Prentarinn - 27.09.1992, Side 21
Ur baráttunni
bakkaveginn í átt að Laugarvatni. Yfir
Lyngdalsheiði var þrætt og ekki stans-
að fyrr en á höfuðbóli okkar í Miðdal
og þá var komið hreint „Majorka-
veður“ eins og vera ber á svo helgum
stað.
Það var erfitt að fá ferðalangana
upp í bílinn að nýju. Þeir vildu helst
vera þarna áfram í blíðunni. Áfram
var samt haldið austur að Geysi og
snæddur hádegisverður á hótelinu í
boði lífeyrissjóðsins. Síðan var hvera-
svæðið skoðað, en að því loknu haldið
sem leið liggur austur að Gullfossi.
Geysisskálin.
Þar var dvalið nokkra stund og foss-
inn barinn augum og myndaður í bak
og fyrir. Eins var minnisvarðinn um
Sigríði í Brattholti skoðaður en hún
kom á sínum tíma í veg fyrir að foss-
inn væri seldur útlendingum til virkj-
unar.
Á heimleiðinni var stansað í
Skeiðarétt, sem er eitt fallegasta
mannvirki á Islandi, en síðan lögðum
við lykkju á leið okkar og fórum niður
Flóa, yfir Ölfusá og um Hjallahverfi
upp í Hveragerði og áðum í Eden, áð-
ur en við héldum til Reykjavíkur.
Þetta var skemmtilegur dagur eins og
svo oft áður í ferðalögum með eldri
félögum.
Sv.Jóh.
Góðan daginn,
Gísli Ragnar.
Góðan daginn,
sæll vertu.
Hvernig hafið
þið það í Steindórs-
prenti/Gutenberg?
Alveg ágætt,
þakka þér fyrir,
nóg að gera, flestir
heilir heilsu og
mórallinn góður.
Hvernig líkar þér
G's'i R- Gíslason. v(yj nýju húsbœnd-
urna?
Samruninn lofar góðu. Ég held að
það hafi verið nálægt 12 manns sem
ýmist kusu að hætta störfum eða
urðu að víkja þar sem störf þeirra
voru sameinuð öðrum eða lögð nið-
ur.
Hvað með kjörin og verkefnin?
Ja, launakjörin eru nær óbreytt,
held ég. Verkefnin eru mikið þau
sömu og jafnframt vona ég að þau
verði fjölbreyttari en þau voru áður.
Þú ert sem sagt sáttur við þetta allt
saman?
Þessi samruni Steindórsprents og
Gutenbergs gekk mjög fljótt og vel
fyrir sig og lofar góðu. Flestir virðast
ánægðir og líta bjart fram á veginn
enda spennandi að takast á við ný og
aukin verkefni.
Ein svona aukaspurning. Ætlið þið
að mœta til leiks í nœsta innanhúss-
knattspyrnumóti?
Það máttu bóka, við teljum okkur
eiga titil að verja og lumum á leyni-
vopni. Þú vissir vel að undirbúningur
sumarþings á Alþingi varð þess vald-
andi að við gátum ekki sýnt ykkur
hvernig á raunverulega að spila inn-
anhúsknattspyrnu en við mætum
næst, annað hvort væri nú.
Það er bara svona! Eiga þá hin lið-
in að fara að æfa betur?
Auðvitað mega þeir æfa sig, en, ja,
þetta verður allt auðvelt.
Þakka þérfyrir Gísli og gangi ykk-
ur vel þarna í Síðumúlanum.
Þakka þér sömuleiðis, blessaður.
Þorsteinn Veturliðason hringdi.
Hjá Guðjón Ó hf. er leigutaki
þrotabús Guðjón Ó hf. a.m.k. út
þetta ár.
Að sögn forráðamanna fyrirtækis-
ins eru 24 á launaskrá.
Hafa fyrrum viðskiptavinir kunn-
að að meta frábæra þjónustu og
vinnubrögð síðustu áratuga og því
haldið tryggð við starfsfólkið og tek-
ið gæði framleiðslunnar fram yfir
takmarkalaus niðurboð samkeppnis-
aðila. f>.v.
Fv. Þórleifur V. Friöriksson, Sigurður Þorláksson og Ólafur Stolzenwald.
PRENTARINN 3.12. '92
21