Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 6

Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 6
við myndvinnslu. Þeir greiða hins veg- ar fullt gjald fyrir námskeiðin. Þessi opnun er m.a. hugsuð til að viðhalda styrk fagfélagsins. Þriðjudaginn 22. sept. var eitt fyrir- tæki heimsótt ásamt því að eiga fund með félagi atvinnurekenda í prentið- naði KVGO. Aeroprint/J.K. Smith & Sonen Prentsmiðjan Aeroprint er 60 manna fyrirtæki með 10 starfsmenn á skrif- stofu. Um er að ræða hefðbundna prentsmiðju með eins, tveggja, fjög- urra og fimm lita Heidelberg prentvél- um. Fyrirtækið tekur að sér ýmis verkefni og upplög eru frá 50 eintök- um að 10.000 eintökum. Meðalupplag er u.þ.b. 2000 - 2500. Fyrirtækið er fyrst og fremst prentsmiðja og er með takmarkaða getu í for- og eftirvinnslu. Slík vinnsla er að miklu leyti keypt af sérhæfðum fyrirtækjum í þessum greinum. KVG0 Koninklijk Verbound van Grafiscke Onderhemingen eru systursamtök FÍP í Hollandi. Um 3000 fyrirtæki með u.þ.b. 57.000 starfsmenn eiga aðild að sam- tökunum. Starfsmenn KVGO eru 114 og starfa þeir í 7 deildum. Frarn kom að Holland er eitt af fáum löndurn þar sem hlutfall milli inn- og útflutnings er jákvætt. Félagið hefur mikið sinnt gæðamálum í prentiðnaði og er nú að hefja mikið starf, sem snýr sérstaklega að heildargæðunr minni fyrirtækja, sem tæplega eru fær um að afla sér ISO 9000 viðurkenningar og er þessi minni útgáfa vel skoðunar virði. BELGÍA Miðvikudaginn 23. sept. hófst heim- sókn til Belgíu. Þar voru skoðuð tvö fyrirtæki ásamt því að rætt var við FEBELGRA systursamtök FÍP og fulltrúa launþegafélagsins í Antwerp- en. 0PDA Hjá Offset Planodrukkeri í Antwerp- en vinna um 80 manns. Fyrirtækið er fyrst og fremst prentsmiðja með til- tölulega litla for- og eftirvinnslu. Slík vinna er keypt hjá sérhæfðum fyrir- tækjum. Fyrirtækið er ágætlega búið prentvélum, bæði arkaprentvélum og rúlluprentvélum. Vel virðist fylgst með framleiðslunni, sem að mestu eru stór upplög og m.a. notuð strikamerki og lespennar við skráningu í öllu verk- ferlinu. Albe Color Printing Albe Color Printing er fyrirtæki í eigu tveggja fjölskyldna og hefur aðsetur í Antwerpen. Fyrirtækið var stofnað 1948 og nú- verandi framkvæmdastjórar eru synir stofnendanna. Fyrirtækið er í rúmlega 17000 fer- metra húsnæði. Prentvélar eru frá ein- um lit og til sex lita. Vélar í for- og eftirvinnu eru nýlegar. Helsta fram- Samskonar tækjakostur er notaður í Hollandi, Belgíu og á Islandi. 6 PRENTARINN 1.13.'93

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.