Prentarinn - 27.09.1992, Síða 17
Betur sjá augu en eyru
Vaknið!
Kæru atvinnurekendur og launþegar í
bókagerðargreinum.
Höfum við ekki gleymt einhverju í
dagsins önn, einhverju í okkur sjálfum
af því sem gerir mannskepnuna ein-
hvers virði? Er það ekki lengur mann-
bætandi að rætt sé saman um afkom-
una, reksturinn, innkaup og ýmsar
heimiliserjur?
Samanburður á lífsskoðunum fólks
leiðir oft til vænlegri úrlausna á erfið-
leikum og vandamálum líðandi stund-
ar. Við þörfnumst hvatningar til hjúa-
og húsbóndahollustu auk þess að læra
að meta eigur og getu annarra. Betri
nýting hráefnis, umbúnaðar, vinnu- og
frítíma hefur í för með sér bætta af-
komu fyrirtækjanna og vellíðan starfs-
fólks en það er hagur okkar allra.
Flótti atvinnurekenda FÍP í raðir
VSI er að vissu marki skiljanlegur.
FIP þarf ekki lengur að opinbera eigin
skoðanir heldur kaupir þær fyrir stór-
fé frá VSÍ.
Hagsmunir örfárra stórfyrirtækja
innan FÍP virðast ráða þar ríkjum og
hefta þar með einstaklingsfrelsi flest-
allra prentsmiðjueigenda til að sinna
mannlegum þáttum og gera eigin
launþegum eitthvað til góða. Samn-
ingsfrelsið er ekki lengur fyrir hendi,
öllu er stýrt af STÓRA BRÓÐUR og
því fer sem horfir. Afkomu minni fyr-
irtækja hrakar æ meir en „stórveldin“
eflast á þeirra kostnað.
Umræður og vilji flestra fyrir af-
kastahvetjandi launastefnu hefur vikið
fyrir eintóna falsstreng VSÍ sem vill
móta alla í sömu ördeyðuna.
FIP er sofandi við vörslu eigin hags-
muna og glatar í rólegheitunum gæð-
um og andlegu sjálfstæði.
Miðstýring VSÍ er hættuleg íslend-
ingum. ísland er meðalstórt „fyrir-
tæki“ en með takmarkað vinnuafl í
framleiðslustörfum og þolir ekki að
taka upp þá stefnu gegn verkalýðnum
sem ræður ríkjum víða erlendis.
Hér þarf allt að byggjast upp á sam-
starfi ALLRA málsaðila og mat á
gildi og hæfni einstaklingsins að vera
til staðar, þá.eykst framleiðni og nýt-
ing sem eflir bæði hag fyrirtækja og
verkamannsins.
Ógnarstefna núverandi valdhafa í
ríkisstjórn íslands er hættuleg. Svo
virðist sem við blasi fjölmörg gjald-
þrot heimila, einstaklingsfyrirtækja og
minni rekstrareiningum er stefnt í
voða með glæpsamlegri skatta- og
kúgunarstefnu stjórnvalda.
HRUN VELFERÐARKERFIS-
INS ER HAFIÐ.
Ræðið málin
Við þurfum að ræðast alvarlega við og
mynda sterka samstöðu atvinnurek-
enda og verkamanna.
FÍP greiðir nokkrar milljónir á ári
til ofurveldis VSÍ og hlýtur að launum
(tæpast eftirsóknarvert) að þurfa ekki
að tjá sig opinberlega og sleppa við að
hafa skoðanir á samninga- og atvinnu-
málum.
Félagsmenn FBM greiða u.þ.b. 16
milljónir króna í félagsgjöld og stéttar-
félagið er utan ASÍ. Síðustu árin hefur
félagið endurnýtt skeinipappíra ASÍ
sem prófarkalesið handrit að sjálf-
stæðum kjarasamningum, sérstaða
stéttarfélagsins er tæpast lengur til og
annarlegir hagsmunir virðast ráða
ríkjum.
Nú er á lokastigi umræða um að
ganga til samstarfs við ASÍ sem enn
eitt aðildarfélag til viðbótar. Tollurinn
sem GREIÐA ÞARF ÁRLEGA
nemur í dag kr. 1.200.000. en mun
hækka á nóvemberþinginu í u.þ.b. 1.5
miljónir ef tillaga þar að lútandi verð-
ur samþykkt.
PRENTARINN 3.12. '92
17