Prentarinn - 27.09.1992, Síða 3

Prentarinn - 27.09.1992, Síða 3
Ríkisstjórn aukins atvinnuleysis - Nú skal ráðist gegn prentiðnaðinum Fjármálaráöherra hefur lagt fyrir ríkisstjórnina tillögu um afnám endurgreiðslu virðisaukaskatts af aðföngum til bóka-, blaða- og tímaritagerðar. Ríkisstjórnin mun hafa tekið tillögu þessari fagnandi og á þessari stundu er ekki útlit fyrir annað en að hún verði samþykkt. Hvað FBM varðar þá höfum við vissulega mestar áhyggjur af atvinnuþætti þessa máls, þótt menningarlegi þátturinn vegi hér vissulega einnig mjög mikið. Það er svo að til margra ára hafa íslenskar prentsmiðjur verið í harðvítugri samkeppni við erlend prentfyrirtæki, hér á innanlandsmarkaði. Staðreynd er að sífellt fleiri verkefni eru prentuð erlendis. Ef nú þessi tillaga nær fram að ganga má telja fullvíst að: - bókaútgáfufyrirtæki munu í enn ríkari mæli láta vinna bækurnar erlendis - bókaklúbbar fara mjög sennilega allir með út- gáfu sína erlendis (nú þegar er allur kilju- klúbbur M og M prentaður í Skotlandi) og láta senda bækurnar þaðan beint til kaupenda - tímaritaútgáfan mun að talsverðu leyti fara sömu leið og bókaklúbbarnir. Reiknimeistarar ríkisstjórnarinnar áætla að ríkissjóður fái 150 millj. kr. í auknar tekjur við þessa aðgerð. Þá er miðað við hvað endurgreitt var af þessum sökum á s.l. ári. Reiknimeistar- arnir gefa sér það að samþykkt tillögunnar hafi engin áhrif, þ.e. gera ráð fyrir jafnmikilli fram- leiðslu og sölu hér innanlands á næsta ári og var árið 1991. Þetta eru vitaskuld forsendur sem alls ekki standast. Það er alveg Ijóst að sam- þykkt tillögunnar mun hafa í för með sér veru- legan samdrátt í prentiðnaðinum og auk þess mun minna verða keypt af bókum. Það þýðir þá líka lægri skattgreiðslur einstaklinga og fyrir- tækja - og aukin útgjöld til Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs. Krafa er gerð um að dæmið verði rétt reiknað og til enda. Þá mun koma í Ijós að „tekjuauki" ríkissjóðs verður mjög óverulegur. Ef ríkisstjórnin er þá tilbúin til að taka jafn af- drifaríka áhættu, atvinnu- og menningarlega, þá er hún ógæfusamari en við eigum skilið og líð- andi er. Atvinnuleysi hefur verið viðvarandi í okkar röðum frá árinu 1988. Það hefur aldrei orðið eins mikið og á þessu ári, var um 4,7% á vor- mánuðum en er núna, þegar „vertíðin" er komin í gang, 3,8% eða 32 félagar. Við áætlum - og teljum það alls ekki ofmetið - að samþykkt til- lögunnar myndi hafa það í för með sér að at- vinnuleysið færi í 10-12%, eða 85-100 manns. Þá er ekki gert ráð fyrir því að nokkurt fyrirtæki fari á hausinn af þessum sökum, sem er trúlega alltof mikil bjartsýni. Þetta er sú alvarlega mynd sem við okkur blasir og við verðum að koma í veg fyrir að verði að veruleika. Félagar. Við verðum allir að leggjast á eitt til að freista þess að hrinda þessari atiögu. 27. sept. 1992. Þ. G. PRENTARINN - málgagn Félags bókagerðarmanna • Útgefandi FBM Flverfisgötu 21 P.O. Box 349 121 Reykjavík • Ritstjóri: Þórir Guðjóns- son. Ritnefnd: Elín Sigurðardóttir, Georg Páll Skúlason, Þorsteinn Vet- urliðason • Prentsmíð, prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. • Letur: Times og Helvetica • PRENTARINN 3.12. '92 3

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.