Prentarinn - 23.07.1992, Blaðsíða 9
ur þegar
Ég fór á þetta námskeið fyrst og
fremst vegna þess að DV ákvað að
senda allt sitt fólk úr prentsmíðinni á
það. Okkur var skipt niður í hópa og
fóru fjögur í einu á þau námskeið sem
skipulögð voru á Macintosh grunninn.
Fannst þér að þú hefðir gagn af
náminu?
Auðvitað hafði ég gagn af náminu.
Það er búin að vera Macintosh tölva
niðri á DV í allnokkurn tíma, maður
hefur fiktað við hana, en á námskeið-
inu voru okkur kennd undirstöðu-
atriðin, svo það breytti heilmiklu
varðandi getu og áhuga á því að kynn-
ast Macintosh tölvunni betur og reyna
að vinna sjálfstætt á hana.
Fórstu á námskeiðið í vinnutíman-
um og á launum eða fórstu í þínum
eigin tíma?
Ég fór í vinnutíma og á fullum laun-
um.
Svarar Prenttœknistofnun þeim
vcentingum sem þú hafðir um hana?
Ég veit eiginlega ekki hvers ég
vænti af Prenttæknistofnun í byrjun,
en ef framhaldið verður eins og mér
þykir byrjunin benda til, er ég viss um
að hún mun standa undir því sem til
er ætlast, og jafnvel betur.
Mig langar til þess að geta þess sér-
staklega að Ingvar Hjálmarsson er al-
veg frábær kennari, tók kennsluna
mjög skipulega og fumlaust.
Árni Þórhallsson er lærður hæðar-
prentari og hefur verið verkstjóri í
Plastprent í mörg ár.
Á hvernig námskeið fórst þú Árni?
Grunnnámskeið í offsetprentun.
Hafðir þú gagn af þessu námskeiði
og nýtist þér það í starfi þínu, þar sem
allt önnur prentaðferð er í Plastprent?
Já þó að Flexó prentaðferð sé að
ýmsu leyti ólík offseti þá er margt líkt
með skyldum. Þannig að margt sem
komið var inn á hefur dýpkað og auk-
ið skilning minn á prentun almennt.
Hefur þú hug á að sækja fleiri nám-
skeið?
Því get ég svarað játandi. Mörg
námskeið sem Prenttæknistofnun býð-
ur upp á eru mjög freistandi, ekki að-
eins fyrir mig heldur og líka almennt
fyrir prentara Plastprents. Nú þegar
hafa fimm prentarar frá Plastprent
sótt hin ýmsu námskeið Prenttækni-
stofnunar.
Svarar Prenttæknistofnun vœnting-
um þínum um endurmenntun?
Prenttæknistofnun er ung að árum
en hefur þegar að mínu mati fest sig í
sessi sem hinn ákjósanlegi vettvangur
fyrir framhaldsmenntun fagmanna í
hinum ýmsu greinum prentiðnaðarins.
Það er ljóst að ef prentiðnaður á ís-
landi ætlar að standa sig í baráttunni
um hylli viðskiptavinanna sem sífellt
gera meiri og erfiðari kröfur til tækni-
kunnáttu og fagþekkingar starfs-
manna, þá verður það aðeins gert
með því að byggja upp þekkingu og
hæfni starfsmanna með öflugu nám-
skeiðahaldi um hin ýmsu svið prent-
listarinnar. Við megum ekki láta það
verða Akkilesarhæl okkar að við
nennum, viljum eða getum ekki fylgst
með því nýjasta sem er að gerast í
prentiðnaðinum.
Það er einnig ljóst að val á leiðbein-
endum er ákaflega þýðingarmikið.
Það námskeið sem ég sótti var vel
skipulagt og leiðbeinandinn Jóhann
Freyr hafði yfirgripsmikla þekkingu á
því efni sem hann tók til kennslu og
náði að skapa lifandi og kröftugt um-
hverfi þar sem allir nemendur gátu
notið sín og spurt hinna erfiðustu
spurninga fræðilega séð og fengið full-
nægjandi svör við þeim.
Er það eitthvað sérstakt sem þú vild-
ir benda á og betur mætti fara?
Það segir sig sjálft að ung stofnun
sem Prenttæknistofnun er getur ekki
boðið upp á nákvæmlega það kennslu-
umhverfi sem æskilegast væri. En ég
er sannfærður um að undir styrkri
stjórn Guðbrandar Magnússonar mun
það fljótt breytast til hins betra.
Sem dæmi um hvað hefði getað
auðveldað kennslu, er að ýmis tæki
hefðu verið til staðar til að auðvelda
leiðbeinendum starf þeirra við útskýr-
ingar á prentvélum og hjálpartækjum.
Einnig var tímasetning námskeiðsins
óheppileg, byrjað var kl. 8.30 til kl.
12.30. Heppilegra hefði verið að byrja
PRENTARINN 2.12. '92
9