Prentarinn - 27.09.1992, Qupperneq 6
Arsfundur Nordisk Grafisk Union
Fagleg norræn sam
Á komandi ári ætlar Nordisk Grafisk Union einkum að
vinna að EB-málum. Samtök bókagerðarmanna í löndunum
sex samþykktu þetta á ársfundinum í Ringkóbing í Dan-
mörku fyrr á þessu ári.
Með ráðstefnuhaldi, æskulýðsstarfi
o.fl. ætla norræn samtök bókagerðar-
manna einkum að vinna að EB-mál-
um á komandi ári. Þetta kemur fram í
starfsáætlun sem fulltrúar 100.000
bókagerðarmanna á Norðurlöndum
samþykktu á Hotel Fjord-gárden í
Ringköbing í Danmörku í maílok.
Norðmenn báru fram starfsáætlun-
artillöguna sem miðar að upplýsingum
og umræðum milli landa sem nálgast
EB á mjög mismunandi hátt. Liður í
upplýsingastarfinu er æskulýðsráð-
stefna sem verður haldin nú í haust.
Á liðnu starfsári hefur NGU tekið
87 mál til umfjöllunar, sem er mun
meira en undanfarin ár. Meðal mála-
flokka er athugun á möguleikum
prentiðnaðarins og fagleg vandamál
við tilkomu heimamarkaðarins 1993.
Auk þessa hefur verið unnið að sam-
steypufaglegu samstarfi á Norður-
löndum og hafa Ole Kidmose, for-
maður Dansk Typograf-Forbund, og
Sture Björnkvist, skipulagsritari
NGU, verið fulltrúar stjórnar NGU
þar. Á þessum ársfundi voru Þórir
Guðjónsson, Sæmundur Árnason og
Georg Páll Skúlason fulltrúar FBM.
Túlkur var Sigríður Stefánsdóttir.
Nei frá atvinnurekendum
NGU hefur haft samstarf við at-
vinnurekendur í prentiðnaðinum á
vettvangi Nordiska Grafiska Rádet.
Þar hefur verið óskað eftir evrópsku
samstarfi iðngreina um EB-mál.
Hins vegar hafa evrópsku atvinnu-
rekendasamtökin, UNICE, ekki verið
sérlega hrifin af þessari hugmynd, en
hún nýtur stuðnings evrópsku laun-
þegasamtakanna, EFS. Ástæðan fyrir
andstöðu UNICE við iðngreinasam-
starf er sú að þýskir atvinnurekendur
hafa hafnað því.
Nemaskipti
Á tímabilinu ágúst-október sá sl.
ári var hrint í framkvæmd nema-
skiptaverkefni með þátttöku 12 lærl-
inga frá Danmörku, Noregi og Sví-
þjóð. Bæði lærlingar og fyrirtæki hafa
gefið nemaskiptunum góða einkunn.
Önnur erlend samskipti
Á árinu hefur verið reynt að koma
á samskiptum við samtök bókagerðar-
manna í Eistlandi, Lettlandi og Lithá-
en, í því augnamiði að styðja þau í
baráttunni fyrir lýðræði.
Stjórn NGU ákvað á árinu að bjóða
fulltrúum bókagerðarmanna í löndun-
um þremur í heimsókn til Norður-
landa.
í ágústmánuði verður tveggja daga
fundur með fulltrúum baltísku land-
anna og norrænu bókagerðarmanna-
samböndunum. Þar að auki hefur
stjórnin ákveðið að Danmörk hugi
sérstaklega að tengslum við Litháen,
Svíþjóð við Lettland og Finnland við
Eistland, en Noregur annist sérstök
vandamál nyrstu byggðanna.
Árið 1991 tókst NGU að fá Valter
Carlsson, formann sænskra bókagerð-
armanna og NGU, kjörinn forseta
Evrópusambands bókagerðarmanna
og þar að auki einn fjögurra varafor-
seta Alþjóðasambands bókagerðar-
manna.
Öll Norðurlöndin eiga nú fulltrúa í
framkvæmdanefnd EGF.
Árið 1991 réði NGU sinn fyrsta
starfsmann, en það er Sture Björnkv-
ist sem er skipulagsritari í hálfu starfi.
Bildt er sneggri en frú
Thatcher
Sænska forsætisráðherranum Bildt
hefur nú þegar tekist að skerða kjör
verkalýðsins jafnmikið og Margareth
Thatcher gerði á 12 árum. Göran
Söderlund, fulltrúi sænsku bókagerð-
armannanna, kvað upp úr um þessa
sorglegu staðreynd þegar hann skýrði
6
PRENTARINN 3.12.'92