3=v- ’áeZéls KUNNATTUNNI Hvaö hefur okkur orðiö ágengt? Stórt er spurt og því ekki létt um svör. Eftilvill er réttast aö hver og einn svari hér fyrir sig. Hér skal þó drepið á nokkur atriði sem skipta máli. í umræöunni um tæknimálin og atvinnuöryggiö þeim samhliöa hafa menn gjarnan horft til tveggja þátta. Annars vegar erum viö meðvit- uð um nauösyn þess aö okkar réttur sé tryggöur samningslega og gagnvart lögunum. Þeir tækni- samningar sem við búum við eru aö sjálfsögöu ekki fullkomnir, en þeir eru þó á margan hátt jákvæöir og tryggja rétt okkar. Nauösynlegt er að slá skjaldborg um þá og ekki síður að freista þess að gera þá fyllri og fullkomnari. Staöreyndin er sú að gildi þessara samninga felst I ýmsum tryggingarákvæðum sem fyrst reynir á þegar kreppir að. Vonandi gerist það ekki, en viö skulum vera viö öllu búin. Fljótt skipast veöur í lofti ef svo ber undir. í þessu sambandi höfum við hins vegar sagt: Styrkur okkar felst í kunnáttunni, viö erum og verðum alltaf aö vera þeir hæfustu til þess aö fást við gerö prent- gripa. Til aö svo megi verða hljótum viö aö leggja mikla áherslu á menntunarmálin. Á síðustu árum hefur veriö unniö stórvirki í því að laga bókageröar- skólann að breyttum aöstæöum og hefur bærilega til tekist þó sú aðlögun veröi stööugt aö eiga sér staö. Ýmsir hafa lagt hönd á plóginn, en ég leyfi mér aö nefna eitt nafn: Óli Vestmann Einarsson. í byrjun árs 1986 samdist um að greitt yrði af öllum félagsmönn- um í fræðslusjóö. Það þýöir að í fyrsta skipti verður sjóðurinn þess umkominn aö sinna fræðslumálunum og þá fyrst og fremst endurmenntun aö verulegu marki. Viö bindum miklar vonir við þennan sjóö og gerum stórar kröfur til sjóöstjórnarinnar. Kjaramálin, um þau mætti margt segja. Höfuö vandamáliö er sem fyrr, ógerningur er aö lifa af dagvinnutekjum. Vissulega hefur tekist aö hækka laun þeirra lægst launuðu nokkuö, en það er þó svo aö launin eru ekki í nokkru samræmi viö fram- færslukostnað. Aðstöðumunurinn í þjóöfélaginu hef- ur jafnframt aukist, hlutur launafólks í aröinum hefur minnkaö, auðstéttin hefur styrkt stööu sína og notið til þess dyggrar aðstoðar stjórnvalda og vanmátt- ugrar verkalýðshreyfingar. Ýmsum félagslegum rétt- indum verkafólks er jafnframt ógnað. Dregiö er úr þjónustu á heilbrigðissviðinu og ekki er staðið viö uppbyggingu dagvistarstofnana sem er eitt brýn- asta hagsmunamál heimila. Kjaramálin eru því á hverfanda hveli og heildarsamtök verkafólks standa hjá eins og lamaöur þurs, enda þótt „hagfræðikunn- átta“ sé þar meiri en gerist og gengur annars staðar í þjóðfélaginu. Hér gengur þó ekki aö sakast viö aðra, viö veröum nú sjálf aö taka til okkar ráöa, axla ábyrgöina og snúa vörn I sókn og kosta því til sem kann að þurfa. Með órofa samstööu og vitund um stööu okkar getur okkur tekist aö brjóta af okkur klafa auðstéttarinnar og sendiboða hennar, en þeir eru á ólíklegustu stööum. Meö þessum orðum óska ég félagsmönnum velfarn- aðar á nýju ári og minni enn og aftur á að árangur okkar felst í því hversu vel okkur tekst að standa saman. mes. prentarinn 1 MÁLGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA PRENTARINN - málgagn Félags bókageröarmanna • Útgefandi FBM, Hverfisgötu 21 • Ritstjóri: Magnús Einar Sigurösson • Setning, filmu- vinnsla, prentun og bókband: Prentsmiðjan ODDI hf. • Letur: Times og Helvetica • Hönnuöur blaðhauss: Þórleifur Valgaröur Friöriksson. PRENTARINN 1.7. '87 3

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.