Prentarinn - 27.09.1992, Side 23

Prentarinn - 27.09.1992, Side 23
Julian Waters skýrir út aöferö við að skrifa róm- Susan Skarsgard nær óskiptri athygli nemenda versku hástafina. sinna. íí'f'cn-1'-", Þátttakandi frá Ítalíu hengir upp afrakstur námskeiðsins hjá John Stevens. Kalligrafísk bók eftir Birgit Schumacher, unnin hjá Susan Skarsgard. kennsluaðferðum gamla meistarans Karlgeorg Hoefers frá Offenbach í Þýskalandi. Andstætt Rudolf Koch, sem notaði mestmegnis breiðan penna við leturgerð sína, leitaði Hoefer nýrra leiða og verkfæra. Hinir nýju penslar Japana, sem unnir eru úr gerviefnum, lentu í höndum hins þýska meistara og má því telja Hoefer upphafsmann tilrauna með hin austur- lensku verkfæri hér á Vesturlöndum. Hoefer hefur haldið námskeið vítt og breitt m.a. sumarnámskeið í Banda- ríkjunum (allt frá árinu 1981). Hann er stofnandi og stjórnandi skriftarverk- stæðis við Klingspor-safnið í Offen- bach. Hoefer fjallaði um formgerð Unsíal letursins og byggði á hinu sögulega letri, sem notað var í kristi- legar bókmenntir. Hann sýndi fram á þýðingu letursins í nútímanum og kenndi hvernig skrifa má skásett (kursiv) unsíal letur. Það var einstak- lega ánægjulegt fyrir mig að mega fylgjast með aðferðum þessa áttræða snillings, sem hefur haft gagnger áhrif jafnt á eldri sem yngri skrifara. Fyrirlestrar á kvöldin um hin ýmsu efni skriflistarinnar voru einnig vel skipulagðir eins og allt mótið. I lokin stóðu menn upp og hylltu fram- kvæmdastjóra og starfslið og einnig kokkinn, sem lét ekki sitt eftir liggja að bera fram kræsilegan belgískan mat af sannri list. Vonandi finna íslenskir skrifarar hjá sér hvöt til að taka þátt í samskon- ar námsstefnu sem haldin verður í júlí á næsta ári. Ég veiti fúslega allar nán- ari upplýsingar um það. Torfi Jónsson. PRENTARINN 3.12. '92 23

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.