Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 5
lag og stjórnun
yrirtækja
Séö yfir offsetprentsalinn í prentsmiðjunni OPDA í Antwerpen. Hér sjást 4 Speedmaster prentvél-
ar og bak við tjöldin hægra megin eru 2 rúlluprentvélar.
Drukkery De Raat & De Vries BV
Fyrirtækið reyndist vera lítil prent-
smiðja þar sem störfuðu 20 manns.
Það var í nýju húsnæði í úthverfi Am-
sterdam en þangað hafði það flutt úr
miðborginni um sl. áramót.
Hr. J.C. Stoopman, forstjóri og
aðaleigandi fyrirtækisins, tók á móti
okkur og sýndi starfsemina. Fyrirtæk-
ið sinnir fyrst og fremst prentun og
hefur nær enga forvinnslu og tak-
markaða eftirvinnslu innan veggja.
Tækjabúnaður var hefðbundinn, þ.e.
eins og tveggja lita Heidelberg prent-
vélar ásamt dígulvél o.fl. þ.h. Eins og
áður sagði starfa 20 manns hjá fyrir-
tækinu þar af 14 í vinnslusal og 6 á
skrifstofu.
Neroc BV (Koningsveld,
Amsterdam)
KONINGSVELD Amsterdam er eitt
18 fyrirtækja í Neroc BV Netherland
prepress fyrirtækjahópnum.
Koningsveld fæst einungis við for-
vinnu fyrir prentun. Hjá fyrirtækinu
starfa u.þ.b. 40 manns, en alls vinna
um 300 manns hjá Neroc BV. Tæki
voru flest þau hin sömu sem við
þekkjum hér. Fyrirtækið er einnig
söluaðili fyrir Apple tölvur og heldur
námskeið í skjáborðsprentsmíð
(DTP).
Kaspari BV
Kaspari BV er 60 manna fyrirtæki í
nýlegu húsnæði í Amstel, hluti af tutt-
ugu fyrirtækja keðju. Fyrirtækið ann-
ast fyrst og fremst offsetprentun, á
forvinnu og frágang er aðallega litið
sem þjónustu við viðskiptavininn. í
fyrirtækinu voru stórar Speedmaster
vélar og minni gerð af Roland prent-
vélum. Sölumenn voru 3, þar af starf-
aði einn inni í fyrirtækinu en tveir
störfuðu utan þess. Mikil áhersla var
lögð á að rækta sambandið við núver-
andi viðskiptavini. Af 60 manna
starfsliði starfa 42 að beinni fram-
leiðslu en 18 í öðrum verkum.
Lennop BV
Fyrirtækið er bókbandsfyrirtæki með
60 starfsmenn. Vinnsla er brot, upp-
taka, saumaskapur, kápuísetning, þ.e.
bæði fræsing og ekki fræsing, skurður
og pökkun. Ekki voru unnar harð-
spjaldabækur í fyrirtækinu. Vélvirkjar
stilla vélarnar og ófaglært fólk er
þjálfað til ákveðinna starfa á ákveðn-
um vélum og fer lítið á milli véla. Þeg-
ar fyrirtækið fær nýjar vélar er farið
með hóp starfsmanna og þeir annað-
hvort þjálfaðir hjá vélaseljanda eða
umboðsmönnum. Útflutningur er um
50% af framleiðslu, aðallega til Belgíu
og Þýskalands.
Druk en Papier f.n.v.
Druk en Papier f.n.v. eru systursam-
tök FBM í Hollandi. Rætt var við
varaforseta og fulltrúa hjá félaginu.
Veittu þeir upplýsingar um laun í
prentiðnaði, atvinnustig, grunnmennt-
un, eftirmenntun og endurmenntun.
Fram kom að hollenska ríkið greiðir
styrk með hverjum nema, misjafnlega
mikið eftir greinum. Hvað varðar end-
urmenntun þá greiða fyrirtækin í sjóð
sem stendur að baki endurmenntunar-
skóla. Fyrirtækin greiða stærstan hluta
kostnaðarverðs hvers námskeiðs, en
sjóðurinn greiðir afganginn og stendur
undir fjárfestingum. Sum námskeið
eru opin aðliggjandi greinum svo sem
textagerðarmönnum og fólki sem fæst
PRENTARINN 1.13.'93
5