Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 4

Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 4
Skýrsla um ferð til Belgíu og Hollands: Bæta þarf skipu íslenskra prentf Sunnudaginn 20. sept. sl. héldu tveir fulltrúar FÍP og tveir fulltrúar FBM til Belgíu og Hollands. Ferð þessi var farin í kjölfar þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað undanfarna mánuði og ár um samkeppnisstöðu íslensks prentiðnaðar gagnvart prentiðnaði í öðrum löndum. Fulltrúar FÍP voru Guðmundur Kristjánsson og Þórarinn Gunnarsson en Georg Páll Skúlason og Margrét Rósa Sigurðardóttir voru fulltrúar FBM. Við, fulltrúar FBM í þessari ferð, álítum hana mjög gagnlega og að nið- urstöður hennar ættu að vera íslensk- um prentiðnaði viðvörun en einnig hvatning til að gera betur. Samkomulag varð um að gefa út sameiginlega skýrslu um ferðina og birtist hún hér á eftir í heild sinni. Ákveðið var á stjórnarfundi Félags íslenska prentiðnaðarins þann 3. sept- ember sl. að framkvæmdastjóri félags- ins ásamt einum stjórnarmanni færu til Hollands og Belgíu og könnuðu að- stæður í þessum löndum. Bæði Hol- land og Belgía standa framarlega í út- flutningi prentverks og því tilvalið að afla nánari vitneskju um það sem þar er að gerast. Jafnframt var ákveðið að óska eftir því við Félag bókagerðar- manna að það sendi einn til tvo full- trúa með í þessa ferð. Ferðin hófst eins og fyrr sagði 20. sept. og lauk föstudaginn 25. sept. Fyrst var haldið til Hollands og skoð- uð fimm prentiðnaðarfyrirtæki ásamt því að félög launþega og atvinnurek- enda í prentiðnaði voru heimsótt. í Belgíu voru tvö fyrirtæki ásamt félög- um launþega og atvinnurekenda heimsótt. Þá heimsóttu fulltrúar FÍP Intergraf sem eru alþjóðleg samtök at- vinnurekendafélaga í prentiðnaði og tengdum greinum. Við skipulagningu ferðarinnar nut- um við hjálpar Valgerðar Bjarnadótt- ur, sem starfar í Brussel f.h. atvinnu- lífsins á íslandi. Ennfremur samtaka atvinnurekenda í Hollandi KVGO og í Belgíu FEBELGRA svo og laun- þegasamtakanna DRUK EN PAPI- ER í Hollandi og svæðisskrifstofu CBP launþegasamtakanna í Antwerp- en í Belgíu. HOLLAND í Hollandi voru heimsótt, eins og áður sagði, 5 fyrirtæki. Mánudaginn 21. september voru heimsótt 4 fyrirtæki auk þess sem litið var inn á skrifstofu launþegasamtakanna. Til að þetta tækist var ákveðið að skipta liði og heimsóttu Georg Páll og Guðmundur launþegasamtökin og tvö fyrirtæki, Kaspari BV og Lennop BV. Þórarinn og Margrét Rósa heimsóttu hins vegar fyrirtækin Drukkery De Raat & De Vries BV og Neroc BV ásamt því að skoða sölusýningu hjá Multicopy Electronic Print Center. Fyrir framan ALBE í Antwerpen. F.v. Þórarinn Gunnarsson, Guömundur Kristjánsson, Georg Páll Skúlason og Margrét Rósa Sigurðardóttir. 4 PRENTARINN 1.13.'93

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.