Prentarinn - 27.09.1992, Qupperneq 23
Julian Waters skýrir út aöferö við að skrifa róm- Susan Skarsgard nær óskiptri athygli nemenda
versku hástafina. sinna.
íí'f'cn-1'-",
Þátttakandi frá Ítalíu hengir upp afrakstur námskeiðsins hjá John Stevens.
Kalligrafísk bók eftir Birgit Schumacher, unnin hjá Susan Skarsgard.
kennsluaðferðum gamla meistarans
Karlgeorg Hoefers frá Offenbach í
Þýskalandi. Andstætt Rudolf Koch,
sem notaði mestmegnis breiðan penna
við leturgerð sína, leitaði Hoefer
nýrra leiða og verkfæra. Hinir nýju
penslar Japana, sem unnir eru úr
gerviefnum, lentu í höndum hins
þýska meistara og má því telja Hoefer
upphafsmann tilrauna með hin austur-
lensku verkfæri hér á Vesturlöndum.
Hoefer hefur haldið námskeið vítt og
breitt m.a. sumarnámskeið í Banda-
ríkjunum (allt frá árinu 1981). Hann er
stofnandi og stjórnandi skriftarverk-
stæðis við Klingspor-safnið í Offen-
bach. Hoefer fjallaði um formgerð
Unsíal letursins og byggði á hinu
sögulega letri, sem notað var í kristi-
legar bókmenntir. Hann sýndi fram á
þýðingu letursins í nútímanum og
kenndi hvernig skrifa má skásett
(kursiv) unsíal letur. Það var einstak-
lega ánægjulegt fyrir mig að mega
fylgjast með aðferðum þessa áttræða
snillings, sem hefur haft gagnger áhrif
jafnt á eldri sem yngri skrifara.
Fyrirlestrar á kvöldin um hin ýmsu
efni skriflistarinnar voru einnig vel
skipulagðir eins og allt mótið. I lokin
stóðu menn upp og hylltu fram-
kvæmdastjóra og starfslið og einnig
kokkinn, sem lét ekki sitt eftir liggja
að bera fram kræsilegan belgískan
mat af sannri list.
Vonandi finna íslenskir skrifarar
hjá sér hvöt til að taka þátt í samskon-
ar námsstefnu sem haldin verður í júlí
á næsta ári. Ég veiti fúslega allar nán-
ari upplýsingar um það.
Torfi Jónsson.
PRENTARINN 3.12. '92
23