Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 3
Ríkisstjórn aukinnar
skattheimtu
- Skattlagning almennra launatekna stóraukin og ýmis
þjónustugjöld hækkuð
Það á ekki af íslensku launafólki að ganga. Núver-
andi ríkisstjórn hefur með aðgerðum sínum komið
því til leiðar að þúsundum fjölskyldna í þessu landi
er ætlað að framfleyta sér á tekjum sem eru sannan-
lega langt undir framfærslukostnaði. Þó vissulega
hafi oft verið gerð, af ríkisstjórnum, hörð atlaga að
lífskjörum okkar og afkomumöguleikum okkar, þá er
það gert af enn meiri hörku og miskunarleysi en áð-
ur hefur þekkst.
Með efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar, sem
birst hafa okkur síðustu daga og vikur, er alveg Ijóst
að hafnað er kröfum verkalýðshreyfingarinnar um
tekjujöfnun í þjóðfélaginu, áframhaldandi stöðug-
leika og raunhæfar aðgerðir til atvinnuuppbyggingar.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar bera allar að sama brunni
- þær þrengja verulega afkomu launafólks: Gengið
er fellt, það orsakar hækkun á innflutri vöru; niður-
greiðslur á ýmsum landbúnaðarafurðum eru skertar;
verð á bensíni hækkar; vextir eru hækkaðir; nýtt
virðisaukaskattsþrep er sett á og ýmsar vörur,
þ.á.m. bækur, blöð og tímarit, sem áður voru undan-
þegnar þessum skatti munu vafalaust hækka af
þessum sökum; barnabætur eru stórlega skertar.
Ein ógeðfelldasta aðgerð ríkisstjórnarinnar var að
lækka persónuafsláttinn úr kr. 24.013 í 23.611 og
hækka samtímis skatthlutfall staðgreiðslu úr 39,85%
í 41,34%. Svo dæmi sé tekið þá veldur þessi breyt-
ing 1.743 kr. skattahækkun á mánuði m.v. 90.000 kr.
mánaðarlaun. Frá því staðgreiðsla skatta var tekin
upp, 1. jan. ‘88, hafa ríkisstjórnir lækkað skattleysis-
mörk um 15.089 kr/mán. frá því sem í byrjun var
fastsett, þar af á núv. ríkisstjórn kr. 5.853. Vegna
þessara aðgerða hefur skattbyrði aukist um 6.239
kr/mán. frá ‘88, þar af um 2.564 kr/mán. í tíð núv.
ríkisstjórnar.
Öllum þessum „efnahagsaðgerðum" skellir ríkis-
stjórnin á okkur þrátt fyrir kröftug mótmæli frá allri
verkalýðshreyfingunni.
Á hinn bóginn er uppi af hálfu verkalýðshreyfing-
arinnar, mjög ákveðin krafa um að tekjur af peninga-
legum eignum verði skattlagðar, að „fjármagnstekj-
ur“ verði skattlagðar rétt eins og aðrar tekjur. En
eins og við er að búast hunsar ríkisstjórnin þessa
kröfu algerlega. Á sama tíma og skattar á almennar
launatekjur eru stórauknir skulu tekjur auðvaldsins
af peninga- og verðbréfaeignum algerlega skatt-
frjálsar.
í komandi kjarasamningum hljóta meginkröfur
verkalýðshreyfingarinnar að beinast sérstaklega að
ríkisstjórninni - á þeim vettvangi verður að ná fram
leiðréttingum.
Óréttlætið sem í þessum ríkisstjórnaraðgerðum
birtist er svo augljóst og algerlega óásættanlegt, að
verkalýðshreyfingin verður að snúast til varnar án
tafar og með öllu afli.
7. jan. 1993. Þ.G.
prentarinn
■ MÁLGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA
PRENTARINN - málgagn Félags bókagerðarmanna • Utgefandi FBM
Hverfisgötu 21 P.O. Box 349 121 Reykjavík • Ritstjóri: Þórir Guðjóns-
son. Ritnefnd: Elín Sigurðardóttir, Georg Páll Skúlason, Þorsteinn Vet-
urliðason • Prentsmíð, prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. •
Letur: Times og Helvetica •
PRENTARINN 1.13/93
3